Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Árni Sæberg skrifar 17. júlí 2026 12:49 Hjólið brann til kaldra kola. tia.is/Ómar Geirsson Bifhjólakappinn Ómar Geirsson telur að bikblæðing hafi orðið til þess að eldur kviknaði í bifhjóli hans, sem hafði skömmu áður staðist ástandsskoðun með glæsibrag.
Fjallað var um brunann í fyrradag en þá var Ómar á leið frá Akureyri heim til Siglufjarðar eftir að hafa látið ástandsskoða bifhjólið, sem er af gerðinni Honda Goldwing og árgerð 1988. Ómar hafði keypt hjólið skömmu áður. Ómar var til viðtals í Bítinu á Bylgjunni í morgun og sagðist í aðdraganda brunans hafa keyrt hjólið frá Reykjavík til Siglufjarðar og frá Siglufirði í ástandsskoðunina á Akureyri. Sá akstur hafi allur gengið eins og í sögu. Blæðing á veginum Svo klárarðu þessa ástandsskoðun og keyrir frá Akureyri til Siglufjarðar. Hvað gerist þá? „Við erum svona að giska á að það hafi sest tjara á afturbremsuna. Það var dálítið mikil blæðing á veginum og allavega festist hún fyrir rest. Það þyngdist á hjólinu þegar ég var á leiðinni upp brekkuna á Hámundarstaðarhálsi og þar ákvað ég að stoppa.“ Hann telji ekki að bikblæðing hafi verið á mjög löngum kafla á leiðinni enda hafi hann keyrt sömu leið í ástandsskoðunina og engin tjara hafi sést undir hjólinu í henni. „Það sást bara þessi venjulega Héðinsfjarðardrulla neðan á hjólinu.“ Telur að kviknað hafi í bremsuvökva Þegar hann hefði stöðvað hjólið hafi hvorki verið hægt að hreyfa það fram né aftur og ljóst að bremsurnar væri pikkfastar. Örskömmu seinna hafi eldur kviknað í því. Í hverju kviknaði þá fyrst? „Ég þori náttúrulega ekki að fullyrða það en það er sem sagt undir hjólinu aftanverðu, ég reikna með að það hafi farið bremsuslanga, eða eitthvað svoleiðis, og kviknað í bremsuvökvanum.“ Á örskotsstundu hafi hjólið verið orðið alelda en hann hafi þó ekki verið í mikilli hættu sjálfur, enda hafi hann stigið af hjólinu um leið og reyk fór að leggja frá því.
Bifhjól Akureyri Fjallabyggð Slökkvilið Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Fleiri fréttir Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Sjá meira