Kaupmáttur eftir húsnæðiskostnað 27% minni en fyrir fimm árum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar 27. ágúst 2026 14:41 Það er merkilegt hvernig sumir helstu verkalýðsforkólfar landsins, þeir sem við þekkjum best og eru hvað duglegastir að koma sér á framfæri í fjölmiðlum, hafa tekið sterka afstöðu gegn ESB. Ekki aðeins gegn aðild, heldur gegn því að aðildarviðræður fari fram og almenningur fái að sjá hvaða samningur næst og kjósa síðan um hann. Þeir hafa þannig skipað sér í sveit með ríkasta fólki landsins og sterkustu sérhagsmununum. Sumir þeirra ganga jafnvel svo langt að tala um verðbólgu og vexti eins og þetta sé allt saman einföld spurning um vilja. Ef við bara vildum gætum við lækkað vextina strax á morgun. Slík fullyrðing særir almenna skynsemi þegar saga vaxta á Íslandi er skoðuð. Íslensk heimili hafa búið við viðvarandi og mikinn vaxtamun gagnvart evrusvæðinu áratugum saman. Vextir eru auðvitað mannanna verk, en ef pólitískur vilji einn og sér dygði til að halda þeim lágum hefðum við varla búið við þetta vaxtastig jafn lengi og raun ber vitni. Þetta er fólkið sem telur sig vita betur en við hvaða valkostir mega standa okkur til boða. Þetta er líka fólkið sem hefur staðið í kjarabaráttu fyrir okkar hönd. Skoðum því hvernig sú barátta hefur gengið síðustu árin. Við skulum byrja þegar vextir hér voru hvað lægstir. Þá voru þeir reyndar lágir um alla Evrópu vegna Covid-faraldursins. Munurinn er sá að síðan hafa þeir hækkað mun meira hér en á evrusvæðinu. Í maí 2021 fóru lægstu óverðtryggðu íbúðalánavextir niður í 3,3% og greiðslubyrði 50 milljóna króna jafngreiðsluláns til 40 ára var þá um 188.500 krónur á mánuði. Landsbankinn og Kjarninn Við berum hér saman sömu lánsfjárhæð til sama lánstíma við vaxtakjörin þá og nú. Þetta er því samanburður á vaxtaumhverfinu, ekki greiðsluferill sama láns. Tökum launamann sem var með 600 þúsund krónur í mánaðarlaun árið 2021. Eftir skatt og 4% lífeyrisiðgjald fékk hann um 430.900 krónur útborgaðar. Ef laun hans hefðu fylgt launavísitölu væru þau komin í um 873 þúsund krónur og nettólaunin í um 624.600 krónur. Miðað er við fullan persónuafslátt og engin stéttarfélagsgjöld. Launavísitala Hagstofunnar, skattþrep 2021 og skattþrep 2026 Miðað við 9,25% vexti á nýjum óverðtryggðum lánum er greiðslubyrði sambærilegs láns í dag um 395.300 krónur á mánuði. Íslandsbanki Við útreikning á kaupmætti nettólauna er miðað við almenna vísitölu neysluverðs. Eftir að húsnæðisgreiðslan hefur verið dregin frá er miðað við vísitölu neysluverðs án húsnæðis, svo húsnæðiskostnaðurinn sé ekki talinn tvisvar. Frá maí 2021 til ágúst 2026 hækkaði almenna vísitalan um 38,5% en vísitalan án húsnæðis um 29,7%. Hagstofan í maí 2021 og Hagstofan í ágúst 2026 Þarna liggur niðurstaðan. Nettólaunin hafa hækkað um tæplega 194 þúsund krónur en greiðslubyrðin um tæplega 207 þúsund. Launamaðurinn hefur því um 13 þúsund krónum minna eftir en árið 2021, áður en tekið er tillit til verðhækkana á öðrum nauðsynjum. Til samanburðar má skoða Króatíu, nýjasta aðildarríki ESB, sem tók upp evru árið 2023. Þar voru meðalnettólaun um 943 evrur í maí 2021 en voru komin í 1.552 evrur í maí 2026. Verðlag hækkaði um rúm 34% á sama tíma og kaupmáttur meðalnettólauna því um rúm 22%. Króatíska hagstofan 2021, Króatíska hagstofan 2026, verðlagstölur 2021, verðlagstölur 2026 og fast gengi kúnunnar gagnvart evru Meðalvextir nýrra húsnæðislána í Króatíu voru 2,45% í maí 2021 og 2,91% í maí 2026. Ef við berum á sama hátt saman 100 þúsund evra jafngreiðslulán til 30 ára við vaxtakjörin þá og nú lítur þróunin svona út. Seðlabanki Evrópu og króatíski seðlabankinn Þetta sannar ekki að evran ein og sér hafi valdið launahækkunum í Króatíu. Það sýnir hins vegar raunverulega þróun í nýjasta aðildarríki ESB. Þar hækkuðu meðalnettólaun um 609 evrur á mánuði á meðan greiðslubyrði sambærilegs láns