Vaxtaþrælarnir og hinir Ingólfur Sverrisson skrifar 20. ágúst 2026 22:46 Þegar vextir hafa nú verið hækkaðir enn einu sinni beinist athyglin að þeim hópum í þjóðfélaginu sem sú ráðstöfun snertir ekki neitt og láta sér þær því litlu skipta. Hóparnir sem hér um ræðir eru til dæmis fyrirtækin 260 sem færa allt sitt í evrum eða dollurum og sækja ódýrt lánsfé til uppbyggingar og reksturs til útlanda, við sem erum komin á efri ár og skuldum ekki lengur neitt og þau innlendu fyrirtæki og stofnanir sem skvera hækkunum út í verðlagið án þess að hika og blanda samvisku sinni ekkert í þau viðbrögð. Enda þótt þessir aðilar eigi sinn ríka þátt í verðbólgunni, sem vaxtahækkuninni er ætlað að vinna á, axla þeir sannarlega ekki nokkurn einasta hlut þeirrar byrðar sem þýðir fyrir vikið að hún leggst með enn meiri þunga á unga fólkið í þessu landi. Fólkið sem er að basla við að kaupa sér húsnæði og þarf að slá dýr lán í lokaða krónuhagkerfinu okkar. Með þessum hætti er búið að skipta þjóðinni haganlega í tvo hópa þar sem annar tekur á sig allar vaxtabyrðarnar í raun en við hin sleppum alveg frá því og högnumst frekar en hitt á þessum frumstæðu vinnubrögðum. Margir reyna að telja sér og öðrum trú um að þetta óláns fyrirkomulag hafi eitthvað með sjálfstæði þjóðarinnar og fullveldi að gera. Öll breyting á því til jöfnunar og sanngirni verði til þess að við glötum fullveldinu og allt fari í kalda kol enda þótt engin dæmi séu um slíkt meðal þeirra þjóða í ESB sem hafa tekið upp evruna sem gjaldmiðil. Bent hefur verið á að með því að skoða þá möguleika sem opnast með hugsanlegri fullri þátttöku í ESB og upptöku evru gætu myndast nýjar leiðir til að halda aftur af verðbólgunni og hennar slæmu afleiðingum. Þá rísa upp forréttindahóparnir sem áður er getið og blómstra í núverandi kerfi og telja því allt til foráttu. Það hljóti að vera til aðrar leiðir til að tryggja þeim forréttindin áfram og að nauðsynlegt sé að staðfesta ósanngirnina í stjórnarskrá lýðveldisins. Óstaðfestar fregnir úr þeim herbúðum herma að þeir vilji setja í stjórnarskrána ákvæði á þá leið að þeir sem eru lokaðir inni í krónuhagkerfinu skuli ávallt bera byrðar sem fylgja háum vöxtum hér á landi. Það sé gríðarlega mikilvægt til að halda fullveldi Íslands hreinu og óspilltu gagnvart erlendri ásælni. Nú er runnin upp sú tíð að meira segja Sjálfstæðisflokkurinn telur vandalaust að ráða fram úr verðbólgunni í núverandi krónuhagkerfi enda þótt hann hafi sjálfur setið við stjórnvöldin áratugum saman og opinberað átakanlegt getuleysi sitt í þeim efnum. En nú getur sá góði flokkur leyst það auðveldlega sem þeir gátu ekki áður og eru þess vegna andvígir að ræða við ESB um fulla aðild því þeir hafi öðlast einhvers konar skyggnigáfu og vita nákvæmlega hvað muni koma út úr samningi sem aldrei hefur verið rætt um eða komist á blað. Slík afstaða hefur oft verið kölluð drýldni enda vita Sjálfstæðismenn ekkert frekar en aðrir hvað muni standa í samningi sem ekki hefur séð dagsins ljós. Eins gott að fyrrum forystumenn þessa góða flokks hafa ekki heyrt um þessa neikvæðni gagnvart nánara samstarfi landa sem byggja Evrópu. Þá er næsta víst að þeir mundu undrast stórum og gera alvarlegar athugasemdir við málflutning eftirmanna sinna. Alltént þreyttist Bjarni Benediktsson formaður flokksins á árunum 1963 til 1970 aldrei á að hamra á nauðsyn þess að taka þátt í vestrænni samvinnu og studdi dyggilega aðildina að NATO. Ekkert hik á þeim bæ þá og vandræðagangur ekki leyfður undir hans forystu. Nú er loks runninn upp rétti tíminn til að leita nýrra leiða með okkar ágætu nágrönnum í ESB og leysa unga fólkið okkar, sprotafyrirtæki og önnur minni fyrirtæki úr þeim fjötrum sem krónuhagkerfið hefur hneppt þau í. Þá fyrst mætti kalla Íslendinga frjálsa og fullvalda þjóð þar sem jöfnuður ríkir enda lagt af þann ósið að skipta þegnunum í tvo hópa: Vaxtaþrælana og hina sem sleppa alltaf. Höfundur er eftirlaunaþegi og fyrrum forstöðumaður samtaka fyrirtækja í málm- og skipaiðnaði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ingólfur Sverrisson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Að virða niðurstöðu sem manni líkar ekki Erna Bjarnadóttir Skoðun Börnin eru ekki þau sem hafa brugðist, það er námsumhverfið sem hefur breyst Inga Henriksen Skoðun Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun The EU’s reduced attractiveness for prosperous countries Carl Baudenbacher Skoðun Fjölmiðlakreppan: Lýðræðishalli en ekki bara rekstrarvandi Stefán Jón Hafstein Skoðun Ferðaþjónustunni hent fyrir rútu hallalausra fjárlaga Njáll Trausti Friðbertsson Skoðun Helmingsafsláttur af mennskunni Arndís Þórarinsdóttir Skoðun Hvað borga ferðamenn fyrir nýtingu náttúru og innviða? Jóhannes Þór Skúlason Skoðun Ábyrgðin er okkar allra Valdimar Víðisson Skoðun Virðismiðuð velferðarþjónusta Finnur Pálmi Magnússon Skoðun Skoðun Skoðun Að virða niðurstöðu sem manni líkar ekki Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Börnin eru ekki þau sem hafa brugðist, það er námsumhverfið sem hefur breyst Inga Henriksen skrifar Skoðun Bætir tækni í kennslustofunni nám? Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin alls staðar Gauti Kristmannsson skrifar Skoðun Helmingsafsláttur af mennskunni Arndís Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Hvað borga ferðamenn fyrir nýtingu náttúru og innviða? Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Fjölmiðlakreppan: Lýðræðishalli en ekki bara rekstrarvandi Stefán Jón Hafstein skrifar Skoðun The EU’s reduced attractiveness for prosperous countries Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Ábyrgðin er okkar allra Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Hvar á gervigreind að vinna fyrir hið opinbera? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Ferðaþjónustunni hent fyrir rútu hallalausra fjárlaga Njáll Trausti Friðbertsson skrifar Skoðun Virðismiðuð velferðarþjónusta Finnur Pálmi Magnússon skrifar Skoðun Skuldadagar í Reykjavík Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Að þora að spyrja og þola svarið Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Um fitulag og burðarvirki – atlaga að velferð barna og unglinga í Reykjavík Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Stokkið á (barna)vagninn Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Opnum Skálafell Valdimar Breiðfjörð Birgisson skrifar Skoðun Allir ósáttir við PISA – en hvað er hægt að gera? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason skrifar Skoðun Loksins úr mínus í plús Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir skrifar Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Sjá meira
Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Skoðun Börnin eru ekki þau sem hafa brugðist, það er námsumhverfið sem hefur breyst Inga Henriksen skrifar
Skoðun Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Um fitulag og burðarvirki – atlaga að velferð barna og unglinga í Reykjavík Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir skrifar
Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun