Hringar bendi til þess að Hadid og Cooper hafi gift sig Lovísa Arnardóttir skrifar 6. ágúst 2026 15:00 Parið hefur verið saman í um þrjú ár. Myndin er tekin í september í fyrra. Vísir/Getty Mikið er rætt um mögulegt hjónaband Gigi Hadid og Bradley Cooper eftir að þau sáust með hringa á baugfingri vinstri handar á dögunum í París. Cooper bað Hadid í desember í fyrra. Parið hefur verið saman í þrjú ár og eiga hvort um sig eitt barn úr fyrra sambandi.
Fyrirsætan, 31 árs, og kvikmyndastjarnan, 51 árs, sáust haldast í hendur á gangi í París síðasta mánudag. Hringarnir eru giftingarhringar frá franska lúxusskartgripamerkinu Boucheron, en fjallað er um málið á vef People en Page 6 var fyrst til að greina frá fréttunum. Þar kemur fram að Hadid hafi verið með giftingarhringinn Quatre Radiant Edition, sem er með röð af 33 demöntum sem eru kvartkarat hver ásamt 18 karata gulu og hvítu gulli með Grosgrain-áferð, „sem er vísun í hefð Boucheron-fjölskyldunnar fyrir dúkagerð,“ að sögn merkisins. Hringurinn, sem kostar 6.450 dali, er sagður vera „bæði borgarlegur og dýrmætur“. 6.450 dalir samsvara um 797 þúsund íslenskum krónum. Cooper var með Godron-giftingarhringinn úr rósagulli, sem kostar 2.120 dali og er gerður úr fáguðu 18 karata rósagulli. 2.120 dalir samsvara um 262 þúsund íslenskra króna. Parið sást í París mánuði eftir að þau mættu saman í stjörnum prýtt brúðkaup Taylor Swift og Travis Kelce í Madison Square Garden í New York-borg þann 3. júlí. Fjallað er um mögulega giftingu þeirra Hadid og Cooper í mörgum erlendum miðlum. Á vef Cosmopolitan stendur að þau hafi ekki borið hringana þegar Taylor Swift gifti sig þann 3. júlí og að heimildarmenn þeirra gefi til kynna að athöfnin hafi farið fram í síðustu viku í New York. Í öðrum miðlum kemur fram að þau hafi gift sig á undan Swift og Kelce. Hittust í barnaafmæli Cooper og Hadid voru fyrst orðuð við hvort annað í byrjun október 2023 þegar þau sáust yfirgefa veitingastaðinn Via Carota, sem er vinsæll meðal fræga fólksins, í New York-borg áður en þau fóru inn í sama jeppann. Þar var haldin afmælisveisla barns sameiginlegs vinar. Parið fór svo saman út að borða í einkakvöldverð á Giorgio Baldi í Los Angeles eftir Golden Globes-verðlaunahátíðina 2024, ásamt Gloriu, móður Coopers. Þó að stjörnurnar tvær hafi haldið ástarsambandi sínu nokkuð leyndu, tjáði Hadid sig um Cooper í viðtali við Vogue í apríl 2025, þar sem hún lýsti sambandi þeirra sem „mjög rómantísku og hamingjusömu“. „Að finna einhvern sem er á þeim stað í lífinu að hann veit hvað hann vill og á skilið og þið bæði vinnið í ykkur sjálfum til að koma saman og vera besti mögulegi maki. Ég er bara svo heppin,“ sagði hún. Opinbert í um ár Parið gerði samband sitt opinbert á Instagram í maí 2025 þegar Hadid fagnaði 30 ára afmæli sínu og deildi hápunktum úr veisluhöldunum á Instagram. Í myndasyrpunni hennar var mynd úr veislunni sem sýndi Cooper og Hadid kyssast við hliðina á afmæliskökunni hennar. Hadid og Cooper eiga bæði börn. Hadid á stúlku með Zayn Malik söngvara úr One Direction en þau hættu saman árið 2021 eftir um sex ár saman. Dóttir þeirra fæddist árið 2020 og því er hún að verða sex ára gömul. Cooper á einnig stúlku með Irinu Shayk en þau voru saman frá 2015 til 2019. Dóttir þeirra fæddist 2017 og er því níu ára.
Ástin og lífið Hollywood Bandaríkin Frakkland Mest lesið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Lífið Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Minntist pabba síns John Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Lífið Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Lífið Hvað veistu um... íslenska hönnun? Lífið Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Lífið Funheit í fimm ára afmæli Lífið Fleiri fréttir „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns John Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO Sjá meira