Körfubolti

Don Nelson látinn

Valur Páll Eiríksson skrifar
Myndin er frá því að Nelson þjálfari Dallas árið 2001. Hann var þjálfari liðsins þegar Jón Arnór Stefánsson gekk í raðir þess árið 2003.
Myndin er frá því að Nelson þjálfari Dallas árið 2001. Hann var þjálfari liðsins þegar Jón Arnór Stefánsson gekk í raðir þess árið 2003. Ronald Martinez /Allsport

Don Nelson, næst sigrahæsti þjálfari í sögu NBA-deildarinnar í körfubolta, er látinn 86 ára að aldri.

Nelson er goðsögn í bandarískum körfubolta fyrir starf sitt bæði sem leikmaður og þjálfari.

Hann þjálfaði í 31 leiktíð í NBA-deildinni með fjögur lið; Milwaukee Bucks, Golden State Warriors (tvisvar), New York Knicks og Dallas Mavericks á árunum 1976 til 2010.

Hann var þjálfari í 2.398 leiki í deildinni og lauk þjálfaraferlinum með árangurinn 1.335-1.063.

„Á sunnudagsmorgun fór ástkær eiginmaður okkar, pabbi, afi og langafi, Don Nelson, friðsamlega til að vera hjá Drottni, umkringdur ástríkri fjölskyldu sinni,“ sagði fjölskylda Nelsons í yfirlýsingu, samkvæmt Marc Stein, fréttamanni NBA.

„Í síðustu viku hans umkringdu vinir og fjölskylda hann kærleika, deildu blessun vináttu hans og rifjuðu upp dýrmætar minningar.“

Nelson tókst ekki að fagna NBA-meistaratitli sem þjálfari en hann vann fimm titla á ellefu leiktíðum sem leikmaður með Boston Celtics á árunum 1965 til 1976. Hann spilaði einnig fyrir Chicago Zephyrs og Los Angeles Lakers árin 1962 til 1965.

Celtics lagði treyjunúmer hans, númer 19, til hliðar árið 1978. Hann spilaði alls 14 leiktíðir í NBA-deildinni.

Jón Arnór Stefánsson lék undir stjórn Nelson þegar hann var leikmaður Dallas Mavericks árin 2003 og 2004.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×