Umræðan í aðdraganda kosninga Geir Rögnvaldsson skrifar 28. ágúst 2026 08:00 Fjölmiðlar í nútímaskilningi voru ekki til í upphafi 20. aldar. Leið stjórnvalda til að tala við þjóð sína var í gegnum prentmál. Ný tækni hefur gjörbreytt fjölmiðlaumhverfinu og það þurfti að læra á þessa nýju miðla og hvernig hægt er að nota þá. Til að gera langa sögu stutta þá hefur orðið til heil fræðigrein sem fjallar um það hvernig hægast er að hafa áhrif á almenningsálitið. Þá er ekki alltaf skeytt um sannleikann,- tilgangurinn helgar meðalið. Fljótlega varð ljóst að hafa mátti áhrif á almenningsálitið með því að koma þeim upplýsingum á framfæri sem henta tilteknum málstað hverju sinni en halda öðrum frá almenningi. Menn lærðu líka að áhrifameira var að höfða til tilfinninga en að standa í rökræðum. Því skiptir miklu máli hver ræður yfir fjölmiðlinum. Klifun er ein af brellunum sem hafa reynst vel. Segja sama hlutinn aftur og aftur, sama hverju andstæðingurinn svarar. Ef þú segir það nógu oft fer fólk að trúa þér[BH1] . Meginatriði í neikvæðri umfjöllun er að gera andstæðinginn varhugaverðan ef ekki beinlínis hættulegan. Hann hefur annarlegan tilgang með ræðu sinni og fer ekki með staðreyndir málsins. Sterkar fullyrðingar virka vel. Eitthvað sem grípur augað. Hvort sem það er satt eða logið. Andstæðingurinn verður þá að eyða sínum tíma af athygli fjölmiðla til að leiðrétta misskilninginn og neikvæð umræða stjórnar för. (Let the bastards deny it, sagði Lyndon B. Johnson, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna.) Hliðstætt dæmi um þennan málflutning er t.d. sú fullyrðing að við munum tapa yfirráðum okkar yfir auðlindum landsins ef við segjum já, sama hvað hver segir. Á mánudaginn sl. birtist grein í Morgunblaðinu eftir Torben Foss, fyrrverandi samningamann Noregs í aðildarsamningunum við ESB 1994, undir fyrirsögninni ,,Kæra Heiðrún Lind – fullyrðing þín er einfaldlega röng.“ Þar kemur fram að Norðmenn fengu varanlega undanþágu fyrir sjávarútveg árið 1994 í þeim samningi sem Norðmenn síðan höfnuðu. Samt heldur SFS því fram að engar varanlegar undanþágur frá sjávarútvegsstefnu ESB séu mögulegar. Raunar stendur þar líka að Íslendingar hafi fengið varanlega undanþágu frá reglunni um eignarhald í sjávarútvegi með EES samningnum. Við höfum full yfirráð yfir sjávarauðlindinni nú þegar og allar áhyggjur af þeim málum ættu því að vera óþarfar. Þá hefur alltaf reynst vel að höfða til ótta almennings. Dæmi um slíkt er t.d. ef við segjum já á laugardag að þá verði Trump reiður. Það er voðalegt. Förum frekar tvisvar til Washington fyrir hverja eina ferð til Brussel. Þá verður Trump vonandi ekki reiður. Við þurfum eiginlega fyrst að spyrja hann hvað honum finnst áður en við tökum ákvörðun. Besta vörnin gegn hræðsluáróðri er að ræða það sem skiptir máli. Á laugardaginn kemur verður kosið um hvort við viljum halda áfram viðræðum við ESB. Um annað verður ekki kosið. Það eru líka rök gegn aðild að ESB. Þau eiga að koma fram og vera rædd. Það er ekki andstaða mín við gagnrýni á ESB sem slíkri sem ég gagnrýni, heldur þegar ótti og rangfærslur koma í stað málefnalegrar umræðu. En ég get talað fyrir sjálfan mig. Ástæða þess að ég er hallur undir Evrópusambandið er m.a. Innri markaðurinn Fjórfrelsið Schengen samstarfið Matvælaöryggi Neytendavernd Menntun og rannsóknir Umhverfismál Alþjóðlegt samstarf Þekkingaruppbyggingu á Íslandi hefur verið náð með aðgengi að samstarfsáætlunum ESB. Þar skiptir að sjálfsögðu aðgangur að styrkjum og fjármagni miklu máli en ekki síður aðgengi að alþjóðlegu samstarfi í vísindum og háskólakennslu. Án þessa samstarfs væri óvíst um stöðu ýmissa greina sem nú teljast til undirstöðuatvinnuvega landsins. Lífvísindi eru dæmi sem vert er að minnast. Stefna ESB í umhverfismálum og að stuðla að líffræðilegum fjölbreytileika er unnin af færustu sérfræðingum á sviðinu og fjármögnuð með áætlunum á borð við Horizon. Grunngildin í öllum þessum áætlunum eru jafnrétti, mannréttindi, friður og óheft aðgengi að menntun og færni óháð stétt og stöðu í samfélaginu. Þetta eru gildi sem standa höllum fæti í BNA og Kína. Ég ætla ekki að láta kúga mig til þess að segja nei n.k. laugardag með hótunum um ævarandi missi allra auðlinda landsins, að þjóðaratkvæðagreiðsla verði aldrei aftur háð á Íslandi og að þjóðin verði kúguð til þess að slökkva á ofnum sínum í byrjun maí og fram í október. Þá skilst mér að ESB liggi á því lúalagi að ætla að stela rafmagnsframleiðslunni í landinu og flytja hana með sæstreng til Evrópu. Svona málflutningur gerir lítið úr dómgreind kjósenda. Ég segi já á laugardag. Höfundur er fyrrverandi framhaldsskólakennari á eftirlaunum. [BH1]eitthvað er sagt nógu oft fer fólk að trúa. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Fjölmiðlar Mest lesið Halldór 26.09.2026 Halldór Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Skoðun Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar