Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar 19. ágúst 2026 15:48 Frá því að fyrstu fjárlög núverandi ríkisstjórnar tóku gildi um síðustu áramót hefur verðbólgan farið vaxandi og stýrivextir hækkað. Fram að því fóru vextir lækkandi á grundvelli fjárlaga síðustu stjórnar. Ríkisstjórnin hefur ítrekað tekið ákvarðanir frá áramótum sem hafa stuðlað að aukinni verðbólgu og hefur sama og ekkert gert til þess að forða því að kjarasamningar verði í uppnámi síðar í mánuðinum. Þvert á móti hefur hún haldið áfram í sumar að kynda undir verðbólgunni. Meðal annars með hækkun komugjalda á heilsugæzlustöðvar um 100%. Vanhæfni ein og sér getur ekki útskýrt framgöngu hennar. Dagsetning þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Evrópusambandið er engin tilviljun heldur ljóslega úthugsuð. Það er engin tilviljun að hún hafi verið tímasett tveimur dögum eftir að verðbólgumælingin fyrir ágúst verður gefin út sem kjarasamningarnir taka mið af og tíu dögum eftir vaxtaákvörðun Seðlabankans í morgun. Það er heldur engin tilviljun að ríkisstjórnin skuli ekkert hafa beitt sér vegna kjarasamninganna, fyrir utan tímabundna lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti í vor vegna þrýstings úr samfélaginu og sem hún hefur ekki viljað framlengja, heldur þvert á móti ítrekað tekið ákvarðanir sem aukið hafa verðbólguna. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra vissi hvað hún var að segja þegar hún lét eftirfarandi orð falla í hlaðvarpinu Chess After Dark 27. ágúst 2024: „Það sem gerist svo ítrekað með Evrópusambandið er þegar það gengur illa, þegar það er komin verðbólga, þegar það eru háir vextir, þá byrjar fólk að vilja ganga inn í Evrópusambandið.“ Þetta eru aðrir í ríkisstjórninni vitaskuld meðvitaðir um. Þar á meðal bæði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra. Eins að minni verðbólga og lægri vextir hafa öfug áhrif. Minni áhuga á inngöngu í sambandið. Mikill pólitískur hvati er einfaldlega fyrir hendi til þess að staða efnahagsmálanna versni eða batni að minnsta kosti ekki. Öllu er ljóslega fórnandi fyrir inngöngu í Evrópusambandið og verður áfram á meðan umsóknarferlið að sambandinu verður í gangi verði samþykkt í þjóðaratkvæðinu að hefja það á nýjan leik. Þá á enda eftir að sannfæra þjóðina um að samþykkja að ganga formlega í Evrópusambandið eftir einhver ár sem verður enn erfiðari brekka fyrir ríkisstjórnina. Eini möguleikinn á því að verðbólga fari að minnka og vextir að lækka er að taka sambandið af dagskrá með því að segja nei 29. ágúst. Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum) og heldur úti vefsíðunni Stjornmalin.is. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Skoðun Frá styrkjum til stefnumótunar Hrönn Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Boltinn er hjá ykkur Matthías Bjarnason skrifar Sjá meira
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar