Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Samúel Karl Ólason skrifar 17. ágúst 2026 11:29 Alex Murdaugh í dómsal á föstudaginn. AP/Tracy Glantz Ný réttarhöld gegn Alex Murdaugh munu ekki fara aftur fram í heimasýslu hans í Suður-Karólínu, fari þau yfir höfuð fram. Murdaugh var dæmdur árið 2023 fyrir að myrða eiginkonu sína og son í dómsmáli sem naut mikillar athygli um heiminn allan.
Sakfelling Murdaughs var felld niður af hæstarétti Suður-Karólínu í maí. Var það gert á þeim grunni að dómsritarinn í málinu hefði mögulega haft of mikil áhrif á kviðdómendur. Mögulegt er að ekki verði réttað yfir honum aftur. Dómritarinn heitir Becky Hill en hún hafði það hlutverk að halda utan um sönnunargögn í málinu og kviðdómendur. Hún er sögð hafa haft of mikil áhrif á kviðdómendur, meðal annars til að reyna að auka sölu bókar sem hún skrifaði um morðmálið. Bókin heitir „Behind the doors of justice: The Murdaugh murders“ eða „Bakvið dyr réttlætisins: Murdaugh morðin“. Bókin var tekin úr sölu eftir að Hill var sökuð um ritstuld. Hún var þar að auki sakfelld fyrir að ljúga að öðrum dómara um hvað hún sagði við kviðdómendur á sínum tíma. Sjá einnig: Sakfellingu Murdaughs snúið við og stefnir í ný réttarhöld Í dómsal í Suður-Karólínu á föstudaginn komst dómari að þeirri niðurstöðu að ekki yrði rétt yfir Murdaugh í Colleton-sýslu, þar sem Murdaugh átti heima og réttarhöldin fóru fram síðast. Hún sagði málið hafa notið svo mikillar athygli og að Murdaugh væri svo þekktur og nátengdur mörgum í sýslunni að ómögulegt yrði að finna kviðdómendur í málinu þar, samkvæmt AP fréttaveitunni. Dómarinn, sem heitir Debra McCaslin, komst ekki að niðurstöðu um hvar réttarhöldin ættu að fara fram, verði frávísunarkröfu verjenda hans vísað frá. McCaslin tók ekki fyrir kröfu verjenda Murdaughs um að málinu yrði vísað frá. Þeir segja að leiðtogi rannsóknarinnar gegn Murdaugh hafi sagt kviðdómendum í ákærudómstól ósatt þegar hann var ákærður árið 2022 og vísa einnig til þess að annar rannsakandi hafi verið rekinn úr öðru starfi fyrir misferli. Verjendurnir ætla að leggja fram ítarlegri kröfu á næstunni. Hún snýst um það að áðurnefndur leiðtogi rannsóknarinnar hafi sagt kviðdómendum að blóð hefði fundist á skyrtu sem Murdaugh var klæddur, sem reyndist ekki rétt. Hinn rannsakandinn sem lögmennirnir ætla að kvarta yfir hélt því fram í dómsal að Murdaugh hefði greitt öðrum manni til að skjóta sig í höfuðið svo sonur hans gæti fengið líftryggingu sína. Það mun hafa mistekist. Eftir að rannsókninni lauk fór sá rannsakandi að vinna annars staðar en var rekinn fyrir misferli í starfi. Ekki laus úr fangelsi þó málið verði fellt niður Fari svo að morðmálið verði ekki tekið fyrir aftur mun Murdaugh, sem er 57 ára gamall, þó líklega ekki sleppa úr fangelsi þar sem hann hefur verið dæmdur fyrir önnur brot eins og umfangsmikinn fjárdrátt. Murdaugh játaði fjárdráttinn en hefur ávallt haldið því fram að hann hafi ekki framið morðin. Hann var dæmdur í fjörutíu ára fangelsi á alríkisstiginu fyrir að stela um tólf milljónum dala af skjólstæðingum sínum og lögmannafyrirtæki. Þá hafði hann einnig verið dæmdur í 27 ára fangelsi á ríkisstiginu í öðru fjársvikamáli. Það var til viðbótar við tvöfalda lífstíðardóminn sem felldur var út gildi í vor. Fékk heimsathygli Morðmál Murdaugh hefur vakið mikla athygli á heimsvísu á undanförnum árum. Eiginkona og