Stöndum með blaðamönnum Sigríður Dögg Auðunsdóttir skrifar 27. ágúst 2026 16:33 Á laugardaginn fer fram þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Augu heimsins fylgjast með en yfir fimmtíu erlendir blaðamenn eru nú staddir á Íslandi og bætast við þau hundruð íslenskra blaðamanna sem starfa hér við að upplýsa fólk. Samkvæmt niðurstöðum nýrrar könnunar Maskínu fær þjóðin upplýsingar um þjóðaratkvæðagreiðsluna að langmestu leyti frá fjölmiðlum. Í umfjöllun fréttamiðla um svo umdeilt mál, þar sem vegast á ólíkir hagsmunir, pólitík og tilfinningar, reynir á skyldur blaðamanna við almenning - að miðla réttum og sönnum upplýsingum, standa með tjáningarfrelsinu og tryggja rétt fólks til upplýsinga. Slíkar aðstæður undirstrika mikilvægi vandaðrar, faglegrar blaðamennsku og sjálfstæðra fjölmiðla. Í þessari umræðu, þar sem mjótt er á munum og aðeins tveir kostir í boði - já og nei, hefur borið á því að heilindi og erindi blaðamanna séu dregin í efa. Einstökum blaðamönnum og heilu fjölmiðlunum hafa opinberlega verið gerðar upp skoðanir og látið að því liggja að með því að spyrja krefjandi spurninga og draga fram réttar upplýsingar sé verið að ganga erinda tiltekinna hagsmunahópa. Þessari aðferð er jafnvel beitt markvisst til þess að bregðast við óþægilegri umfjöllun eða verja pólitíska hagsmuni og er ætlað að færa athyglina frá efni umfjöllunarinnar yfir á persónur blaðamanna. Slíkt grefur undan trausti almennings á fjölmiðlum og þar með getu fólks til að greina á milli faglegrar blaðamennsku og áróðurs. Blaðamenn starfa í þágu almennings og almenningur hefur fullan rétt á að gagnrýna störf þeirra. Slík gagnrýni er eðlilegur og mikilvægur hluti af heilbrigðu fjölmiðlaumhverfi og lýðræðislegri umræðu. En það er grundvallarmunur á málefnalegri gagnrýni og að ráðast á trúverðugleika, heilindi eða fagmennsku blaðamanna og fjölmiðla almennt. Blaðamannafélag Íslands stendur með þeim blaðamönnum sem hafa undanfarið spurt krefjandi spurninga, tekið saman gögn, sett þau í samhengi og miðlað þeim til almennings af heilindum, fagmennsku og virðingu fyrir tjáningarfrelsinu og rétti almennings til upplýsinga. Höfundur er formaður Blaðamannafélags Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fjölmiðlar Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Sigríður Dögg Auðunsdóttir Mest lesið Halldór 26.09.2026 Halldór Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Skoðun Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson skrifar Sjá meira
Á laugardaginn fer fram þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Augu heimsins fylgjast með en yfir fimmtíu erlendir blaðamenn eru nú staddir á Íslandi og bætast við þau hundruð íslenskra blaðamanna sem starfa hér við að upplýsa fólk. Samkvæmt niðurstöðum nýrrar könnunar Maskínu fær þjóðin upplýsingar um þjóðaratkvæðagreiðsluna að langmestu leyti frá fjölmiðlum. Í umfjöllun fréttamiðla um svo umdeilt mál, þar sem vegast á ólíkir hagsmunir, pólitík og tilfinningar, reynir á skyldur blaðamanna við almenning - að miðla réttum og sönnum upplýsingum, standa með tjáningarfrelsinu og tryggja rétt fólks til upplýsinga. Slíkar aðstæður undirstrika mikilvægi vandaðrar, faglegrar blaðamennsku og sjálfstæðra fjölmiðla. Í þessari umræðu, þar sem mjótt er á munum og aðeins tveir kostir í boði - já og nei, hefur borið á því að heilindi og erindi blaðamanna séu dregin í efa. Einstökum blaðamönnum og heilu fjölmiðlunum hafa opinberlega verið gerðar upp skoðanir og látið að því liggja að með því að spyrja krefjandi spurninga og draga fram réttar upplýsingar sé verið að ganga erinda tiltekinna hagsmunahópa. Þessari aðferð er jafnvel beitt markvisst til þess að bregðast við óþægilegri umfjöllun eða verja pólitíska hagsmuni og er ætlað að færa athyglina frá efni umfjöllunarinnar yfir á persónur blaðamanna. Slíkt grefur undan trausti almennings á fjölmiðlum og þar með getu fólks til að greina á milli faglegrar blaðamennsku og áróðurs. Blaðamenn starfa í þágu almennings og almenningur hefur fullan rétt á að gagnrýna störf þeirra. Slík gagnrýni er eðlilegur og mikilvægur hluti af heilbrigðu fjölmiðlaumhverfi og lýðræðislegri umræðu. En það er grundvallarmunur á málefnalegri gagnrýni og að ráðast á trúverðugleika, heilindi eða fagmennsku blaðamanna og fjölmiðla almennt. Blaðamannafélag Íslands stendur með þeim blaðamönnum sem hafa undanfarið spurt krefjandi spurninga, tekið saman gögn, sett þau í samhengi og miðlað þeim til almennings af heilindum, fagmennsku og virðingu fyrir tjáningarfrelsinu og rétti almennings til upplýsinga. Höfundur er formaður Blaðamannafélags Íslands.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar