Vildi ekki selja fyrirliðann og lofar að styrkja liðið í staðinn Ágúst Orri Arnarson skrifar 7. ágúst 2026 16:02 Bruno Guimaraes er á förum frá Newcastle. Vísir/Getty Yfirmaður knattspyrnumála hjá Newcastle segir félagið alls ekki hafa viljað selja fyrirliðann Bruno Guimaraes til Arsenal en virt hans óskir. Verið sé að leita að nýjum leikmönnum fyrir komandi tímabil í ensku úrvalsdeildinni.
Guimaraes er á leið til Arsenal fyrir 75 milljónir punda samkvæmt The Athletic. Félagaskiptin hafa ekki verið formlega frágengin en þrátt fyrir það ræddi Ross Wilson, yfirmaður knattspyrnumála hjá Newcastle, opinskátt við blaðamenn í æfingabúðum liðsins á Spáni. „Við vildum ekki selja Bruno,“ sagði Wilson við The Athletic. Ross Wilson er yfirmaður knattspyrnumála hjá Newcastle. BBC „Það var aldrei planið að selja Bruno. Enginn okkar, eða eigendurnir, vildi selja Bruno. Hann er fyrirliðinn og virkilega, virkilega mikilvægur leikmaður fyrir okkur en við erum að fá gott verð. Þetta er metverð fyrir mann á hans aldrei,“ bætti Wilson við um hinn 28 ára gamla Guimaraes. „Við þurfum að meta, með mikilli virðingu fyrir Bruno, hans hegðun í okkar garð og tilfinninguna sem við höfðum. Í raun sagði það okkur að hann vildi fara frá félaginu og taka næsta skref á sínum ferli annars staðar. Það þýðir ekki að hann megi bara fara en við vorum með ákveðna tölu í huga og fengum tilboð. En ég ætla ekki að segja að þetta hafi verið planið hjá okkur í sumar, það var það alls ekki,“ sagði Wilson einnig. Þegar salan á Guimaraes gengur í gegn mun Newcastle hafa selt leikmenn fyrir samanlagt 245 milljónir punda í sumar. Anthony Gordon, Sandro Tonali og Bruno Guimaraes verða þá allir farin frá félaginu. Í staðinn hefur Newcastle fest kaup á fimm leikmönnum fyrir samtals um 150 milljónir punda en fjórir þeirra eru yngri en tuttugu ára. Nú er leitað að reynslumeiri mönnum sem gætu tekið að sér leiðtogahlutverk innan liðsins. „Við viljum styrkja liðið meira. Við höfum nú þegar styrkt liðið, við höfum fylgt okkar hugmyndafræði og skapað skýra sjálfsmynd. Við vildum fríska upp á hópinn og höfum gert það vel. Nýi þjálfarinn [Matthias Jassle] finnur vel fyrir því. En auðvitað viljum við bæta meira við okkur. Matthias vill skoða það og hefur verið að skoða það í töluverðan tíma. Nú er komin skýrari mynd á stöðuna og við erum samstilltir í okkar aðgerðum. Við viljum ekki gera nein mistök í fljótfærni en við erum virkir á félagaskiptamarkaðnum,“ sagði Wilson.
Newcastle United Enski boltinn Mest lesið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Enski boltinn Elías og félagar flugu áfram Fótbolti Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Handbolti Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Handbolti Palacios til Ipswich Enski boltinn Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Fótbolti Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Fótbolti Rodri kom inn af bekknum í sigurleik Fótbolti Fleiri fréttir Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjá meira