hækkaði um 24 evrur. Hér á Íslandi hækkuðu nettólaunin í dæminu minna en greiðslubyrði lánsins. Þetta er hinn kaldi veruleiki fólks á Íslandi. Hefðbundnar kaupmáttarmælingar segja okkur að kaupmáttur launa hafi aukist. En fólk greiðir ekki reikningana með prósentum á blaði. Það greiðir þá með peningunum sem standa eftir á reikningnum þegar búið er að greiða húsnæðið. Þetta sannar heldur ekki að ESB-aðild leysi sjálfkrafa öll okkar vandamál. Enda er ekki kosið um aðild á laugardaginn, heldur hvort Ísland eigi að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið. Ef viðræðurnar skila samningi hefur ríkisstjórnin boðað að hann verði lagður fyrir þjóðina í annarri þjóðaratkvæðagreiðslu. Þá fáum við að sjá hvaða samningur býðst og taka upplýsta ákvörðun um hann. Upplýsingavefur landskjörstjórnar Fyrir marga þeirra sem vilja fá samninginn á borðið er lokamarkmiðið að taka upp evru og tryggja íslensku efnahagslífi sterkari bakhjarl. Eitt meginmarkmiðið er að færa íslenskt vaxtaumhverfi nær því sem tíðkast á evrusvæðinu, ef og þegar evra yrði tekin upp. Já á laugardaginn er ekki loforð um lægri vexti. Það opnar hins vegar leið að markmiði sem gefur raunhæfan möguleika á lægri vöxtum, minni verðbólgu og stöðugra efnahagslífi. Það er mun bjartari framtíðarsýn en að sætta sig við háa vexti næstu áratugina, alveg eins og við höfum gert síðustu áratugi. Höfundur er stafrænn hönnuður og mun segja já við að sjá á laugardaginn. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Skoðun Virðir Alþingi úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst? Hjörtur Hjartarson Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Skoðun Skoðun Einstakt tækifæri til að auka kaupmátt sem við gætum misst af næstu 30 árin!! Baldur Pétursson skrifar Skoðun Þess vegna segjum við NEI þann 29. ágúst Þorvaldur Þorvaldsson skrifar Skoðun Ég kýs JÁ ! - Hvers vegna? skrifar Skoðun Kveðja til hleðslukvíðans Úlfar Linnet skrifar Skoðun Samkeppnishæfni Íslands Ingvar Þóroddsson skrifar Skoðun Kaupmáttur eftir húsnæðiskostnað 27% minni en fyrir fimm árum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Virðir Alþingi úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst? Hjörtur Hjartarson skrifar Skoðun Stöðug króna, afnám verðtryggingar og nýtt hlutverk Íslands í alþjóðlegu fjármálakerfi Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Traust er ekki sjálfgefið Hilmar Freyr Gunnarsson skrifar Skoðun Evrópusambandið, skjól frá Bandaríkjunum? Guttormur Þorsteinsson skrifar Skoðun Þegar ríkið tekur reikninginn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Falleinkunn heima, en hugurinn í Brussel Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Tökum slaginn fyrir börnin Tótla I. Sæmundsdóttir,Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir skrifar Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson skrifar Skoðun Borgin þarf ekki kjötexi — hún þarf mælikerfi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson skrifar Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Þegar efinn verður þýðingarmeiri en sannleikurinn Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Sjálfstæð þjóð tekur sér sæti við borðið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ræður Evrópusambandið hvort dánaraðstoð verði leyfð á Íslandi? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun 4.677 nýir vegfarendur á leið í skólann Lára Hrafnsdóttir,Gunnar Geir Gunnarsson skrifar Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Einstakt tækifæri til að auka kaupmátt sem við gætum misst af næstu 30 árin!! Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Kaupmáttur eftir húsnæðiskostnað 27% minni en fyrir fimm árum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar
Skoðun Stöðug króna, afnám verðtryggingar og nýtt hlutverk Íslands í alþjóðlegu fjármálakerfi Eggert Guðmundsson skrifar