Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Sigurgeir Þorkelsson og Bjarki Sigurðsson skrifa 18. ágúst 2026 12:18 Kristrún Frostadóttir segir að þegar allt verði tekið saman sé líklegra að árlegur kostnaður landsins við ESB-aðild sé sjö til átta milljarðar. Vísir/Einar Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir fundarferð sína um landið í aðdraganda þjóðaratkvæðis ganga vel og skapa tækifæri fyrir kjósendur að hittast, ræða málin og heyra skoðanir hver annars. Hún tekur fyrir þær háu tölur sem nefndar hafa verið um kostnað Íslands við aðild og segir upphæðina í raun mun lægri.
Bjarki Sigurðsson fréttamaður Sýnar ræddi við Kristrúnu sem er á ferð um landið. „Ég er að fara núna á fund fimm og sex í dag og verð á Patreksfirði í hádeginu. Svo verðum við í félagsheimilinu Brún í Bæjarsveit í Borgarfirðinum í kvöld. Það hefur verið góð mæting, góðar umræður og heilt yfir bara mjög uppbyggileg samtöl.“ Kristrún segir að kjósendur sem sæki fundina séu mislangt komnir í að ákveða sig. „Sumir koma með mjög sterkar skoðanir á málum, sumir eru svo til næst búnir að ákveða sig já eða nei, en það er líka talsvert af fólki sem er að velta fyrir sér hinu og þessu,“ segir Kristrún. Þannig skapi fundirnir aðstöðu fyrir fólk til að spyrja þessara spurninga. „Fólki er auðvitað annt um landið og er að velta fyrir sér auðlindamálum og fleira, en það var nú bara ein góð kona sem sagði við mig á Djúpavogi núna um daginn að hún hafi nú kannski í gegnum tíðina verið svolítill Bjartur í Sumarhúsum,“ greinir Kristrún frá en hún hafi nú farið að líta öðruvísi á málið. „Út af vaxtakostnaði og efnahagsmálum og öðru, þannig að fólk er greinilega búið að vera mjög hugsandi undanfarnar vikur.“ Hlustunarferð forsætisráðherra ekki án gagnrýni Fundaferð forsætisráðherra vakti harða gagnrýni stjórnarandstöðunnar og sagði formaður Sjálfstæðisflokksins meðal annars að um væri að ræða herferð Kristrúnar fyrir Já til að sjá. Upplag fundaferðarinnar hefur þó verið að Kristrún sé mætt til að hlusta á kjósendur. „Ég er auðvitað hlynnt þessum aðildarviðræðum og er að setja þetta meðal annars á oddinn út af því – en ég virði niðurstöðu þjóðarinnar og ég vil heyra hvað fólk hefur að segja. Þannig að ég hef auðvitað ýmislegt til málanna að leggja, áherslu á sannfæringu fyrir því að það séu gífurlega mikil tækifæri við að skoða hvað samningur við Evrópusambandið gæti falið í sér og að það væri ekki gott að útiloka slíkan valkost núna. En í lok dags þá er þetta val þjóðarinnar og við munum þurfa að virða þá niðurstöðu sem kemur, sama hvernig hún lítur út,“ segir Kristrún og bætir við: „En við þurfum að vita líka hvað það er sem er að drífa hana. Þrátt fyrir að maður sé sjálfur á ákveðinni skoðun þá er maður að stjórna í þágu þjóðar og kannanir geta lítið sagt manni um hvað það er sem drífur afstöðu fólks. Maður verður að fara út og tala við fólkið,“ segir ráðherrann ábúðarfullur. Þá sé líka gott fyrir fólkið sjálft að fara út, hitta fólk úr sínu nærsamfélagi og ræða málið. Umræður almennt uppbyggilegar „Það hafa verið mjög uppbyggilegar samræður og fólk er með jákvæðar spurningar, myndi ég segja. Það er kannski að velta fyrir sér ákveðnum hagsmunum en það er að nálgast þetta frá uppbyggilegri hlið og ég held að það sé líka hollt fyrir þá sem mæta sjálfir á þessa fundi að upplifa að umræðan, eins og hún birtist stundum í fjölmiðlum eða stundum á samfélagsmiðlum, hún er ekki endilega að taka mið af því hvernig þetta er við eldhúsborðið hjá fólki.“ Forsætisráðherra segir þjóðina vel ráða við að vera ósammála. „Þú getur verið með tvo einstaklinga í sal sem eru kannski ósammála, annar að segja já og hinn að segja nei, en geta vel talað saman. Og þetta sýnir það bara að Íslendingar eru fullfærir um að taka stórar ákvarðanir. Við höfum gert það í gegnum tíðina og flest af okkar framfaraskrefum hafa verið tekin á tímum þar sem fólk hefur tekist á, gert það málefnalega, en það hefur fært okkur áfram.“ Kristrún er hér ásamt Mark Rutte, framkvæmdastjóra Nató og forsætisráðherra Hollands á árunum 2010 til 2014. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm Eru milljarðarnir tveir, sjö eða fimmtíu? Umræða um upplýsingaóreiðu hefur aukist eftir því sem nær dregur kosningum. Auglýsing þar sem kjósendur eru spurðir hvort þeir vilji senda fimmtíu milljarða árlega til ESB hefur verið áberandi síðustu daga, meðal annars á auglýsingaskiltum á höfuðborgarsvæðinu. Kristrún segir að umræðan um fimmtíu milljarðana hafi náð inn á fundi sína. „Ég hef fengið svona spurningu, fólk er að velta fyrir sér hvort þetta geti verið satt. Þetta er auðvitað ekki tala sem nándar nærri því sem að gæti komið út úr þessum viðræðum. Þetta er tala sem er kannski nærri því að vera 7-8 milljarðar, en engu að síður tala sem mun ekkert liggja fyrir fyrr en löngu eftir að aðildarviðræðum er lokið.“ Umræðan sé þannig ótímabær en endurspegli á sama tíma þörf þess að myndaður sé vettvangur þar sem fólk geti rætt saman, augliti til auglitis. „Það er ekki tímabært að ræða þessa hluti, en auðvitað er stundum verið að einfalda umræðuna og það á líka við já-megin og þess vegna skiptir máli að við getum hist, rætt þessi mál með dýpt og yfirvegun og fólkið í landinu og þjóðin er sannarlega fær um það,“ segir forsætisráðherra að lokum.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Evrópusambandið Samfylkingin Vesturbyggð Borgarbyggð Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Rekstur hins opinbera Efnahagsmál Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira