Tók konu kyrkingartaki nóttina eftir dóm og verður lengur í haldi Jón Þór Stefánsson skrifar 11. ágúst 2026 12:51 Héraðsdómur Vesturlands féllst á kröfu lögreglunnar á Vesturlandi. Vísir/Vilhelm Karlmaður sem er grunaður um stórfellda líkamsárás sem beindist gegn sambýliskonu hans, nóttina eftir að hann hlaut dóm fyrir ofbeldi í garð hennar, þarf að sitja áfram í gæsluvarðhaldi, eða til fimmtudagsins 27. ágúst.
Í gæsluvarðhaldsúrskurði á hendur manninum segir að rannsókn málsins sé á lokastigi. Vísir greindi frá málinu í lok síðasta mánaðar. Aðfaranótt 7. júlí síðastliðins var lögreglu tilkynnt um öskur og læti frá heimili mannsins og konunnar. Á vettvangi greindi konan frá því að maðurinn hefði beitt hana ofbeldi, og var hún með sjáanlega áverka, meðal annars á hálsi, líkt og hún hafi verið tekin hálstaki. Sjá nánar: Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Hún greindi lögreglumönnunum frá því að maðurinn hafi verið reiður umrætt kvöld og ausið yfir hana fúkyrðum og hótunum. Því hafi hún læst sig inni í svefnherbergi. Hann hafi hins vegar sparkað upp hurðinni og komið inn til hennar. Þá hafi hann sest klofvega yfir hana og tekið hana kyrkingartaki þannig að hún missti andann, og taldi að hún hafi misst meðvitund um tíma. Þetta hafa varað í einhverjar mínútur en ekki sekúndur. Konan lýsti því að hún hafi þurft að berjast fyrir lífi sínu. Henni hafi alltaf tekist að ná andanum inn á milli, en misst hann jafnóðum. Hún hafi barist um og komist undan, sem endaði með því að féllu bæði úr rúminu og gólfið. Þá hafi hann aftur lagst á hana, tekið hana kyrkingartaki á ný, svo kýlt í andlitið og rifið í hár hennar. Líkt og áður segir átti þetta atvik sér stað nóttina 7. júlí, en daginn áður, 6. júlí, hlaut hann dóm í Héraðsdómi Vesturlands fyrir ofbeldi gegn konunni. Þá var hann dæmdur í eins árs fangelsi. Brotin sem hann var dæmdur fyrir voru framin frá því í nóvember í fyrra þangað til í mars á þessu ári. Dómurinn varðaði þrjú atvik, þar sem hann ýmist sló og sparkaði í hana, tók hana hálstaki, og dró hana eftir jörðinni. Og beitti öðru líkamlegu ofbeldi. Þrátt fyrir það er haft eftir konunni í gæsluvarðhaldsúrskurðinum að um sé að ræða alvarlegasta atvikið til þessa. Hún hafi raunverulega óttast um líf sitt.
Dómsmál Heimilisofbeldi Lögreglumál Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu Sjá meira