„Biðin er dýrust“ Bjarki Sigurðsson skrifar 13. ágúst 2026 20:55 Einar Bárðarson er framkvæmdastjóri SVEIT. Vísir/Anton Brink Dæmi eru um að veitingamenn þurfi að bíða í heilt ár eftir því að geta hafið rekstur vegna deilna við borgina. Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði (SVEIT) kallar eftir skýrum og hröðum samskiptum.
Í gegnum tíðina hafa fjölmargir veitingamenn stigið fram og lýst erfiðleikum við að hefja rekstur vegna þess langa tíma sem það tekur að fá öll tilskilin leyfi frá yfirvöldum. Dæmi eru um að aðilar á veitingamarkaði þurfi að bíða í marga mánuði eftir því að fá réttu leyfin. Til að mynda hafa Víkingapylsur á Laugavegi þurft að bíða í ár eftir því að fá að opna. Framkvæmdastjóri SVEIT segir mikla bið geta gert út af við rekstraraðila. „Það sem ég er að reyna að leggja áherslu á í málflutningi mínum hvað varðar leyfisveitingar almennt, hvort sem það er frá byggingarfulltrúa, heilbrigðiseftirliti eða öðru stjórnvaldi, er að málsmeðferðin sé skýr, hröð og örugg. Það breytir engu hvort svarið sé nei eða já heldur að svarið berist hratt og örugglega. Biðin er dýrust og það framleiðir enginn neitt í biðinni. Hún er engum til gagns,“ segir Einar. Verði eitthvað að fylgja nei-inu Athugasemdir í bransanum eigi oft rétt á sér og geta varðað brunavarnir, ranga umsókn, heilbrigðiskröfur og fleira. Einar segir hið opinbera hins vegar geta verið mun skýrara. „Í staðinn fyrir að segja „nei“ að segja „nei, mig vantar þetta“ eða þar fram eftir götunum. Lögin og reglugerðirnar breytast eins og tíðarandinn og þá verður maður að gera kröfu um lágmarks leiðbeiningaskyldu,“ segir Einar. Samtökin hafi átt í ágætis samtali við heilbrigðiseftirlitið en það verði að hraða ferlinu. „Við erum ekki að biðja um afslætti eða að það eigi að létta á einhverjum kröfum. Það besta fyrir veitingageirann eru skýrar og ábyrgar kröfur og að allir fari eftir sömu leikreglum. Við erum að óska eftir betri og hraðari málsmeðferð,“ segir Einar.
Stjórnsýsla Reykjavík Heilbrigðiseftirlit Veitingastaðir Mest lesið Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Viðskipti innlent Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Viðskipti innlent Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Viðskipti innlent Kalla inn pylsur vegna prentvillu Neytendur „Biðin er dýrust“ Viðskipti innlent Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Viðskipti innlent Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Viðskipti innlent Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Viðskipti innlent Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Viðskipti innlent Methagnaður norska olíusjóðsins Viðskipti erlent Fleiri fréttir „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Sjá meira