Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Kjartan Kjartansson skrifar 28. ágúst 2026 13:20 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir við Politico að mögulega gæti hann látið nægja að spyrja ESB hvað Íslandi standi til boða frekar en að hefja aðildarviðræður ef hann kemst til valda eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna á morgun. Vísr/Vilhelm Formaður Miðflokksins segir erlendum fjölmiðli að ríkisstjórn Íslands verði mögulega ekki skuldbundin til að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandsins jafnvel þótt það verði ofan á í þjóðaratkvæðagreiðslu á morgun. Hann hefur ekki áhyggjur af ásælni Bandaríkjaforseta í Grænland.
Evrópska blaðið Politico hefur eftir Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra, að orðalag spurningarinnar sem verður lögð fyrir íslenska kjósendur á morgun sé svo óljós að hún skuldbindi stjórnvöld ekki til þess að hefja aðildarviðræður. „Ef ég verð utanríkisráðherra eða utanríkisráðherra seinna, hefur ég uppfyllt þetta með því að spyrja Evrópusambandið einfaldlega: hvað eruð þið tilbúin að gefa okkur?“ segir Sigmundur Davíð við blaðið. Þá segir hann ásælni Donalds Trump Bandaríkjaforseta í Grænland enga ástæðu fyrir Ísland að ganga í Evrópusambandið. „Ég get skilið að það sé bæði pirrandi og áhyggjuefni fyrir vinu okkar á Grænlandi og í Danmörku en ég held ekki að við ættum að lesa of mikið í stóryrðin,“ segir formaðurinn. Sjálfur telji hann enga hættu á að Bandaríkin taki Grænland með hervaldi. „Ég leit alltaf á þetta sem hluta af fíflalátum [Trump].“ Missa stjórn á „lýðfræðilegum örlögum“ Íslands Þá hefur blaðið eftir Snorra Mássyni, varaformanni Miðflokksins, að hann sé ekki á móti áframhaldandi aðild Íslands að evrópska efnahagssvæðinu en að hann vilji breytingar á því til þess að koma í veg fyrir innflutning á fólki til Íslands. „Við erum smáþjóð, 400.000 manns, með einstaka menningu, einstakt tungumál, og þú veist, fjöldi innflytjenda hefur rokið upp síðustu ár. Ef við stefnum raunverulega á að missa stjórn yfir lýðfræðilegum örlögum okkar myndi ég að sjálfsögðu vilja bregðast við því,“ segir Snorri sem hefur ítrekað haldið því fram að verið sé að skipta innfæddum Íslendingum út fyrir innflytjendur af öðrum uppruna.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Miðflokkurinn Utanríkismál Evrópusambandið Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira