Ákærður fyrir að nauðga stúlku í heitum potti fyrir rúmum áratug Jón Þór Stefánsson skrifar 10. ágúst 2026 14:56 Atvikin hófust í heitum potti. Getty Karlmaður hefur verið ákærður fyrir að nauðga fjórtán ára gamalli stúlku í nóvember árið 2015.
Samkvæmt ákæru sem fréttastofa hefur undir höndum hófust atvik málsins í heitum potti, líklega í einkaeigu frekar en á sundstað ætluðum almenningi. Þar hafi maðurinn kysst stúlkuna tungukossi, og farið með hönd sína undir sundbuxur hennar og káfað á berum kynfærum hennar og stungið fingri í leggöng hennar. Stúlkan hafi þá reynt að komast undan manninum, en hann elt hana inn á baðherbergi í húsi við heita pottinn. Þar er maðurinn sagður hafa komið aftan að henni, losað sundtopp hennar, og káfað á berum brjóstum hennar og dregið niður sundbuxur hennar. Þá hafi hann reynt að þrönga getnaðarlimi sínum í leggöng stúlkunnar. Með þessari meintu háttsemi er maðurinn sagður hafa nýtt sér yfirburðarstöðu sína gagnvart stúlkunni, sem var líkt og áður segir fjórtán ára gömul. Þess er krafist fyrir hönd stúlkunnar, sem mun núna vera orðin fullorðin, að maðurinn greiði henni fimm milljónir króna í miskabætur. Málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Norðurlands eystra.
Dómsmál Kynferðisofbeldi Lögreglumál Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Fleiri fréttir Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Sjá meira