Er skólinn að kenna barninu þínu að lesa? Ertu viss? Andri Þorvarðarson skrifar 11. ágúst 2026 13:03 Nýverið bárust fregnir af því að menntamálaráðherra hefði ákveðið að leggja niður bókstafaeinkunnir í grunnskólum og taka upp tölustafina á ný. Fáheyrt er að ákvarðanir ráðherra njóti álíka vinsælda því skoðanakannanir hafa sýnt að hátt í 90 prósent þjóðarinnar vildi bókstafina burt. Reyndar voru ekki allir sáttir, þannig sagði varaborgarfulltrúinn Stefán Pálsson að „þeir foreldrar sem ekki geta skilið einkunnakerfi með bókstöfum, plúsum og mínusum, eru mun stærra þjóðfélagslegt áhyggjuefni en einkunnakerfið sjálft.“ Ég tel Stefáni það til tekna að hann sýnir þarna pólitískt hugrekki, því stjórnmálamaður þarf vissulega kjark þegar hann ýjar að því að þorri kjósenda séu fæðingarhálfvitar. Ég vil þó meina að bókstafirnir séu að vissu leyti hafðir fyrir rangri sök því það hefði átt að vera létt verk að búa til auðskiljanlegt bókstafakerfi þar sem bókstafirnir samsvara vissri prósentueinkunn. Þess í stað fengum við vita vonlausan einkunnakvarða sem byggðist á farsakenndum hæfniviðmiðum og minnti helst á Jackson Pollock málverk; því fór sem fór. Tíminn mun leiða í ljós hvernig tekst til með einkunnabreytinguna en á þessum tímamótum vil ég minna á að einkunnakerfið er einungis birtingarmynd þess mikla og djúpstæða vanda sem menntakerfið glímir við. Helsti vandinn er sá að allt of margir nemendur fara í gegnum tíu ára grunnskólanám án þess að geta lesið sér til gagns. Hvað veldur? Er vandamálið kannski ekki bara utanaðkomandi þættir, líkt og samfélagsmiðlar og sinnulausir foreldrar, heldur líka rangar áherslur í lestrarkennslunni? Í grunninn þá eru þrjár meginaðferðir í lestrarkennslu. Sú fyrsta er hljóðaaðferðin, þar sem skilningur á hljóðum orðanna er í forgrunni. Síðan er það heildaraðferðin, þar sem hljóðunum er ýtt til hliðar og í staðinn er lögð áhersla á merkingu orðanna og samhengi þeirra, meðal annars með aðstoð mynda. Blandaða aðferðin á svo að vera millivegurinn milli þessara fyrrnefndu nálgana; þetta síðastnefnda er sú hugmyndafræði sem hefur verið ríkjandi í íslenskri lestrarkennslu síðastliðinn aldarfjórðung. Rannsóknir hafa þó leitt í ljós að hreina hljóðakennslan er eina aðferðin sem virkar sem skyldi. Vísindamenn hafa meðal annars rannsakað augnhreyfingar og heilastarfsemi fólks við lestur og niðurstaðan er skýr: Hljóðskilningur er grundvöllur þess að geta lesið. Þvert á það sem ýmsir menntaspekingar vilja meina þá er okkur það ekki eðlislægt að læra að lesa (ólíkt því að læra að tala) og því þurfa nemendur að hafa hljóðin að baki bókstöfunum á hreinu. Vanalega munu þeir nemendur sem eru sterkir í lestri þó átta sig á hljóðum orðanna burtséð frá því hvaða aðferð þeim stendur til boða. Því er ekki að heilsa fyrir nemendur í viðkvæmum hópum, líkt og þeim sem glíma við lesblindu eða hafa annað móðurmál. Þessir nemendur verða að fá mikla og markvissa hljóðakennslu. Ekki nóg með það heldur geta hinar aðferðirnar jafnvel verið skaðlegar, því nemendur sem læra út frá þeim temja sér oft slæmar lestrarvenjur þar sem þeir eru í raun að giska á merkingu orðanna. Vestanhafs þá hafa einhverjir helstu boðberar blönduðu aðferðarinnar nú viðurkennt að þeir hafi vanrækt hljóðaþáttinn í nálgun sinni og eru farnir að innleiða hann í meira mæli. Kannski er það ekki furða þegar rannsóknir sýna að hátt í helmingur þeirra nemenda sem lærir með blönduðu aðferðinni nær ekki sæmilegri lesfærni. Vissulega eru íslenskir grunnskólar að kenna hljóðin en gallinn við blönduðu aðferðina er sá að hljóðaþátturinn á það til að verða útvatnaður eða jafnvel gleymast. Því er það fagnaðarefni að ýmsir skólar eru farnir að leggja meiri áherslu á hljóðakennsluna. Þessi nálgun þykir kannski ekki „sexí“ en hún virkar. Við ættum þó ekki að henda blönduðu aðferðinni út með öllu, þar má sannarlega finna gagnlega hluti, líkt og áherslunni á að nemendur séu umkringdir bókum í skólaumhverfinu, og þeim ættum við að halda. Þó er ljóst að við þurfum að gera ítarlega úttekt á lestrarkennslu hérlendis til að tryggja að hún sé í takt við tímann, ekki síst þegar mikil vöntun er á upplýsingum um raunverulega getu nemenda. Jafnvel þótt hljóðaaðferðin yrði innleidd til fulls í öllum grunnskólum þá þyrfti að fylgjast grannt með því hvort breytingarnar skili tilætluðum árangri; því er nauðsynlegt að hafa auðskiljanlegt einkunnakerfi þar sem hægt er að bera saman árangur ólíkra nemenda og skóla á marktækan hátt. Ég viðurkenni þó fúslega að þetta yrði ekki nein töfralausn. Við myndum áfram glíma við fjöldamörg vandamál í menntakerfinu, allt frá námsgagnaskorti til nýliðunarvanda kennara. Ég er engu að síður bjartsýnn á að ef við náum að breyta lestrarkennslu hér á landi til betri vegar þá mun okkur líka takast að glíma við allt hitt. Því þegar eitt skref er loks stigið fram á við þá munu hin ekki virðast svo erfið. Höfundur er framhaldsskólakennari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Börn og uppeldi Mest lesið Hvað metum við mest? Halla Hrund Logadóttir Skoðun MR vinnur gegn markmiðum menntayfirvalda Óttar Kolbeinsson Proppé Skoðun Mannréttindi eiga ekki að vera pólitískt þrætuefni María Mist Þórs Sigursteinsdóttir Skoðun Á Ísland að segja sig úr UEFA? Theódór S. Halldórsson Skoðun Þjóðinni er að blæða út – og þetta á bara að reddast Vilhelm Jónsson Skoðun Er skólinn að kenna barninu þínu að lesa? Ertu viss? Andri Þorvarðarson Skoðun Ástæður þess að ég kýs NEI þann 29. ágúst Sigurður P. Sigmundsson Skoðun Hvar eigum við heima? Martha Árnadóttir Skoðun Mannréttindi eru ekki gjöf stjórnvalda Jón Þorsteinn Sigurðsson Skoðun Hvernig er að eiga sæti við borðið Ásta Guðrún Helgadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Það er margt sem ég ekki skil Elinóra Inga Sigurðardóttir skrifar Skoðun Er skólinn að kenna barninu þínu að lesa? Ertu viss? Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Hvað metum við mest? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Tæknilausnir og lesblindir Guðmundur S. Johnsen skrifar Skoðun Mannréttindi eiga ekki að vera pólitískt þrætuefni María Mist Þórs Sigursteinsdóttir skrifar Skoðun MR vinnur gegn markmiðum menntayfirvalda Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar Skoðun Réttmæt kjörskrárvinnsla Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Látum ekki sumarið koma okkur aftur á óvart í Kópavogi Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Á Ísland að segja sig úr UEFA? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvar eigum við heima? Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Já er uppgjöf og Nei er ekki nóg Ágústa Árnadóttir skrifar Skoðun Hversu lengi eigum við að bíða? Kristín María Birgisdóttir skrifar Skoðun Akkeri og trygging fyrir Ísland Gunnar Örn Gunnarsson skrifar Skoðun Afborgunarlaus lán eru ekki neyðarúrræði – svar við dritdreifingu Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hörmuleg húsnæðisstaða ungs fólks á Íslandi Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki gjöf stjórnvalda Jón Þorsteinn Sigurðsson skrifar Skoðun Heilsuspillandi aðbúnaður fanga er dýrt stjórnunarlegt fúsk Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun 29. ágúst ‒ Fullveldið endurheimt? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Fyrsta jáið skiptir máli Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Atvinnulífið ætti að vilja sjá samninginn Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Upplýsingaóreiðan sem enginn virðist ætla að uppræta – opin spurning til Þorgerðar Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Einkunnir sem ekki er hægt að treysta og foreldrar sem eiga að bera ábyrgð Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Skoðun Endalok einkalífsins: Hið alsjáandi auga Finnur Ágúst Ingimundarson skrifar Skoðun Að semja gegn sjálfum sér Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Ástæður þess að ég kýs NEI þann 29. ágúst Sigurður P. Sigmundsson skrifar Skoðun Heimurinn brennur minna – en það er aðeins hálf sagan sögð hjá Lomborg Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ég ætla að treysta komandi kynslóðum Margrét Sveinsdóttir skrifar Skoðun Hvernig er að eiga sæti við borðið Ásta Guðrún Helgadóttir skrifar Skoðun Sumar án aðgerða Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson skrifar Skoðun Þjóðinni er að blæða út – og þetta á bara að reddast Vilhelm Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Mannréttindi eiga ekki að vera pólitískt þrætuefni María Mist Þórs Sigursteinsdóttir skrifar
Skoðun Afborgunarlaus lán eru ekki neyðarúrræði – svar við dritdreifingu Halldór Jörgen Olesen skrifar
Skoðun Upplýsingaóreiðan sem enginn virðist ætla að uppræta – opin spurning til Þorgerðar Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar
Skoðun Einkunnir sem ekki er hægt að treysta og foreldrar sem eiga að bera ábyrgð Sigvaldi Egill Lárusson skrifar
Skoðun Heimurinn brennur minna – en það er aðeins hálf sagan sögð hjá Lomborg Haukur Logi Jóhannsson skrifar
Skoðun Sumar án aðgerða Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson skrifar