sonur Alex Murdaugh, Maggie Murdaugh, 52 ára, og Paul, 22 ára, voru skotin til bana þann 7. júní 2021, nærri hundabúrum á stórri landareign fjölskyldunnar í Suður-Kaliforníu. Alex Murdaugh hafði samband við Neyðarlínuna umrætt kvöld og sagðist þá hafa komið að þeim látnum eftir um klukkustundar heimsókn til móður sinnar sem var með elliglöp. Rannsókn leiddi síðar í ljós að Maggie hafði verið skotin fjórum eða fimm sinnum með riffli en Paul var skotinn tvisvar með haglabyssu og með misstórum höglum. Enginn var handtekinn vegna málsins í rúmt ár en Murdaugh var að lokum ákærður fyrir morðin í júlí 2022. Morðvopnin fundust aldrei en tuttugu mánuðum eftir morðin kom í ljós að Murdaugh hafði logið um hvar hann hefði verið. Myndband sem fannst á síma sonar hans sýndi að hann var á staðnum þar sem morðin voru framin, fimm mínútum áður en talið er að þau hafi verið framin. Málflutningurinn gegn Murdaugh byggði að miklu leyti á því, þar sem lítið sem ekkert var um önnur sönnunargögn. Málið hefur lengi verið mikið milli tannanna á fólki, bækur hafa verið skrifaðar og fjallað hefur verið um það í fjölda hlaðvarpa. Þá hafa einnig verið gerðar heimildarmyndir um það en ein var sýnd á Netflix. Myndin snýr einnig að atviki frá 2019 þegar Paul Murdaugh varð valdur að bátaslysi þar sem ung kona, farþegi í bátnum, dó.
Bandaríkin Erlend sakamál Tengdar fréttir Murdaugh fær 27 ára dóm fyrir fjársvik gegn viðskiptavinum Bandaríski lögmaðurinn og morðinginn Alex Murdaugh hefur verið dæmdur í 27 ára fangelsi fyrir margvísleg auðgunarbrot á hendur fyrrverandi viðskiptavina sinna. Alls er hann þó sakaður um meira en hundrað auðgunarbrot gegn viðskiptavinum. 28. nóvember 2023 22:46 Síminn og spjaldtölvan tekin af Murdaugh Dæmdi morðinginn Alex Murdaugh hefur misst aðgang sinn að síma og spjaldtölvu. Það er eftir að lögmaður hans tók Murdaugh upp lesa úr dagbók sinni en upptökuna á að nota í heimildarmynd um mál hans. 31. ágúst 2023 13:49 Sátt náðst um miskabætur til handa fjölskyldu Beach Sátt hefur náðst um miskabætur til handa fjölskyldu Mallory Beach og annarra ungmenna sem voru um borð í bát í eigu Alex Murdaugh sem ekið var á brúarstólpa árið 2019. Murdaugh var nýlega fundinn sekur um að myrða eiginkonu sína og yngri son, Paul, sem var við stýrið á bátnum. 18. júlí 2023 10:02 Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Fleiri fréttir Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Sjá meira
Murdaugh fær 27 ára dóm fyrir fjársvik gegn viðskiptavinum Bandaríski lögmaðurinn og morðinginn Alex Murdaugh hefur verið dæmdur í 27 ára fangelsi fyrir margvísleg auðgunarbrot á hendur fyrrverandi viðskiptavina sinna. Alls er hann þó sakaður um meira en hundrað auðgunarbrot gegn viðskiptavinum. 28. nóvember 2023 22:46
Síminn og spjaldtölvan tekin af Murdaugh Dæmdi morðinginn Alex Murdaugh hefur misst aðgang sinn að síma og spjaldtölvu. Það er eftir að lögmaður hans tók Murdaugh upp lesa úr dagbók sinni en upptökuna á að nota í heimildarmynd um mál hans. 31. ágúst 2023 13:49
Sátt náðst um miskabætur til handa fjölskyldu Beach Sátt hefur náðst um miskabætur til handa fjölskyldu Mallory Beach og annarra ungmenna sem voru um borð í bát í eigu Alex Murdaugh sem ekið var á brúarstólpa árið 2019. Murdaugh var nýlega fundinn sekur um að myrða eiginkonu sína og yngri son, Paul, sem var við stýrið á bátnum. 18. júlí 2023 10:02