Hversdagsleg menning og majónes Logi Einarsson skrifar 21. ágúst 2026 09:31 Menningarnótt gefur okkur tilefni til að fagna ólíkum birtingarmyndum menningar og því tökum við í menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu fagnandi og bjóðum til brauðtertuveislu á morgun kl. 15 í Reykjastræti 8. Boðið verður upp á lengstu brauðtertu landsins, listasýningu byggða á íslensku brauðtertunni og tónlistaratriði. Tilgangurinn með heimboðinu er að vekja athygli á íslenskri matarmenningu og þeim lifandi hefðum sem tengjast mat, samveru og hátíðarstundum. Með dagskránni vill ráðuneytið jafnframt nýta fallega húsnæðið við Reykjastræti til að tengja saman þá glæsilegu dagskrá sem fram fer á svæðinu. Reykjavíkurborg á heiður skilinn fyrir að standa ár hvert að þessari öflugu hátíð og skapa mikilvægan vettvang fyrir listir, menningu og samveru. Saga þjóðar Við sem þjóð erum auðug af fjölbreyttri og kraftmikilli menningu. Matarmenning okkar er þar engin undantekning. Hún er síbreytileg og ber með sér sögu þjóðar, þær aðstæður og aðföng sem voru til staðar á hverjum tíma og samskipti okkar við önnur lönd. Hvort sem horft er til alls þess fagfólks sem við eigum í matreiðslu, bakstri og kjötiðn - svo fátt eitt sé nefnt - eða til nýsköpunar í matvælaþróun og framleiðslu víða um land, byggir blómleg matarmenning nútímans á starfi frumkvöðla fyrri tíma og baráttu okkar við náttúruna. Það hversdagslega Skoðanir þjóðarinnar á mat hafa ávallt verið sterkar, ekki síst þegar kemur að samsetningu matar. Ég er frá Akureyri, svo ég þekki það vel; áleggið á pylsur þar í bæ hefur oft valdið usla. En það er einmitt málið. Sérkenni hvers landshluta, bæjar eða fjölskyldu er það sem er svo dýrmætt. Hráefnið og hugvitið. Hefðirnar og minningarnar. Þetta hversdagslega sem okkur þykir svo vænt um. Menning er vítt hugtak. Hún felst ekki aðeins í listum, bókmenntum og tónlist heldur einnig í lífsháttum, gildum, venjum, hefðum og því hvernig við lifum saman. Uppskrift er hægt að skrifa niður, en hefðir byggja á fólki. Vínber? Þar er brauðtertan gott dæmi. Hún hefur staðið á íslenskum veisluborðum í yfir 70 ár við ótal tímamót: afmæli, skírnir, fermingar, útskriftir, brúðkaup og jarðarfarir. Í huga margra tengist hún því ekki aðeins sérstöku tilefni eða bragði heldur ákveðnum minningum. Hún getur minnt á eldhúsið hjá ömmu, fermingarveisluna, skinkuna og aspasinn sem „alltaf voru í tertunni“ eða heit skoðanaskipti um hvort vínber eigi heima á brauðtertu. Þarna verður matur að einhverju meira en uppskrift. Hugmyndin um lifandi menningararf byggir einmitt á þessu. Lifandi hefðir þurfa ekki að vera óbreyttar frá einni kynslóð til annarrar. Þvert á móti felst líf þeirra í því að þær eru endurskapaðar aftur og aftur. Ný kynslóð tekur við þekkingu og venjum frá þeirri fyrri en bætir jafnframt einhverju við. Majónesan orðin gul Þannig hefur brauðtertan sem upprunalega er laglegt samlokubrauð með salati fengið nýtt líf. Árlega er krýndur Íslandsmeistari í brauðtertugerð og Brauðtertufélag Erlu og Erlu er með hátt í 22 þúsund meðlimi á samfélagsmiðlum. Síðast en ekki síst hefur tertan góða verið notuð sem mælikvarði á það hvenær veislu er endanlega lokið, líkt og hinar landskunnu línur úr kvikmyndinni Stellu í orlofi bera með sér: „Boðið er búið, Bára komin í bleyti og majónesan orðin gul!“ Þarf því engan að undra að Brauðtertan sé skráð sem lifandi hefð hjá Þjóðminjasafninu. Hún byggir á traustum grunni og vísar til fortíðar en býður um leið upp á ríkulegt svigrúm fyrir sköpunargleði, líkt og gestir munu upplifa. Gleðilega hátíð og njótið menningar í öllum sínum myndum – líka þeim hversdagslegu. Höfundur er menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Logi Einarsson Menningarnótt Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Skoðun Frá styrkjum til stefnumótunar Hrönn Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Boltinn er hjá ykkur Matthías Bjarnason skrifar Skoðun Golfið lækning við hálfónýtum maga og þörmum? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Fleiri leiðir til Evrópusamstarfs Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Tiplað inn í framtíð ferðaþjónustunnar Inga Hlín Pálsdóttir skrifar Skoðun Ró á vinnumarkaði krefst skýrra leikreglna Halldóra Sigr. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Atvinna, ábyrg nýting og hagsmunir nærsamfélagsins Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Sjá meira
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar