Enski boltinn

Sjáðu mörkin: Dramatík hjá Liver­pool og City en hrun hjá Aston Villa

Aron Guðmundsson skrifar
Dominik Szoboszlai, undir pressu á punktinum, tryggði Liverpool stig með frábærri vítaspyrnu
Dominik Szoboszlai, undir pressu á punktinum, tryggði Liverpool stig með frábærri vítaspyrnu Vísir/Getty

Þrír leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni í gær. Boðið var upp á mikla dramatík er Manchester City vann Bournemouth, Liverpool og Newcastle United mættust í hörku leik sem bauð upp á miklar senur í uppbótartíma á meðan að Aston Villa fékk skell á útivelli gegn Brighton. Öll mörkin frá því í gær má sjá í þessari frétt. 

Dominik Szoboszlai tryggði Liverpool jafntefli gegn Newcastle United með marki úr vítaspyrnu þegar níu mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Lokatölur á St James' Park urðu 2-2 í frábærum fyrsta leik þessara liða á yfirstandandi tímabili. 

Klippa: Newcastle United 2-2 Liverpool

Manchester City lenti í basli á heimavelli gegn Bournemouth en vann 2-1 endurkomusigur. Haaland, með nýja hárið, tókst ekki að skora frekar en öðrum sóknarmönnum Manchester City og voru það því  Miðverðirnir Marc Guehi og Josko Gvardiol sem stigu upp fyrir City.

Klippa: Manchester City 2-1 Bournemouth

Aston Villa galt afhroð á útivelli gegn Brighton í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar. 4-0 tap varð niðurstaðan og Villa spilaði seinni hálfleikinn með aðeins tíu leikmenn.

Klippa: Brighton 4-0 Aston Villa



Fleiri fréttir

Sjá meira


×