Atvinnuhúsnæði á Ísafirði rýmt eftir snjóflóð Rýma þurfti atvinnuhúsnæði á Ísafirði eftir að snjóflóð féll í Seljalandshlíð í morgun. Áfram er í gildi óvissustig vegna snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum og Norðurlandi og þá eru gular viðvaranir í gildi vegna veðurs á Vestanverðu landinu. Innlent 17.3.2026 11:52
Ólafsfjarðarmúla lokað vegna snjóflóðs Ólafsfjarðarvegi við Ólafsfjarðarmúla á milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar hefur verið lokað vegna snjóflóðs. Innlent 16.3.2026 20:20
Aldrei séð flóð falla á þessum stað á átján ára ferli Gestur Hansson, snjóflóðaeftirlitsmaður á Siglufirði, segir veðrið á Siglufirði að ganga niður og það hafi verið bærilegt í nótt. Innlent 16.3.2026 08:47
Loka veginum til morguns vegna snjóflóðs Vegagerðin hefur lýst yfir hættustigi á Siglufjarðarvegi vegna snjóflóðahættu. Eitt snjóflóð féll á veginn og verður lokað um umferð fram á morgundag. Innlent 7. mars 2026 11:58
Selja húsnæði Vélfags á Ólafsfirði Verkstæði tæknifyrirtækisins Vélfags á Ólafsfirði hefur verið selt með fyrirvara. Fasteignasali segir að samþykki bæði lánastofnunar og utanríkisráðuneytis þurfi áður en salan getur gengið í gegn. Viðskipti innlent 24. febrúar 2026 13:56
Rafmagnslaust á Siglufirði Rafmagnslaust hefur verið á Siglufirði frá um klukkan þrjú. Bilanaleit stendur yfir. Innlent 12. febrúar 2026 15:35
Hætta á snjóflóðum til fjalla í Eyjafirði Ástæða er fyrir fólk að fara varlega á ferð um brattlendi í Eyjafirði þar sem snjóflóð hafa fallið síðustu daga. Innlent 19. desember 2025 14:31
Tekur við rekstri Hornbrekku á Ólafsfirði Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) hefur verið falið að taka við rekstri hjúkrunarheimilisins Hornbrekku á Ólafsfirði í Fjallabyggð, í kjölfaruppsagnar Fjallabyggðar á samningi um rekstur heimilisins. Innlent 9. desember 2025 10:02
Skilur vonbrigðin en hafnar því að hafa tekið óupplýsta ákvörðun Innviðaráðherra hafnar því að ákvörðun um breytta forgangsröðun jarðganga hafi ekki verið tekin á upplýstan hátt. Hann skilji vonbrigði samfélagsins fyrir austan en segir að með nýrri forgangsröðun sem boðuð er með samgönguáætlun sé ekki verið að slá Fjarðarheiðargöng út af borðinu. Stofnun innviðafélags um stórframkvæmdir skapi forsendur til að ráðast hraðar í stór samgönguverkefni en verið hefur. Innlent 9. desember 2025 09:12
Breytt forgangsröðun jarðganga Mikil umræða hefur skapast um nýja samgönguáætlun undanfarna daga, sérstaklega vegna breyttrar forgangsröðunar jarðganga. Ég hef fullan skilning á þeim vonbrigðum sem þessi breyting hefur valdið í samfélaginu eystra. Skoðun 9. desember 2025 09:00
Segir göng undir Fjarðarheiði ekki fjárhagslega forsvaranleg Ríkisstjórnin er einhuga um að breyta forgangsröðun jarðganga og setja Fljótagöng í fyrsta sæti og hafa þingflokkar stjórnarinnar samþykkt tillöguna. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir að Fjarðarheiðargöng hafi ekki verið fjárhagslega forsvaranleg. Innlent 3. desember 2025 21:10
Fljótagöng sett í forgang Fljótagöng, Fjarðagöng, Súðavíkurgöng og Miklidalur og Hálfdán verða sett í forgang í nýrri jarðgangaáætlun sem kynnt verður í dag á fundi innviðaráðherra þar sem hann kynnir samgönguáætlun fyrir 2026 til 2040. Undirbúningur við næstu jarðgöng hefst 2026 og verður byrjað að bora 2027. Innlent 3. desember 2025 10:30
Áköf undirskriftakeppni hafin vegna jarðganga Áköf keppni eru hafin í söfnun undirskrifta milli stuðningsmanna tveggja mismunandi jarðgangakosta á Austurlandi, annarsvegar Fjarðarheiðarganga og hinsvegar Fjarðaganga. Samtímis býður Vegagerðin út verkhönnun Fljótaganga, jarðganga á Norðurlandi, sem gæti bent til þess að þau verði næst í röðinni og tekin fram fyrir göng á Austfjörðum. Innlent 15. nóvember 2025 20:10
Vegagerðin býður út for- og verkhönnun Fljótaganga Vegagerðin hefur boðið út for- og verkhönnun Fljótaganga, göngum sem ætlað er að tengja Siglufjörð við Fljótin. Um er að ræða 24 kílómetra vegagerð og 5,3 km löng jarðgöng. Innlent 14. nóvember 2025 13:33
Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Ólafsfjarðarmúla Óvissustig vegna snjóflóðahættu á veginum um Ólafsfjarðarmúla tekur gildi klukkan tíu í kvöld. Innlent 21. október 2025 20:52
Slökkvistarf stóð yfir í þrettán klukkutíma Slökkvistarf tók í allt um þrettán klukkustundir eftir að eldur kom upp í iðnaðarhúsnæði á Siglufirði síðastliðið mánudagskvöld. Þá tók við bruna- og öryggisvakt og hefur slökkviliðið í Fjallabyggð nokkrum sinnum þurft að fara og slökkva í glóð og eldhreiðrum eftir brunann. Innlent 16. október 2025 06:50
„Mjög slæmt og erfitt að horfa upp á svona“ Mikill eldur kom upp í húsnæði Primex á Siglufirði í gærkvöldi og vinnur slökkviliðið enn að því að tryggja vettvang. Framkvæmdastjóri Primex segist hryggur vegna atviksins en um mikilvægasta húsnæði fyrirtækisins er að ræða. Innlent 14. október 2025 12:24
Enn verið að slökkva í síðustu glæðunum Slökkvilið Fjallabyggðar er enn að slökkva í síðustu glæðunum í húsnæði Primex á Siglufirði en mikill eldur kom upp í húsinu í gærkvöldi. Innlent 14. október 2025 06:56
Eldur logar á Siglufirði Eldur kviknaði í húsnæði Primex á Siglufirði um klukkan átta í kvöld. Enginn er talinn í hættu en allt tiltækt slökkvilið er á vettvangi. Innlent 13. október 2025 21:01
Opnum Tröllaskagann Á haustin fellur lífið gjarnan í einhverskonar rútínu og það á einmitt við um Alþingi sem hefur hafið störf á þessu haustþingi og enn og aftur er samgönguáætlun á dagskrá, en fyrri ríkisstjórn tókst ekki að klára hana áður en til kosninga kom í lok ársins 2024. Skoðun 8. október 2025 06:30
Hyggst gera tilraun með lögregludróna í héraði Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra hyggst ráðast tilraunaverkefni til tveggja ára þar sem drónar verða notaðir og sendir á vettvang á stöðum í umdæminu þar sem löggæsla er ekki mönnuð allan sólarhringinn. Innlent 21. september 2025 07:03
Neysluvatnið óhreint eftir að aurskriða féll Aurskriða í Brimnesdal hefur gert það að verkum að neysluvatn er óhreint víða í Fjallabyggð. Innlent 14. september 2025 16:17
Lögregla hafi hlaupið á sig á Siglufirði: „Þetta eru einstök prúðmenni“ Athafnamaðurinn Róbert Guðfinnsson furðar sig á viðbrögðum lögreglu á Siglufirði í gær, þegar fimm voru handteknir vegna ætlaðrar líkamsárásar. Sérsveit Ríkislögreglustjóra var kölluð til en Róbert segir að um slys hafi verið að ræða. Lögreglumaður segir þó ljóst að um slagsmál hafi verið að ræða. Innlent 5. september 2025 16:59
Þremur sleppt úr haldi og brotaþoli útskrifaður Tveir eru enn í haldi Lögreglunnar á Norðurlandi eystra vegna líkamsárásar á Siglufirði í gærkvöldi. Fimm voru handteknir í aðgerðum lögreglu. Innlent 5. september 2025 09:33