Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar 28. ágúst 2026 14:21 Ríki heimsins eru sundurleit hjörð. Þau eru stór og smá, rík og fátæk, lýðræðis- og einræðisríki. Þau hafa ólíka hagsmuni, ólíka sögu og ólíkar hugmyndir um réttlæti. Yfir þeim er engin sameiginleg ríkisstjórn, engin lögregla og enginn dómstóll með óskorað vald til að halda uppi lögum og reglu. Alþjóðakerfið er í eðli sínu stjórnlaust. Þar eru vissulega samningar, stofnanir og reglur, en enginn tryggir að þeim sé fylgt. Þegar á reynir eru það oft hin stærri og sterkari ríki sem ráða ferðinni. Þau smærri geta mótmælt, vísað til laga og kallað eftir stuðningi, en geta sjaldnast knúið fram vilja sinn eða rétt ein og óstudd. Þetta er heimur þar sem fullveldi ríkja er viðurkennt í orði en máttur þeirra ræður miklu um það hvers virði það er í reynd. Evrópa í báðum heimsstyrjöldum er gott dæmi um það. Í þessum heimi er Evrópusambandið merkileg og metnaðarfull tilraun. Þar hafa frjáls og fullvalda ríki hafa ákveðið að binda sig saman með lögum, sameiginlegum stofnunum og gagnkvæmum skuldbindingum. Þau hafa fallist á að leysa ágreining við samningaborð, lúta sameiginlegum niðurstöðum og setja valdi sínu mörk. Þetta er ekki sjálfsagt. Ríki gefa sjaldnast eftir frelsi til athafna nema þau telji sig fá eitthvað mikilvægt í staðinn. Innan Evrópusambandsins fá þau ekki aðeins aðgang að sameiginlegum markaði. Þau fá aðild að samfélagi þar sem leikreglurnar eiga að gilda jafnt fyrir alla og þar eiga jafnvel smæstu ríkin rödd. Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti. Þau greinir á um efnahagsmál, fólksflutninga, öryggi, landbúnað og framtíð sambandsins sjálfs. En þau hafa komið sér saman um að ágreiningurinn skuli leystur innan sameiginlegs ramma. Þess vegna er sambandið hægfara, flókið og regluverkið stundum þunglamalegt. Þar þarf að sætta ólíka hagsmuni og finna málamiðlanir þar sem enginn nær öllu sínu fram. Það getur verið þreytandi að fylgjast með því. En kannski er þetta einmitt eðli samstarfs frjálsra ríkja. Evrópusamstarfið er hávært, seinlegt og ófullkomið vegna þess að þar þarf að semja. Valdbeiting er mun einfaldari. Þeir sem líta á sameiginlegar reglur Evrópusambandsins sem skerðingu á fullveldi hafa að vissu leyti rétt fyrir sér - þó fullveldishugtakið sé margslungið í sjálfu sér og efni í annan pistil. Aðildarríkin geta ekki lengur farið sínu fram í öllum málum. Þau hafa sjálf samþykkt að gangast undir reglur sem gilda fyrir öll ríki innan sambandsins. En reglurnar takmarka ekki aðeins hin smærri. Þær setja einnig valdi hinna stærri skorður. Þær draga úr möguleikum sterkra ríkja til að þröngva vilja sínum upp á þau veikari. Í því felst ekki aðeins afsal fullveldis heldur einnig vernd þess. Formlegt frelsi til að standa einn er nefnilega ekki það sama og raunverulegt vald til að ráða eigin örlögum. Smáríki getur haft fána, gjaldmiðil og rétt til að segja nei en samt verið háð ákvörðunum stórvelda um öryggi, viðskipti, tækni og auðlindir. Í stjórnlausu alþjóðakerfi tryggir fullveldið eitt og sér ekki sjálfstæði. Stundum er það einmitt samstarfið sem gerir smáríkjum kleift að varðveita það. Evrópusambandið er ekki fullkomin birtingarmynd fallegrar hugsjónar. Þar er valdamunur milli ríkja og hagsmunabarátta. Sambandið getur brugðist eigin gildum og þarf stöðugt að takast á um hvað það á að vera. En grundvallarhugmyndin er engu að síður stórmerkileg: Að fullvalda ríki geti ákveðið að temja valdið, binda hendur sínar með sameiginlegum reglum og vinna saman að málum sem ekkert þeirra ræður við eitt. Þess vegna snýst umræðan um Evrópusambandið ekki aðeins um krónur og aura, evrur og vexti. Hún snýst líka um það hvers konar skipan við viljum að ríki Evrópu búi við. Viljum við Evrópu þar sem ríkin lúta sameiginlegum reglum, semja um ágreining sinn og standa saman þegar á þau er sótt? Eða Evrópu sundraðra þjóðríkja þar sem hvert og eitt reynir að tryggja eigin hag og þau smærri leita skjóls hjá þeim stærri? Evrópusambandið er ófullkomin tilraun til að leysa eilífan vanda alþjóðastjórnmála: Hvernig fáum við frjáls og fullvalda ríki til að fylgja reglum þegar enginn stendur yfir þeim? Það eitt að ríki Evrópu hafi reynt það - og haldið tilrauninni gangandi - er merkilegra en við gerum okkur oft grein fyrir. Svo vil minna á í lokin að atkvæðagreiðslan 29. ágúst er einungis um hvort við íslendingar eigum að hefja samningaviðræður við Evrópusambandið - EKKI um aðild. Höfundur er stjórnmálafræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Martha Árnadóttir Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Halldór 31.10.26 Halldór Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? Skoðun Skoðun Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? skrifar Skoðun Hugmyndakassinn Perla Hafþórsdóttir skrifar Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Óðinn heldur fyrir heila augað Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar skrifar Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir skrifar Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Sjá meira
Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun
Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson Skoðun
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar
Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun
Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson Skoðun
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun