Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Freyja Þórisdóttir skrifar 26. ágúst 2026 18:59 Kristrún Frostadóttir hefur ítrekað minnt á að þjóðaratkvæðagreiðslan á laugardaginn snúist ekki um aðlögun né aðild, heldur framhald af aðildarviðræðum. Vísir/Vilhelm Forsætisráðherra ávarpaði gesti á svokölluðum „lýðræðisfögnuði“ en þar lagði hún mikla áherslu á að það ætti að treysta því að þjóðin viti sínu viti. Undanfarið hafi málflutningur tengdur slagorðinu Já til að sjá snúist um að það sé markaðsbrella en það, líkt og annar málflutningur nei-ara, byggi á sömu forsendunni: um að þjóðin geti bara ekki skilið þetta mál — og geti bara ekki verið fær um að taka svona ákvörðun með þjóðaratkvæði.
Nú þegar aðeins eru þrír dagar til stefnu og kosningabaráttur beggja hliða að ná hámarki hafa verið haldnir ýmsir fundir, pallborð og kappræður en Kristrún Frostadóttir var einn ræðumanna á fundi í Austurbæjarbíói sem bar yfirskriftina „Þjóðin ræður“ klukkan 17:30 í dag. Afgreitt með almennri skynsemi Það var mikill fjöldi fólks sem sótti fundinn í Austurbæjarbíói í dag, miðvikudaginn 26. ágúst.Vísir/Bjarni Einarsson Ræða hennar, sem í tilkynningu var kölluð lokaskilaboð, endurspeglaði þessi orð en hún kom ítrekað inn á það að allar tilraunir til að rugla fólk í ríminu hafi verið afgreiddar með almennri skynsemi. Hún tók dæmi um málflutning þar sem ýjað sé að því að landsmenn séu auðtrúa og óskynsamir. Það sé sagt að verið sé að blekkja þjóðina með áróðri og að „Já til að sjá“ sé ekki gild afstaða fjölda fólks heldur einungis sniðug brella og fólkið í landinu láti blekkjast. Upptaka af ræðu Kristrúnar mun birtast hér fyrir neðan eftir skamma stund. „Takið eftir að allur þessi málflutningur byggir á sömu forsendunni: um að þjóðin geti bara ekki skilið þetta mál — og geti bara ekki verið fær um að taka svona ákvörðun með þjóðaratkvæði,“ segir hún og bætir við að „því miður — þá hafa helstu foringjar Nei-liða fallið í þessa gryfju. En það afhjúpar ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu.“ Þjóðin sé vitur Kristrún segist sjálf horfa á málið með allt öðrum hætti: „Ég veit að þjóðin er vitur og vel af Guði gerð. Fólkið veit hvað það vill — hvort sem það hlustar meira á hjartað í sér eða magann eða brýtur heilann til að komast að sinni réttu og lýðræðislegu niðurstöðu.“ Að því sögðu þá sé henni fyllilega ljóst að það sé ekkert sjálfsagt við það að hefja viðræður á ný við Evrópusambandið á þessum tímapunkti. Rétt eins og hún hefur áður sagt hafði hún orð á því að sama hvernig niðurstaðan verður heiti hún því að virða, treysta og vinna með hana. Þá hvatti hún forystufólk stjórnarandstöðunnar á Alþingi til að gera slíkt hið sama og „kveða skýrt að orði um að niðurstaða kosninganna verði virt og henni fylgt, af virðingu við lýðræðið og fólkið í landinu.“
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Evrópusambandið Tengdar fréttir Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið fer fram þann 29. ágúst. Fylgst verður með nýjustu tíðindum í aðdraganda atkvæðagreiðslu í Evrópuvaktinni hér að neðan. 17. ágúst 2026 10:39 Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Í nýjustu könnun Maskínu í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið dregur saman milli fylkinga en fulltrúar já og nei-hreyfinga sammælast um það í Pallborði að það verði mjótt á munum. Forsætisráðherra sagði ómögulegt að segja til um það hvernig niðurstaðan verði á laugardag en ríkisstjórnin muni virða hana hvernig sem fari. 25. ágúst 2026 15:11 Forystumenn láti stór orð falla sér og sínum málstað til framdráttar Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra telur að deilur sem upp komi í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu sem þjóðin standi frammi fyrir þann 29. ágúst séu ekki af því tagi að landsmenn láti tilfinningarnar bera sig ofurliði. Þvert á móti sé tilfinningahiti fólks almennt minni en gengur og gerist í kosningum. 16. ágúst 2026 17:43 Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Innlent Fleiri fréttir Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Sjá meira
Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið fer fram þann 29. ágúst. Fylgst verður með nýjustu tíðindum í aðdraganda atkvæðagreiðslu í Evrópuvaktinni hér að neðan. 17. ágúst 2026 10:39
Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Í nýjustu könnun Maskínu í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið dregur saman milli fylkinga en fulltrúar já og nei-hreyfinga sammælast um það í Pallborði að það verði mjótt á munum. Forsætisráðherra sagði ómögulegt að segja til um það hvernig niðurstaðan verði á laugardag en ríkisstjórnin muni virða hana hvernig sem fari. 25. ágúst 2026 15:11
Forystumenn láti stór orð falla sér og sínum málstað til framdráttar Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra telur að deilur sem upp komi í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu sem þjóðin standi frammi fyrir þann 29. ágúst séu ekki af því tagi að landsmenn láti tilfinningarnar bera sig ofurliði. Þvert á móti sé tilfinningahiti fólks almennt minni en gengur og gerist í kosningum. 16. ágúst 2026 17:43