Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Lovísa Arnardóttir skrifar 19. ágúst 2026 09:31 Ljóst er að framkvæmdir muni taka nokkuð langan tíma. Vísir/Vilhelm Loka á leikskólanum Hagaborg í Vesturbæ Reykjavíkur í tvö ár. Börn og starfsfólk leikskólans færast yfir á leikskólann Grandaborg. Bæta á við færanlegri einingu við Grandaborg til að fjölga plássum en breytingin fækkar leikskólaplássum í Reykjavík tímabundið um 18 á meðan framkvæmdunum stendur.
Tilkynnt var í vor að ekki yrðu innrituð ný börn í leikskólann en í nýrri fundargerð leikskólaráðs kemur fram að fyrirhugaðar framkvæmdir séu viðamiklar og að loka þurfi leikskólanum í tvö ár „eftir því sem framkvæmdum miðar og að húsnæði leikskólans við Fornhaga 8 er fullklárað“ Fjallað var um það á Vísi í vor að ekki yrði innritað í fjóra leikskóla í haust, þar með talið Hagaborg. Fram kemur í tillögu skóla- og frístundasviðs að þegar elstu börnin í Hagaborg hafa lokið sinni leikskólagöngu, við lok þessarar viku, verði 75 börn í vistun í Hagaborg og lagt er til að þau muni sjálfkrafa færast frá Hagaborg til Grandaborgar frá og með 1. september 2026. Starfsfólk Hagaborgar verður þá samhliða þessum breytingum að starfsfólki Grandaborgar. Til stendur að setja færanlega einingu við Grandaborg á vorönn 2027 og verður þá unnt að fjölga plássum þar úr 75 í um 105. Þessi aðgerð mun því fækka plássum í leikskólum Reykjavíkur tímabundið um 18. Lokun og flutningar Töluvert rask hefur verið á leikskólastarfi í hverfinu síðustu ár. Grandaborg var lokað vorið 2024 eftir nokkra flutninga og framkvæmdir, og tók þá við endurnýjun á húsnæði sem lauk í mars 2026. Við opnun Grandaborgar var ljóst, samkvæmt tillögu skóla- og frístundasviðs, að fara þyrfti í töluverðar framkvæmdir á húsnæði Hagaborgar og að þá hafi verið tekin ákvörðun um að sameina starfsemi leikskólanna. Nú sé ljóst að framkvæmdir muni taka langan tíma og er gert ráð fyrir að starfsemi geti hafist í fyrsta lagi haustið 2028. Til að fyrirbyggja misskilning foreldra sem sækja um leikskólavist fyrir börn sín haustið 2027 er því lagt til að leikskólanum verði lokað og að aðeins sé hægt að sækja um á Grandaborg. Í tillögunni kemur fram að heildarfjöldi starfsfólks Hagaborgar sé 17 og hluti af því sé í leyfi frá störfum. Starfsfólki var boðið að flytja sig yfir og verða í Grandaborg 20 starfsmenn í 18 stöðugildum haustið 2026. Leikskólastjóri Hagaborgar mun stýra Grandaborg, þar sem fyrrum leikskólastjóri Grandaborgar er kominn í nýtt starf sem leikskólastjóri hjá Reykjavíkurborg. Óveruleg fjárhagsleg áhrif Þá kemur að lokum fram að Hagaborg og Grandaborg séu sambærilegar rekstrareiningar svo þessi breyting hafi óveruleg fjárhagsleg áhrif og rúmist innan fjárhagsramma skóla- og frístundasviðs. Framkvæmdir verði í forgangi Foreldraráð leikskólans segir í umsögn um breytinguna að það samþykki hana en óski eftir því að framkvæmdir verði í forgangi. „Húsnæðið hefur nú verið lokað í heilt ár án þess að framkvæmdir séu hafnar. Það þykir foreldraráði miður enda mikil röskun fyrir fjölskyldur barna sem búa nálægt leikskólanum. Bæði vegna þess að skortur hefur verið á leikskólaplássum en einnig vegna þess að börn þurfa að sækja leikskóla sem ekki er í göngufjarlægð frá heimili þeirra, sem mikil áhrif hefur á fjölskyldur,“ segir í umsögninni. Þá gerir ráðið einnig athugasemd við að óskað hafi verið eftir umsögn í sumarleyfistíma. Ákvörðunin hafi legið fyrir um langa hríð og það hefði verið hægt að fá vandaðri og ígrundaðri umsögn meðan á starfstíma leikskóla stóð.
Leikskólar Skóla- og menntamál Mygla Börn og uppeldi Reykjavík Tengdar fréttir Lokanir vegna fáliðunar „enn ein birtingarmynd leikskólavandans“ Loka þurfti deildum á leikskólum borgarinnar fyrir áramót alls 228 sinnum vegna fáliðunar. 67 sinnum þurfti að loka deild heilan dag vegna fáliðunar en í 161 skipti þurfti að skerða þjónustu vegna fáliðunar. 11. janúar 2024 14:53 Foreldrar leikskólabarna í pattstöðu Mannekla veldur því tafir hafa orðið á inntöku barna í leikskóla. Foreldrar barna á leikskólaaldri hafa fengið bréf þess efnis að fyrirhugaðri aðlögun barna verði frestað tímabundið. 8. september 2017 14:00 Mest lesið Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Sjá meira
Lokanir vegna fáliðunar „enn ein birtingarmynd leikskólavandans“ Loka þurfti deildum á leikskólum borgarinnar fyrir áramót alls 228 sinnum vegna fáliðunar. 67 sinnum þurfti að loka deild heilan dag vegna fáliðunar en í 161 skipti þurfti að skerða þjónustu vegna fáliðunar. 11. janúar 2024 14:53
Foreldrar leikskólabarna í pattstöðu Mannekla veldur því tafir hafa orðið á inntöku barna í leikskóla. Foreldrar barna á leikskólaaldri hafa fengið bréf þess efnis að fyrirhugaðri aðlögun barna verði frestað tímabundið. 8. september 2017 14:00