Messi skaut tvisvar í stöng á tveimur sekúndum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. ágúst 2026 23:17 Hlutirnir gengu ekki upp hjá Lionel Messi í fyrsta byrjunarliðsleiknum eftir að hann missti föður sinn. AP/Lynne Sladky Lionel Messi upplifði martraðadag í öðrum leik sínum eftir fráfall föður síns.
Messi klúðraði þriðju vítaspyrnu sinni í röð þegar Inter Miami tapaði þriðja leiknum í röð, nú 4-1 fyrir toppliði Nashville SC. Messi fékk tækifæri til að jafna metin í 1-1 fyrir Miami á 23. mínútu en sá skot sitt af vítapunktinum varið af Brian Schwake, markverði Nashville, sem varði lágt hægra megin við sig. Sergio Reguilón fylgdi á eftir og skoraði úr frákastinu en markið var dæmt af vegna þess að hann hljóp of snemma inn í teiginn eftir myndbandsdómgæslu. ⛔️🇦🇷 LIONEL MESSI REMATÓ DOS VECES CONTRA LOS PALOS EN EL DESCUENTO. pic.twitter.com/vHU0dGiwBf https://t.co/Gta1Pogzng— Ataque Futbolero (@AtaqueFutbolero) August 16, 2026 Þetta er í fyrsta sinn síðan 2014 sem Messi hefur ekki tekist að skora úr þremur vítaspyrnum í röð. Hann klúðraði báðum tilraunum sínum fyrir Argentínu á heimsmeistaramótinu í sumar, gegn Austurríki í riðlakeppninni og í 16-liða úrslitum gegn Egyptalandi. Þetta var fyrsta vítaspyrnan sem Messi klúðraði í MLS-deildinni síðan 13. september 2025 en hana má sjá hér fyrir ofan. Miami náði þó að jafna leikinn eftir að Andy Najar kom Nashville yfir á 17. mínútu á Geodis Park þegar Messi sendi boltann á Telasco Segovia, sem sýndi laglega takta áður en hann skoraði í uppbótartíma fyrri hálfleiks. En Nashville gekk frá leiknum snemma í seinni hálfleik. Hany Mukhtar, fyrrverandi verðmætasti leikmaður MLS-deildarinnar, skoraði tvö mörk, sitt hvoru megin við laglega hælspyrnu frá framherjanum Sam Surridge. That's three penalty misses in a row for Lionel Messi 😬❌ Telasco Segovia converted the rebound, but Inter Miami went on to lose 4-1 to Nashville. pic.twitter.com/INHwyn35gt— Match of the Day (@BBCMOTD) August 16, 2026 Messi varð sífellt pirraðri og kvartaði harðlega við dómarann yfir því að brotið hefði verið á honum í aðdraganda marks Surridge sem kom Nashville í 3-1, og fékk gult spjald fyrir vikið. Það að þetta væri ekki kvöldið hans Messi var aðeins staðfest í uppbótartíma seinni hálfleiks þegar hann skaut tvisvar í stöng á tveimur sekúndum og þegar honum tókst loks að koma boltanum í netið var markið dæmt af vegna rangstöðu. Hér fyrir ofan má sjá bæði þessi stamgarskot. Messi var aftur í byrjunarliðinu á laugardag í fyrsta sinn frá andláti föður síns, Jorge, fyrir viku. Eftir að hafa misst af tapinu gegn Monterrey kom hinn 39 ára gamli leikmaður af bekknum í tapinu gegn León á miðvikudag í síðustu viku. View this post on Instagram A post shared by La Gazzetta dello Sport (@gazzettadellosport)
Bandaríski fótboltinn Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti ÍBV samdi við bandarískan hermann Handbolti „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti Fékk drauminn uppfylltan eftir MND greiningu Sport Sjáðu markaveislur United og Bayern München Fótbolti United aldrei í vandræðum Fótbolti Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Fótbolti Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Körfubolti Róbert Frosti með slitið krossband og á leið í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Róbert Frosti með slitið krossband og á leið í aðgerð Sjáðu markaveislu hjá bæði Manchester United og Bayern München í gær Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Bakverðir til bjargar Frakkar vilja Infantino burt Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Fullkomin frumraun Ídu sem sló í gegn með þrennu Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Á ekki að snúast um karla gegn konum Stjórn Como gefur frá sér sína miða Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Nýr Camp Nou míglekur Sjáðu tvær þrennur og glæsilegt sigurmark Ødegaard Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Pressa á Blikum og skipulagið gagnrýnt Dagur Dan kom markmanninum í klandur „Gríðarleg vonbrigði“ Víkinga en stór áfangi í augsýn Dagskráin í dag: Manchester United snýr aftur í Meistaradeildina Harmsaga Mudryk heldur áfram Þessir dómarar dæma bikarúrslitin Dramatískt sigurmark lærisveina Heimis í umspilinu Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Evrópumeistararnir hófu titilvörn sína með pomp og prakt Sjá meira