Fundu níu skipsflök og ummerki um snjóflóð á hafsbotni við Siglufjörð Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 9. ágúst 2026 21:00 Ragnar Edvardsson, fornleifafræðingur, heldur hér á múrsteini sem fannst á hafsbotni við rannsóknina. arnar þór egilsson og heimir sigurður haraldsson Níu skipsflök fundust við könnun á hafsvæði við Siglufjörð auk ummerkja um snjóflóð sem féll á svæðinu árið 1919. Fornleifafræðingur sem kannaði svæðið segir varðveislu neðansjávar mun betri en menn hafi ímyndað sér.
Ragnar Edvardsson, fornleifafræðingur og rannsóknardósent hjá rannsóknarsetri Háskóla Íslands á Vestfjörðum, kannaði svæðið sjálfur en verkefnið er hluti af stærra verkefni sem snýr að því að kortleggja skipsflök við landið og fá hugmynd um fjölda og ástand þeirra. Annar hluti verkefnisins snýr að kortlagningu búsvæða á grunnsævi í kringum landið og var fyrsti liðurinn í verkefninu að kanna hafsvæðið við Siglufjörð en það er eitt þekktasta hafsvæðið í sögu íslensk sjávarútvegs. Danskt herskip á hafsbotni Neðansjávarkafbátur var notaður við könnun á svæðinu auk sjálfstýrðra dróna en markmiðið er að varpa nýju ljósi á þróun útgerðar, siglinga og atvinnulífs á svæðinu. „Við kortlögðum innri hluta fjarðarins og á því svæði voru níu skipsflök sem eru öll að vísu frá 20. öld.“ Eitt skipanna var þó smíðað á 19. öld og var upphaflega herskip en síðar notað sem tunnugeymsla fyrir síldartunnur. Mikill þaragróður sást á svæðinu enda er það búsvæði seiða. Meðal minja á hafsbotni á Siglufirði er danska herskipið Tordenskjold sem síðar var nýtt sem tunnugeymsla á síldarárunum.arnar þór egilsson og heimir sigurður haraldsson „Svo eigum við eftir að klára ytri hluta fjarðarins og stefnum á að gera það í haust eða á næsta ári.“ Ummerki um snjóflóðið Árið 1919 féll snjóflóð á svæðinu sem tortímdi síldarverksmiðju við fjörðinn. Ragnar og hans teymi sáu ummerki snjóflóðsins á hafsbotni. „Við köfuðum og mældum upp svæðið fyrir framan þessa síldarverksmiðju, þar sem hún hafði áður staðið. Þar sá maður á hafsbotni til dæmis ummerki snjóflóðsins. Mikið af grjóti og alls konar vélasamstæður, brak og múrsteinar úr byggingunum í sjónum þarna fyrir framan.“ Heimir Sigurður Haraldsson og Ragnar Edvardsson við rannsóknir á neðansjávarminjum á Siglufirði.arnar þór egilsson og heimir sigurður haraldsson Varðveisla neðansjávar betri en menn hafa haldið Þegar er búið að mæla með sömu aðferðarfræði svæði við sundin í Reykjavík auk annarra verslunarstaða á landinu. „Þetta bætir við okkar þekkingu í sambandi við ástand minja neðansjávar. Það hefur komið í ljós að varðveisla neðansjávar er miklu betri en menn hafa ímyndað sér. Skip varðveitast lengur og svo er miklu meira á hafsbotninum heldur en menn ímynda sér og þá sérstaklega fyrir framan svona stað eins og Siglufjörð þar sem er mikil sjávartengd starfsemi.“ Mikilvæg þekking öðlist Ragnar segir vinnuna mikla viðbót við þekkingu okkar á hafsvæðinu. „Hvað það er mikið í hafinu við þessa staði og hvað það er mikilvægt að kortleggja þessi svæði.“
Fornminjar Fjallabyggð Mest lesið Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Vance biðlar til ungra reiðra manna Erlent Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira