Enski boltinn

Watkins utan hóps en Emery vill ekki tjá sig

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Ollie Watkins gæti verið á förum frá Aston Villa.
Ollie Watkins gæti verið á förum frá Aston Villa. Alessandro Sabattini/Getty Images

Ollie Watkins er ekki í leikmannahópi Aston Villa fyrir fyrsta leik tímabilsins gegn Brighton sem hefst núna klukkan eitt. Þjálfarinn Unai Emery vill ekki tjá sig um hvort Watkins sé á förum.

„Þögn,“ svaraði Emery þegar hann var spurður út í fjarveru Watkins í viðtali fyrir leik.

Watkins hefur verið orðaður við brottför frá Aston Villa í sumar og þetta ýtir enn frekar undir sögusagnirnar. Al-Hilal hefur boðið í 31 árs gamla framherjann en hingað til hefur Aston Villa hafnað öllum tilboðum.

Aston Villa hefur misst fjölmarga leikmenn frá félaginu í sumar, meðal annars Morgan Rogers, Ezri Konsa, Lucas Digne og Youri Tielemans, en að missa Watkins yrði líklega mesta áfallið.

Watkins gekk til liðs við Aston Villa árið 2020 og hefur skorað 91 mark í 221 leik fyrir félagið. Með hann fremstan í flokki vann Aston Villa á síðasta tímabili.

Leikur Brighton og Aston Villa hefst klukkan 13:00 í beinni útsendingu á Sýn Sport 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×