Atvinnuviðtal hjá ESB? Brynjar Níelsson skrifar 18. ágúst 2026 11:17 Samtökin Já til að sjá hafa vakið verðskuldaða athygli fyrir hugmyndaríkan áróður fyrir já-i í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst hagræðingu. Hafa þau m.a. lýst aðildarferlinu við atvinnuviðtal, fasteignakaup og að máta föt í fataverslun. Allt sé þetta sjálfsagt að gera, auðvitað fer maður í atvinnuviðtal áður en hann ræður sig til starfa, auðvitað skoðar maður fasteign áður en kaupsamningur er undirritaður og varhugavert að kaupa sér fatnað án þess að máta hann. En þessar samlíkingar eru hins vegar í raun ekki til þess fallnar að mæla með já-i í ágúst heldur einmitt nei-inu, þó að það hafa líklega ekki verið það sem Já til að sjá samtökin höfðu ætlað sér. Aldrei myndi mér nefnilega koma til hugar að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem mig langar ekki í. Ég myndi t.d. aldrei sækja um starf sem framkvæmdastjóri Pírata því að mig langar bara alls ekki til að starfa þar. Því síður myndi ég fara á opið hús í kofaskrifli á miðhálendinu. Nú eða að máta íþróttatopp. Það er nefnilega ekkert vit í því að eyða tíma og peningum í að skoða eitthvað sem mann langar alls ekki í, hvort sem um sé að ræða starf, fasteign, föt eða hnignandi ríkjasamband. Google til að sjá Í málflutningi já-sinna má einnig heyra þá lýsa furðu sinni yfir því þegar fólk segist ekki hafa neina trú á því að Ísland fái undanþágur frá grunnsáttmálum ESB sem engin önnur lönd hafa fengið (og mörg lönd þvertekið fyrir að Ísland fái, t.d. Holland og Írland). Vilja já-sinnar meina að þeir sem hafi þá skoðun hljóti að vera haldnir einhverri skyggnigáfu því að það sé einfaldlega ekki hægt að vita þessa hluti nema eftir áralangar aðildarviðræður við ESB, líkt og ESB hafi verið fundið upp í gær og enginn geti vitað nokkuð um hvað felst í aðild að ESB. Þeir líta alveg framhjá því að ESB samanstendur af 27 þjóðum og allskonar grundvallarlögum og reglum sem gilda um aðildarþjóðir og lítið mál er að skoða hvað ESB aðild þýðir. Enginn þarf ekki að segja já í ágúst til þess, dugar að fletta ESB upp í Google. Draumórar um fordæmalausar undanþágur Já-sinnar hafa þó ráð undir rifi hverju og í hvert sinn sem einhver bendir þeim á að það liggi alveg fyrir hvað aðild að ESB þýðir og engar varanlega undanþágur verði veittar. Þá er nefnilega bryddað upp á því að tala um að Ísland geti bara víst fengið varanlegar undanþágur frá öllum helstu kvöðum ESB, m.a. grundvallarreglum eins og sameiginlegu sjávarútvegsstefnuna eða landbúnaðarstefnunnar. Þá hefur verið gripið til þess að telja til hinar og þessar varanlegar undanþágur sem þjóðir hafa fengið á litlum og afmörkuðum sviðum, s.s. sérreglur um Álandseyjar þegar Finnland gekk í ESB. Þau dæmi sem nefnd hafa verið eru hins vegar allt annars eðlis en þær undanþágur sem já-sinnar telja að við gætum fengið í aðildarviðræðum. Fræðilegur ómöguleiki og pólitískur ómöguleiki Því skal þó haldið til haga að það er rétt hjá já-sinnum að það er ekki fræðilega ómögulegt að semja um varanlegar undanþágur frá öllu á milli himins og jarðar hjá ESB. Það helgast þó ekki af því að líklegt sé að Ísland hljóti þær undanþágur heldur af því að það er einfaldlega fátt í heiminum sem er fræðilega ómögulegt. Hvað er fræðilega mögulegt þýðir hins vegar ekki að það sé með nokkrum hætti raunhæft. Sem dæmi fyndist mér ekki óeðlilegt að segja að það sé ekki möguleiki á Flokkur fólksins fái 100% atkvæða í næstu Alþingiskosningum eða að ég verði valinn herra Ísland eða jafnvel ungfrú Ísland. Það er þó ekki ómögulegt í fræðilegum skilningi, enda er nánast allt tæknilega hægt, líka það sem er óraunhæft og í alla staði fráleitt. Þrátt fyrir að fræðilegur möguleiki á varanlegum undanþágum frá grunnreglum ESB sé vissulega til staðar þá er án nokkurs vafa pólitískur ómöguleiki fyrir hendi. Aðrar þjóðir innan ESB munu aldrei samþykkja þær undanþágur sem Íslendingar krefjast í aðildarviðræðum, en öll aðildarríki þurfa að samþykkja aðild Íslands. Sum þeirra hafa meira að segja nú þegar sagt það opinberlega, t.d. fulltrúar Hollendinga og Íra. Ég hef ekki áhuga á vegferð sem fyrirséð er að skili engu og enn síður ef hún er kostnaðarsöm og tímafrek. Þess vegna segi ég nei 29. ágúst. Höfundur er borgarfulltrúi í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Brynjar Níelsson Mest lesið Að virða niðurstöðu sem manni líkar ekki Erna Bjarnadóttir Skoðun Börnin eru ekki þau sem hafa brugðist, það er námsumhverfið sem hefur breyst Inga Henriksen Skoðun Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun The EU’s reduced attractiveness for prosperous countries Carl Baudenbacher Skoðun Fjölmiðlakreppan: Lýðræðishalli en ekki bara rekstrarvandi Stefán Jón Hafstein Skoðun Ferðaþjónustunni hent fyrir rútu hallalausra fjárlaga Njáll Trausti Friðbertsson Skoðun Helmingsafsláttur af mennskunni Arndís Þórarinsdóttir Skoðun Hvað borga ferðamenn fyrir nýtingu náttúru og innviða? Jóhannes Þór Skúlason Skoðun Ábyrgðin er okkar allra Valdimar Víðisson Skoðun Virðismiðuð velferðarþjónusta Finnur Pálmi Magnússon Skoðun Skoðun Skoðun Að virða niðurstöðu sem manni líkar ekki Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Börnin eru ekki þau sem hafa brugðist, það er námsumhverfið sem hefur breyst Inga Henriksen skrifar Skoðun Bætir tækni í kennslustofunni nám? Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin alls staðar Gauti Kristmannsson skrifar Skoðun Helmingsafsláttur af mennskunni Arndís Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Hvað borga ferðamenn fyrir nýtingu náttúru og innviða? Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Fjölmiðlakreppan: Lýðræðishalli en ekki bara rekstrarvandi Stefán Jón Hafstein skrifar Skoðun The EU’s reduced attractiveness for prosperous countries Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Ábyrgðin er okkar allra Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Hvar á gervigreind að vinna fyrir hið opinbera? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Ferðaþjónustunni hent fyrir rútu hallalausra fjárlaga Njáll Trausti Friðbertsson skrifar Skoðun Virðismiðuð velferðarþjónusta Finnur Pálmi Magnússon skrifar Skoðun Skuldadagar í Reykjavík Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Að þora að spyrja og þola svarið Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Um fitulag og burðarvirki – atlaga að velferð barna og unglinga í Reykjavík Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Stokkið á (barna)vagninn Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Opnum Skálafell Valdimar Breiðfjörð Birgisson skrifar Skoðun Allir ósáttir við PISA – en hvað er hægt að gera? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason skrifar Skoðun Loksins úr mínus í plús Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir skrifar Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Sjá meira
Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Skoðun Börnin eru ekki þau sem hafa brugðist, það er námsumhverfið sem hefur breyst Inga Henriksen skrifar
Skoðun Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Um fitulag og burðarvirki – atlaga að velferð barna og unglinga í Reykjavík Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir skrifar
Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun