Handbolti

Jóhanna Margrét skoraði fimm­tán þegar Haukar unnu Meistara­keppnina

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jóhanna Margrét Sigurðardóttir byrjar tímabilið af krafti.
Jóhanna Margrét Sigurðardóttir byrjar tímabilið af krafti. vísir/ernir

Haukar báru sigurorð af Íslands- og bikarmeisturum Vals, 28-36, í Meistarakeppni kvenna í handbolta í kvöld. Jóhanna Margrét Sigurðardóttir fór mikinn fyrir Hafnfirðinga í leiknum á Hlíðarenda.

Haukum var spáð 2. sæti Olís-deildar kvenna í árlegri spá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna liðanna í deildinni sem var kynnt í dag. Val var spáð 3. sætinu.

Jóhönnu Margréti héldu engin bönd í kvöld en hún skoraði fimmtán mörk fyrir Hauka.

Valur var með frumkvæðið fyrstu mínúturnar en fljótlega náðu Haukar undirtökunum og góðri forystu.

Jóhanna Margrét kom Haukum í 9-15 en Valur skoraði síðustu þrjú mörk fyrri hálfleiks og staðan að honum loknum því 12-15.

Valskonur sóttu að Haukum framan af seinni hálfleik en náðu aldrei að minnka muninn í minna en tvö mörk.

Eftir síðasta skiptið sem það gerðist, 22-24, svöruðu Haukar með 6-2 kafla og bjuggu sér til gott andrými, 24-30. Á endanum munaði átta mörkum á liðunum, 28-36.

Embla Steindórsdóttir var næstmarkahæst hjá Haukum með fimm mörk og Þóra Björg Stefánsdóttir skoraði fjögur.

Guðrún Hekla Traustadóttir skoraði níu mörk fyrir Val, Ásdís Þóra Ágústsdóttir sex og Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir fimm.

Valur tekur á móti Selfossi í 1. umferð Olís-deildar kvenna laugardaginn 5. september. Daginn eftir fá Haukar nýliða HK í heimsókn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×