Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Aron Guðmundsson skrifar 28. ágúst 2026 09:01 Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Englandsmeistara Arsenal Vísir/getty Bruno Guimaraes og Ezri Konsa gætu spilað sinn fyrsta leik fyrir Englandsmeistara Arsenal í ensku úrvalsdeildinni á mánudaginn. Mikel Arteta, knattspyrnustjóri liðsins, þurfti að svara fyrir ansi margt á blaðamannafundi í gær.
Bruno, sem var keyptur til Arsenal frá Newcastle United fyrir tímabilið, kom við sögu í leiknum um Samfélagsskjöldin en meiddist svo fyrir fyrsta leik Arsenal í deildinni gegn Coventry City. Hann er byrjaður að æfa á nýjan leik og gæti komið við sögu gegn Aston Villa á útivelli á mánudaginn. Þá gæti Ezri Konsa, nýr varnarmaður Arsenal sem keyptur var frá Aston Villa, spilað sinn fyrsta leik fyrir félagið og þá gegn sínu gamla félagi. „Hann er klár. Er búinn að vera æfa mjög vel og er til taks,“ sagði Arteta á blaðamannafundi um Konsa. Á sama tíma er mikið hvíslað um það hvort Arsenal muni geta nælt í argentínska sóknarmanninn Julian Alvarez frá Atletico Madrid. Arteta neitaði að tjá sig um leikmanninn á blaðamannafundinum. Þá er búist við því að Brasilíumennirnir og nafnarnir Gabriel Martinelli og Gabriel Jesus yfirgefi Arsenal fyrir lok félagsskiptagluggans í næstu viku. Martinelli er langt kominn með að færa sig um set til Sádi-Arabíu. Martinelli gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Arsenal.Getty/Jacques Feeney Jesus æfði ekki með Arsenal í gær og þá yfirgaf Martinelli æfingarsvæði félagsins á undan öðrum. „Þetta er bara eitt af þessum persónulegum málum sem við erum að eiga við. Ég tel að allir viti það hversu mikið við elskum Martinelli. Hver sem útkoman verður, þá verður hún ofan á vegna þess að allir séu sammála um að hún sé sú rétta í stöðunni.“
Enski boltinn Arsenal FC Aston Villa FC Mest lesið Biðst afsökunar og afsalar sér sigrinum Sport Varð skotmark með því að ráða Frey: „Ákveðin áhætta fyrir mig“ Fótbolti Mun saga Arons endurtaka sig? Fótbolti Seldur frá Keflavík til Sýrlands Íslenski boltinn Heimir ræddi við hvern einasta leikmann um leikina við Ísraela Fótbolti „Eins og að horfa á bíómynd“ Sport Strákarnir á Saga Class en stelpurnar aftar í vélinni Sport Tætti í sig fulltrúa ungstirnisins: „Hvernig eruð þið að hugsa um þennan strák?“ Enski boltinn Orri grátlega nálægt því að tryggja stig fyrir Real Sociedad Fótbolti „Ef þetta hefði verið ég þá hefði ég hætt keppni“ Sport Fleiri fréttir Ungstirni Manchester City tryggðu liðinu stórsigur Tætti í sig fulltrúa ungstirnisins: „Hvernig eruð þið að hugsa um þennan strák?“ Boehly selur og kveður Chelsea Sunderland vann í fyrsta Evrópuleiknum síðan 1973 Enn eitt áfallið fyrir Manchester United Stórlaxarnir á eftir vonarstjörnu Manchester United sem vill burt Sjáðu svakalega sleggju Szoboszlai 16 ára í stuði er Arsenal og Liverpool fóru áfram Vonarstjarna Man. Utd vill burt frá félaginu Raheem Sterling játar sök Sjáðu veislu Leeds og markið sem gerði framherjann brjálaðan „Hann er betri útgáfa af Gerrard“ Richarlison sorgmæddur: „Af hverju?“ Milner aftur til Liverpool Leedsarar léku sér að Newcastle VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Goðsögn hjá West Ham fallin frá „Eins og þeir séu hræddir við að vinna“ Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Rio betri en Barcola: „Ekki þess virði sem þeir keyptu hann á“ Sjáðu ólöglega sigurmarkið og rauðu spjöldin „Markið hefði ekki átt að standa“ Myndbandsdómgæsla gerði mistök í sigurmarki Haaland Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Hjörvar og Schmeichel spáðu í spilin fyrir grannaslaginn Manchester-borg er blá eftir tíu manna sigur Brighton valtaði yfir nýliðana Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Sjá meira