Tilkynningum um innbrot fjölgar á ný Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 7. ágúst 2026 12:54 Unnar Már Ástþórsson, aðalvarðstjóri á lögreglustöðinni á Hverfisgötu. Vísir/Ívar Fannar Íbúar í og við miðborg Reykjavíkur hafa orðið varir við ítrekuð innbrot í bíla í hverfinu. Einn íbúanna fann síma annars í bílnum sínum. Aðalvarðstjóri segir að tilkynningum um innbrot fjölgi á ný.
Íbúðasíður miðbæjar Reykjavíkur og nágrennis loga vegna fjölda innbrota í bíla hverfisins. Steina Daníels er ein íbúa í Vesturbænum sem kom að bílnum sínum og sá augljóslega að farið hafði verið inn í hann. „Hann á að hafa verið læstur en það var búið að rústa öllu inni í honum,“ segir Steina. Eftir að hafa rætt við nágranna sína komst hún að því að í gærmorgun hefði einn nágranni hennar séð karlmann á vappi í kringum bílinn hans. Þá var klukkan hálf sjö að morgni. Nágranninn fór út og elti manninn að götu Steinu. Hún fann síðan síma nágrannans í bílnum sínum. Ekkert verðmætt var tekið úr bílnum. Þetta er í annað skipti sem farið er í bíl Steinu en í sjötta skipti sem farið er í bíl nágrannans á stuttum tíma. „Allar rafmagnssnúrur voru teknar og myndavélin sem við erum með fremst í bílnum. Svo var geymsluhólf á milli sætanna sem er einskis virði. Þetta voru mjög skringilegir hlutir sem voru teknir. Svo voru Bónuskortið, peningar eða kerrur og bílstólar ekki tekin, allt hlutir sem er frekar auðvelt að selja,“ segir Steina. „Það virðist ekki vera mikil hugsun á bak við þetta.“ Steina segist sjálf hafa verið að fylgjast með íbúðasíðum og birti færslu þar sem hún biður fólk um að birta myndir af þýfi sem það hefur fundið svo hægt sé að koma hlutunum aftur til eigendanna. „Samkvæmt íbúasíðunni er verið að labba í bíla, garðskýli og geymsluskúra allar nætur,“ segir hún. „Það er greinilega mikið verið að vakta hérna. Það var talað um það að fólk sem gleymir einu sinni að læsa, það er tjékkað á hverri nóttu.“ Tilkynningum fjölgi á ný Unnar Már Ástþórsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir að lögreglan hafi orðið vör við aukna innbrotatíðni í hverfi 101. Áður hefur verið fjallað um aukna innbrotatíðni í miðborginni og jafnvel talað um innbrotahrinu. „Þetta er búið að vera mest hérna í 101 en þetta er birtingarmynd í mörgum hverfum hjá okkur, sérstaklega með þessa bíla,“ segir hann. „Það hægði aðeins á henni þegar einstaklingur var tekinn úr umferð í júlí en svo virðist vera kominn aftur umgangur.“ Steina segir mikið af þýfinu vera skilið eftir í görðum, húsasundum eða jafnvel annarra manna bílum. Unnar segir það gerist að þjófar fari í einn bíl og séu að flýta sér svo að þeir grípi bara eitthvað. Svo fari þeir jafnvel í næsta bíl og gleymi því sem tekið var í hinum. „Við erum líka að verða vör við það að fólk er að geyma lyklana sína í bílnum og þá er bíllinn horfinn daginn eftir,“ segir hann. „Ef fólk vill ekki læsa bílnum sínum þá þarf að tryggja það að þar séu engin verðmæti.“ Tvö til þrjú nöfn á lista Hann biðlar til fólks um að vera vart um sig og ekki geyma verðmæti eða hluti sem því þyki vænt um í bílunum sínum. „Ég veit að sumir af okkar kunningjum eru að ná ótrúlegu magni af klinki á einni nóttu,“ segir Unnar og bætir við að þeir nýti oftar en ekki peninginn í mat eða neyslu. Lögreglan er með tvö til þrjú nöfn á lista sem hana grunar. „Þótt við viljum trúa að þetta sé litla Ísland þá gerist svona.“
Reykjavík Lögreglumál Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Innlent Fleiri fréttir „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Sjá meira