Innlent

Full­viss um að hann myndi ekki lifa þetta af

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Andri Már og Ingunn Rut huldu andlit sín við komuna í Héraðsdóm Suðurlands í síðustu viku.
Andri Már og Ingunn Rut huldu andlit sín við komuna í Héraðsdóm Suðurlands í síðustu viku. Vísir/Anton Brink

Heilbrigðisstarfsfólk bar vitni í dag við aðalmeðferð Reykholtsmálsins. Sálfræðingur segir brotaþola með einkenni áfallastreituröskunar. Tannlæknir og læknir staðfestu hluta áverkanna, þar á meðal tvíbrotinn kjálka og brotnar tennur.

Sex eru ákærð fyrir að hafa frelsissvipt, fjárkúgað og beitt maltneskan mann stórfelldu ofbeldi í Reykholti í apríl 2024.

Læknir, sálfræðingur og tannlæknir sem tóku við brotaþola eftir að hann sneri aftur til Íslands frá Möltu báru vitni fyrir dómara í dag. Til stóð að taka skýrslu af maltneskum læknum en vegna erfiðleika við túlkun var þeim frestað.

Sálfræðingur hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands hitti brotaþola þrisvar sinnum árið 2024 eftir meinta fjárkúgun og frelsissviptingu. Líf brotaþola hafi verið í upplausn. 

„Augljóslega mjög erfið, hann gat ekki sofið og átti erfitt með að nærast,“ sagði sálfræðingurinn aðspurður um líðan hans.

„Hann var stöðugt hræddur og mikið á varðbergi.“

Sálfræðingurinn hafi séð um meðferð brotaþola en vísað honum síðan annað. Þá hafi hún hitt brotaþola aftur fyrir fyrirtöku málsins. Hún telur að miðað við líðan brotaþola á þeirri stundu að hann þurfi á meðferð við áfallastreituröskun að halda, þótt hann hafi ekki verið formlega greindur.

„Hann fór úr því að lifa lífi í frekar mikilli rútínu, upplifði mikið öryggi í vinnu og með vinum yfir í það að upplifa sig hvergi öruggan,“ sagði sálfræðingurinn.

Einkenni brotaþola séu bæði vegna meints ofbeldis og meintrar ógnunar sem hann varð fyrir.

„Um tíma var hann fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af.“

Tvíbrotinn kjálki

Læknirinn starfaði áður hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands og tók við brotaþola eftir að hann kom til landsins auk þess að þýða gögnin sem læknarnir á Möltu sendu til Íslands.

Við skoðun læknisins fundust til dæmis áverkar undir höfði og hálsi, dökkleitt mar á vanga, mar á brjóstkassa neðarlega vinstra megin, hrufl á bakinu og á efri útlimum hægra megin. Þá hafi brotaþoli átt í vandamálum við að opna munn bæði vegna áverka og eftir aðgerð á kjálkanum.

Hann hafi verið með tvíbrotinn kjálka, ofarlega hægra megin og svo vinstra megin.

Töluverðum tíma er varið í að ræða áverka á höfði brotaþola sem læknirinn sagði að væri örlítið blæðingarsvæði þegar litlar æðar í heilanum gefa sig. Meiðslin voru dreifð um heilann, einhver í innra byrði heilans og meira milli heila og höfuðkúpu.

„Ég myndi telja það vissulega alvarlega áverka,“ sagði læknirinn.

Nýútdregnar tennur

Læknirinn sagðist ekki hafa tekið eftir eða sérstaklega skráð hjá sér upplýsingar um tannheilsu brotaþola. 

Tannlæknir kom fyrir dómara og sagði að í munni brotaþola hefði vantað nokkrar tennur, til að mynda framtennur, og svo hefðu nokkrar aðrar verið brotnar. Hann gæti ekki fullyrt nákvæmlega hvenær hann hefði tapað tönnunum en það hafi verið nokkrum vikum áður en tannskoðunin fór fram í byrjun maí.

„Það lítur út eins og þetta séu nýútdregnar tennur, þú sérð þar sem ræturnar eru og það hefur ekki myndast bein þar,“ segir tannlæknirinn.

Hann tekur samt sem áður undir að brotaþoli hafi ekki verið við góða tannheilsu fyrir. Hann hafi verið með sýkingu sem taki lengri tíma að myndast. Að minnsta kosti fimm tannbil báru merki þess að tennurnar hefðu nýlega verið dregnar út.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×