Hip-hop sveitin Tha Alkaholiks í Iðnó í október Lovísa Arnardóttir skrifar 19. ágúst 2026 09:04 Hljómsveitin var stofnuð á tíunda áratugnum. Vísir/Getty Hip-hop sveitin Tha Alkaholiks heldur tónleika á Íslandi 7. október næstkomandi. Tónleikarnir fara fram í Iðnó og aðeins verða 300 miðar í boði.
Í tilkynningu segir að sveitin, sem einnig sé þekkt sem Tha Liks, standi saman af þeim J-Ro, Tash og DJ/pródúsernum E-Swift. „Tríóið kom fram á sjónarsviðið snemma á tíunda áratugnum í Los Angeles og skapaði sér fljótt sérstöðu innan hip-hop-senunnar með hráum takti, húmor, sterkum persónuleikum og einstökum hæfileika til að breyta tónleikum í partý,“ segir í tilkynningunni og að sveitin hafi frá upphafi verið þekkt fyrir mikla sviðsorku og óheflaða partýstemningu. „J-Ro og Tash skiptast á línum yfir takta E-Swift og mörkin á milli sviðs og salar eiga það til að hverfa hratt. Þetta eru ekki tónleikar þar sem fólk stendur aftast með krosslagðar hendur,“ segir Benedikt Freyr Jónsson skipuleggjandi hjá Liveproject, og að þessa stemningu muni fólk geta upplifað í Iðnó í október. „Það þýðir návígi við eina líflegustu hip-hop sveit sinnar kynslóðar og kvöld sem verður erfitt að endurtaka.“ Forsala á tónleikana hefst á Stubb.is í dag, miðvikudaginn 19. ágúst klukkan 10:00. Nánar um sveitina Frumraun The Alkoholiks, 21 & Over, kom út árið 1993 og hefur með tímanum öðlast klassískan sess innan West Coast og underground hip-hop. Þar má meðal annars finna lögin „Make Room“, „Likwit“ og „Only When I'm Drunk“. Viðburðurinn er skipulagður af Liveproject. Aðsend Tveimur árum síðar kom úr platan Coast II Coast, með lögum á borð við „Daaam!“ og „The Next Level“, og árið 1997 gaf sveitin út plötuna Likwidation. Þar héldu þeir áfram að þróa sinn einkennandi hljóm og fengu meðal annars Ol' Dirty Bastard úr Wu-Tang Clan með sér í lagið „Hip Hop Drunkies“. Síðar fylgdu plöturnar X.O. Experience árið 2001 og Firewater árið 2006. Árið 2025 sneru The Alkaholiks aftur með Daaam!, þar sem nýjar útgáfur af nokkrum af þekktustu lögum sveitarinnar mæta nýju efni.
Tónleikar á Íslandi Reykjavík Tengdar fréttir Tónleikum Yasiin Bey frestað með dags fyrirvara fram á haust Tónleikum Yasiin Bey, áður þekktur sem Mos Def, sem áttu að fara fram í Gamla bíó á morgun, laugardaginn 9. maí, hefur verið frestað til 10. september næstkomandi. Óviðráðanlegar aðstæður hjá rapparanum eru ástæðan fyrir frestuninni. 8. maí 2026 13:02 Joey Christ, Dóri DNA, og 7Berg í upphitun fyrir Yasiin Bey Joey Christ, Alexander Jarl, Yung Nigo, Drippin, Ruby Francis, Emilía Hugrún, Saint Pete, Daron Karl, Kzoba, 7Berg, Dóri DNA, Class B og Byrkir B koma öll fram í upphitun REW fyrir tónleika Yasiin Bey, áður Mos Def, í Gamla bíó á laugardaginn. 7. maí 2026 13:51 Mobb Deep kemur fram í KR-höllinni í mars Bandaríska hiphop-sveitin Mobb Deep kemur fram á Íslandi þann 24. mars næstkomandi. Tónleikarnir fara fram í húsnæði KR við Frostaskjól. Mobb Deep var stofnuð á tíunda áratugnum í New York og var hljómsveitin þá skipuð þeim Prodigy og Havoc. 20. nóvember 2025 09:16 Mest lesið Hvað veistu um… textana hans Bubba? Lífið Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Lífið Vel heppnuð þögn, misheppnaður Mahler Gagnrýni Sögufrægt verslunarhús til sölu Lífið Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Menning Lúpína verði fyrsta stopp fyrir veisluna eða afmælið Tíska og hönnun Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lífið Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi Lífið Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Lífið Meira til baka með Takk í Bónus og Hagkaup Lífið samstarf Fleiri fréttir Fjórtán manns hita upp fyrir Mos Def í Gamla bíó Lifa í draumi og heiðra Eyfa Laufey djammaði með Robyn og Troy Sivan HAM boða endalok alls Ein langlífasta tónlistarhátíð landsins hefst í sautjánda sinn Afþakkar Grammy-tilnefningu Miley losar sig við eftirnafnið Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu Highway 61 Revisited fagnar 61 árs afmæli Azealia Banks heldur tónleika í Austurbæjarbíói Sísí Ey snýr aftur eftir tíu ára fjarveru Myndaveisla: Leynigestir og innlifun á stórafmælistónleikunum Lag sem enginn söng á toppnum í Ástralíu Versace-ást Villa Vill kveikjan að lagi og skúlptúr Fór á fimm tónleika Ariönu Grande á viku Dimma búin að fylla í skarð Stebba Jak Gestafjöldi fjórfaldaðist á Kveldúlfi Kanye treður upp í Rússlandi Hip-hop sveitin Tha Alkaholiks í Iðnó í október Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Moroccanoil slítur samstarfi við Eurovision Hátíðin Kveldúlfur í annað sinn um helgina Heiður að endurvekja falda perlu Palla Eurovision haldið í Burgas í Búlgaríu Suki dásamar Laufeyju Konan sem malaði Stebba og Eyfa á leið til landsins Veðurvélin á leið á Hellissand fyrir almyrkvahátíð „Þetta er ólýsanleg tilfinning“ Sjá meira
Tónleikum Yasiin Bey frestað með dags fyrirvara fram á haust Tónleikum Yasiin Bey, áður þekktur sem Mos Def, sem áttu að fara fram í Gamla bíó á morgun, laugardaginn 9. maí, hefur verið frestað til 10. september næstkomandi. Óviðráðanlegar aðstæður hjá rapparanum eru ástæðan fyrir frestuninni. 8. maí 2026 13:02
Joey Christ, Dóri DNA, og 7Berg í upphitun fyrir Yasiin Bey Joey Christ, Alexander Jarl, Yung Nigo, Drippin, Ruby Francis, Emilía Hugrún, Saint Pete, Daron Karl, Kzoba, 7Berg, Dóri DNA, Class B og Byrkir B koma öll fram í upphitun REW fyrir tónleika Yasiin Bey, áður Mos Def, í Gamla bíó á laugardaginn. 7. maí 2026 13:51
Mobb Deep kemur fram í KR-höllinni í mars Bandaríska hiphop-sveitin Mobb Deep kemur fram á Íslandi þann 24. mars næstkomandi. Tónleikarnir fara fram í húsnæði KR við Frostaskjól. Mobb Deep var stofnuð á tíunda áratugnum í New York og var hljómsveitin þá skipuð þeim Prodigy og Havoc. 20. nóvember 2025 09:16