Vilt þú að Ísland ábyrgist 250 ma.kr. af skuldum ESB? Eiríkur S. Svavarsson skrifar 16. ágúst 2026 13:03 Mjög alvarleg skuldastaða Evrópusambandsins hefur lítið rými fengið í allri umræðunni fyrir komandi þjóðaratkvæðagreiðslu. Í henni felst veruleg áhætta fyrir Ísland verði landið aðildarríki að sambandinu. Samkvæmt 47. gr. Lissabon-sáttmálans (SESB), grunnlöggjöf ESB, er sambandið sjálfstæð lögpersóna. Það þýðir að ESB getur sem slíkt gert alþjóðlega samninga, gerst aðili að alþjóðastofnunum en jafnframt stofnað til skulda í eigin nafni. Ákvæðið kom til sögunnar með sáttmálanum sem tók gildi 1. desember 2009. Mikilvægt er að greina á milli skulda aðildarríkja ESB og þess sjálfs. Aðildarríkin eru ábyrg fyrir sínum skuldum, eins og 125. gr. sáttmálans (SSESB) felur í sér, en sambandið getur sjálft stofnað til skulda að uppfylltum ákveðnum formskilyrðum. Á þeim 16 árum sem ESB hefur verið sjálfstæð lögpersóna hefur sambandið stofnað til verulegra skulda og mun án efa efna til frekari skuldasöfnunar í framtíðinni. Til þessara skulda hefur aðallega verið stofnað með útgáfu skuldabréfa. Uppistaðan í skuldum ESB má rekja til tveggja stórra skuldapakka. Stærri skuldapakkinn af þessum tveimur, NextGenerationEU (NGEU), var samþykktur sumarið 2020. Sögulegur björgunarpakki vegna Covid-19 sem var ætlað að reisa efnahag Evrópu við eftir heimsfaraldurinn en jafnframt að nútímavæða álfuna til framtíðar. Að núvirði nema skuldir ESB vegna þessa pakka heilum 806,9 milljörðum evra sem að stærstum hluta voru fjármagnaðar með sameiginlegri skuldabréfaútgáfu sambandsins á mörkuðum. Hluti þessa pakka (395 ma. evra) er endurlánaður til aðildarríkja en þó er stærri hluti hans í formi styrkja. Núverandi áætlanir ESB gera ráð fyrir að endurgreiðslur þessa skuldapakka sambandsins hefjist 2028 og ljúki eigi síðar en 2058. NGEU markaði sannarlega fordæmi í átt að varanlegri sameiginlegri skuldsetningu sambandsins. Hinn skuldapakkinn lýtur að afar víðtækri fjárhagslegri aðstoð ESB við Úkraínu allt frá upphafi stríðsins í febrúar 2022. Samkvæmt opinberum gögnum framkvæmdastjórnar sambandsins er fjárhagsaðstoðin við Úkraínu fjármögnuð í gegnum stóra lánapakka þar sem framkvæmdastjórnin hefur farið út á alþjóðlega fjármálamarkaði og tekið lán, einkum með útgáfu skuldabréfa. Þessum fjármunum hefur svo verið ráðstafað til Úkraínu ýmist í formi beinna styrkja, með ýmis konar neyðar- og hernaðaraðstoð, með víkjandi lánum eða sérstaklega hagstæðum lánum með lágum vöxtum og löngum afborgunartíma. Ekki sér fyrir endann á fjárhagsaðstoð ESB við Úkraínu og því útilokað að segja til um það nú hve hár þessi skuldapakki sambandsins verður að lokum. Aðstoðin við Úkraínu hefur verið fjármögnuð á margvíslegan hátt. Einkum með langtímafjárlögum ESB, með sérstökum lántökum sambandsins en einnig með beinum fjárframlögum frá einstökum aðildarríkjum. Um mitt ár 2026 nema heildarskuldir ESB og aðildarríkja vegna Úkraínu samtals 200,4 milljörðum evra. Samkvæmt nýjustu gögnum og úttektum frá Evrópuþinginu og hagrannsóknastofnuninni Kiel Institute (Ukraine Support Tracker) standa stofnanir ESB beint fyrir tæplega helmingi upphæðarinnar eða um 90 milljörðum evra. Af þessu sést að bara þessir tveir stóru skuldapakkar ESB nema því rúmlega 900 milljörðum evra. En af hverju skiptir þetta máli með tilliti til Íslands? Þegar ríki gerist aðili að ESB gengur það í sambandið með öllum réttindum og skyldum sem því fylgir á þeim tímapunkti. Í því felst að aðildarríkin, þ.m.t. hið nýja aðildarríki, eru ábyrg fyrir þeim skuldum sem ESB hefur stofnað til í eigin nafni. Komi til þess að Ísland gerist aðili að sambandinu ber það því ábyrgð á sínum hluta þessara skulda. Við afmörkun á umfangi þessarar ábyrgðar þarf að hafa í huga að langstærstur hluti fjáröflunar sambandsins byggir á vergum þjóðartekjum (GNI) sem eru hlutfallslega mjög háar í tilviki Íslands. Þannig yrði ábyrgð Íslands á þessum skuldum hlutfallega meiri en margra annarra stærri ríkja. Samkvæmt Hagstofu Íslands námu vergar þjóðartekjur Íslands 4.945 milljörðum króna árið 2025. Séu vergar þjóðartekjur Íslands settar upp með vergum þjóðartekjum núverandi 27 aðildarríkja ESB árið 2025 sést að hlutur Íslands nemur 0,19% af heildinni það ár. Þannig má sjá að skuldbinding Íslands vegna skulda ESB á grunni tveggja framangreindra skuldapakka nemur ekki lægri tölu en 1,75 milljörðum evra eða sem nemur 250 milljörðum íslenskra króna. Með aðild að ESB gengst Ísland í ábyrgð fyrir þessari skuldbindingu. Fyrir slíka fjárhæð væri unnt að byggja rúmlega 30 ný hjúkrunarheimili með 130 rúmum hvert eða byggja hinn nýja Landsspítala aftur en núverandi kostnaðaráætlun hans er um 265 milljarðar króna. Hér skal þó ítrekað að skuldbinding er ekki sama og greiðsla. Framangreindur hluti Íslands í skuldum ESB þýðir ekki endilega að greiðslur falli beint á íslenska ríkið. Fyrir liggja ráðagerðir um að fjármagna björgunarpakkann vegna Covid-19 að hluta með tekjum af ETS viðskiptakerfinu og hinu nýja kolefnisjöfnunargjaldi (CBAM) sem eitt og sér staðfestir að þessi kerfi eru fyrst og fremst tekjuöflunarkerfi sem aðildarríkin þurfa sárlega á að halda eigi að takast að gera upp skuldir ESB. Óljósara er hvernig ESB sér fyrir sér að greiða skuldir sínar vegna aðstoðar við Úkraínu þó vaxtagreiðslur þeirra lána séu í bili einkum greiddar með vaxtatekjum af frystum eignum rússneskra aðila í Evrópu. En í ljósi hins gríðarlega hraða sem er á vexti skulda ESB sjálfs, skulda sem nema nú nærri 1.000 milljörðum evra á síðustu 16 árum, má ljóst vera að einhver þarf á endanum að greiða reikninginn. Þess er e.t.v. ekki langt að bíða að ESB fái skattlagningarvald beint á einstaklinga og fyrirtæki innan þess. Eitt er þó alveg víst. Þessar skuldir leiða til þess að aðildargjald Íslands að ESB verður talsvert hærra en umræðan í dag gerir ráð fyrir. Fyrir slíkt greiðum við hin hærri skatta. Höfundur er hæstaréttarlögmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir skrifar Sjá meira
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun