Sport

Synti yfir Eystrasaltið í 56 tíma án þess að stoppa

Andri Broddason skrifar
Það var tekið vel á móti Bartłomiej Kubkowski þegar hann kom í land þrátt fyrir að hann væri örmagna.
Það var tekið vel á móti Bartłomiej Kubkowski þegar hann kom í land þrátt fyrir að hann væri örmagna. Dziwnów Commune/Zeglarski

Pólskur sundkappi varð á dögunum fyrsti maðurinn í sögunni til að synda yfir Eystrasaltið án þess að fara úr vatninu. Hann synti frá Svíþjóð til Póllands og var 56 klukkustundir að synda í sjónum.

Bartłomiej Kubkowski, pólskur sundkappi, var staddur í bænum Kåseberga í Suður-Svíþjóð þegar hann hóf að synda. Áfangastaðurinn var Dziwnów-ströndin í Póllandi en Kubkowski synti 160 kílómetra til að komast þangað.

Það voru tveir bátar sem fylgdu honum á meðan hann var að synda en til að tilraunin yrði gild mátti hann ekki snerta bátana. Frá bátunum fékk hann vatn og mat til að nærast á meðan hann var í sjónum. Það var nauðsynlegt þar sem hann varði 56 klukkustundum í sjónum.

Til þess að vera formlega fyrsti maðurinn til að synda óstuddur yfir Eystrasaltið þurfti hann að synda á ströndina og standa upp án aðstoðar. Það reyndist erfitt fyrir Kubowski enda var hann gjörsamlega örmagna þegar hann náði loks að komast á land og vissi varla sitt rjúkandi ráð en það hafðist að lokum.

Þetta var fimmta tilraunin hans til að synda yfir Eystrasaltið. Síðasta tilraun hans var árið 2025 en þar missti Kubkowski meðvitund ellefu kílómetra frá pólsku ströndinni.

Ástæðan fyrir sundinu var að safna peningum fyrir gott málefni. Hann var að synda fyrir góðgerðarsamtök sem aðstoða börn sem þurfa aðgerð gegn krabbameini og náði hann að safna 140 þúsund evrum eða um 20 milljónum króna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×