Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 25. ágúst 2026 19:02 Selma Rut Þorsteinsdóttir formaður Samtaka íslenskra auglýsingastofa segir fólk í bransanum hugsi yfir notkun gervigreindar. Nýjar auglýsingar frá Mjólkursamsölunni með ostastráknum Gotta hafa verið teknar úr birtingu en þær vöktu hörð viðbrögð á samfélagsmiðlum þar sem útlit er fyrir að gervigreind hafi verið nýtt til verksins. Flestir landsmenn muna eftir gömlu góðu Gotta auglýsingunum um ostinn frá MS. Nýjar auglýsingar Mjólkursamsölunnar sem birtust á samfélagsmiðlum virðast hinsvegar hafa farið öfugt ofan í fólk ef marka má miðlana og miklar umræður um meinta notkun gervigreindar við verkið. Viðbrögðin voru hörð og auglýsingarnar hafa nú horfið af samfélagsmiðlum. Samkvæmt svari frá MS er gervigreind framleiðslutæki sem hafi ekki komið í staðinn fyrir skapandi fagfólk. Selma Rut Þorsteinsdóttir formaður Sambands íslenskra auglýsingastofa segir auglýsendur hugsi yfir innreið gervigreindar, sem sé þrátt fyrir allt um margt nytsamleg tækni. „Ég held að við sem samfélag séum ekki alveg búin að ákveða hvað okkur finnst um hversu langt gervigreindin má fara í list og hönnun og sköpun og við kannski erum bara að átta okkur á því núna.“ Svar MS við fyrirspurn fréttastofu: Sæll, MS hefur eftirfarandi um málið að segja: Við skiljum vel að breytingar á kunnuglegum karakter geti vakið viðbrögð og að notkun gervigreindar veki umræðu. Það er okkur mikilvægt að koma því á framfæri að efnið með Gotta er ekki unnið af gervigreind í stað skapandi fagfólks. Að baki því stendur þverfaglegur hópur hugmyndasmiða, hönnuða og textahöfunda. Gervigreind er framleiðslutæki og er nýtt samhliða þeirri tækni sem við höfum þekkt til um árabil. Mannleg hugmyndavinna og sköpun er áfram grunnurinn að öllu efni. Við berum mikla virðingu fyrir skapandi samfélagi og hlustum á þau ólíku sjónarmið sem okkur berast. Okkur þykir vænt um Gotta og munum kappkosta að fara vel með vörumerkið sem fylgt hefur þjóðinni í áratugi. Almennt hafi auglýsingastofur hingað til forðast að nota gervigreindina alfarið við hönnun auglýsinga. Ljóst sé að upprunalegir hönnuðir Gotta hafi verið fólk af holdi og blóði. „Fólk sem var virkilega tengt samfélaginu og samtímanum, með gott innsæi og fann upp þessa herferð og karakter, þannig fólki þykir vænt um karakterinn og ég held að það sé kannski það sem málið snýst um.“ Miðað við ykkar áherslur þá heyri ég á þér að það sé ekki mjög líklegt að meirihluta auglýsinga verði gerðar alfarið með gervigreind, það hljómar eins og það sé ekki eftirspurn eftir því, hvernig blasir þetta við þér? „Ég allavega vona innilega ekki því skapandi fólk þarf að fá að skapa og ég held að mennskan í sköpuninni og í rauninni ófullkomleikinn þar, það er það sem á endanum tengir alltaf fólk við annað fólk.“ Auglýsinga- og markaðsmál Gervigreind Mest lesið Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Viðskipti innlent Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Viðskipti innlent Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Neytendur Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Atvinnulíf Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Viðskipti innlent Play komið í eignasafn Icelandair Viðskipti innlent Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Viðskipti innlent Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Viðskipti innlent Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Viðskipti innlent Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Sjá meira
Flestir landsmenn muna eftir gömlu góðu Gotta auglýsingunum um ostinn frá MS. Nýjar auglýsingar Mjólkursamsölunnar sem birtust á samfélagsmiðlum virðast hinsvegar hafa farið öfugt ofan í fólk ef marka má miðlana og miklar umræður um meinta notkun gervigreindar við verkið. Viðbrögðin voru hörð og auglýsingarnar hafa nú horfið af samfélagsmiðlum. Samkvæmt svari frá MS er gervigreind framleiðslutæki sem hafi ekki komið í staðinn fyrir skapandi fagfólk. Selma Rut Þorsteinsdóttir formaður Sambands íslenskra auglýsingastofa segir auglýsendur hugsi yfir innreið gervigreindar, sem sé þrátt fyrir allt um margt nytsamleg tækni. „Ég held að við sem samfélag séum ekki alveg búin að ákveða hvað okkur finnst um hversu langt gervigreindin má fara í list og hönnun og sköpun og við kannski erum bara að átta okkur á því núna.“ Svar MS við fyrirspurn fréttastofu: Sæll, MS hefur eftirfarandi um málið að segja: Við skiljum vel að breytingar á kunnuglegum karakter geti vakið viðbrögð og að notkun gervigreindar veki umræðu. Það er okkur mikilvægt að koma því á framfæri að efnið með Gotta er ekki unnið af gervigreind í stað skapandi fagfólks. Að baki því stendur þverfaglegur hópur hugmyndasmiða, hönnuða og textahöfunda. Gervigreind er framleiðslutæki og er nýtt samhliða þeirri tækni sem við höfum þekkt til um árabil. Mannleg hugmyndavinna og sköpun er áfram grunnurinn að öllu efni. Við berum mikla virðingu fyrir skapandi samfélagi og hlustum á þau ólíku sjónarmið sem okkur berast. Okkur þykir vænt um Gotta og munum kappkosta að fara vel með vörumerkið sem fylgt hefur þjóðinni í áratugi. Almennt hafi auglýsingastofur hingað til forðast að nota gervigreindina alfarið við hönnun auglýsinga. Ljóst sé að upprunalegir hönnuðir Gotta hafi verið fólk af holdi og blóði. „Fólk sem var virkilega tengt samfélaginu og samtímanum, með gott innsæi og fann upp þessa herferð og karakter, þannig fólki þykir vænt um karakterinn og ég held að það sé kannski það sem málið snýst um.“ Miðað við ykkar áherslur þá heyri ég á þér að það sé ekki mjög líklegt að meirihluta auglýsinga verði gerðar alfarið með gervigreind, það hljómar eins og það sé ekki eftirspurn eftir því, hvernig blasir þetta við þér? „Ég allavega vona innilega ekki því skapandi fólk þarf að fá að skapa og ég held að mennskan í sköpuninni og í rauninni ófullkomleikinn þar, það er það sem á endanum tengir alltaf fólk við annað fólk.“
Svar MS við fyrirspurn fréttastofu: Sæll, MS hefur eftirfarandi um málið að segja: Við skiljum vel að breytingar á kunnuglegum karakter geti vakið viðbrögð og að notkun gervigreindar veki umræðu. Það er okkur mikilvægt að koma því á framfæri að efnið með Gotta er ekki unnið af gervigreind í stað skapandi fagfólks. Að baki því stendur þverfaglegur hópur hugmyndasmiða, hönnuða og textahöfunda. Gervigreind er framleiðslutæki og er nýtt samhliða þeirri tækni sem við höfum þekkt til um árabil. Mannleg hugmyndavinna og sköpun er áfram grunnurinn að öllu efni. Við berum mikla virðingu fyrir skapandi samfélagi og hlustum á þau ólíku sjónarmið sem okkur berast. Okkur þykir vænt um Gotta og munum kappkosta að fara vel með vörumerkið sem fylgt hefur þjóðinni í áratugi.
Auglýsinga- og markaðsmál Gervigreind Mest lesið Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Viðskipti innlent Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Viðskipti innlent Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Neytendur Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Atvinnulíf Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Viðskipti innlent Play komið í eignasafn Icelandair Viðskipti innlent Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Viðskipti innlent Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Viðskipti innlent Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Viðskipti innlent Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Sjá meira