Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta Sindri Sverrisson skrifar 30. ágúst 2026 20:45 Olga Færseth og dóttir hennar Kolfinna Rán ásamt Þóru vinkonu hennar. Það var létt yfir þeim í Bestu mörkunum. Sýn Sport Helena Ólafsdóttir fékk góða gesti til sín í Bestu mörkin á Sýn Sport Ísland í dag. Í þeim hópi voru tvær mestu markamaskínur sem Ísland hefur átt sem og ungar vinkonur sem kynntust á sjúkrahúsi, í baráttu sinni við krabbamein.
Í þættinum var vakin athygli á Treyjudeginum sem haldinn verður næsta föstudag en þá klæðist fólk sinni uppáhalds fótboltatreyju og er tilgangurinn að sýna stuðning við börn með krabbamein. Það gerðu einnig leikmenn fyrir leiki í Bestu deildunum nú um helgina sem og Helena og gestir hennar í Bestu mörkunum, eins og sjá má. Klippa: Fyrirmyndir Margrétar Láru í Bestu mörkunum Olga Færseth og Margrét Lára Viðarsdóttir, tvær markahæstu konur efstu deildar Íslands frá upphafi, voru í þættinum. Þar var einnig Kolfinna Rán Færseth, dóttir Olgu, og vinkona hennar Bergþóra Guðrún Bæringsdóttir, eða Þóra. Kolfinna og Þóra kynntust á sjúkrahúsi en báðar hafa þær þurft að há erfiða baráttu við krabbamein, og haft betur, en eiga það einnig sameiginlegt að hafa mikinn áhuga á fótbolta. Í treyjum frá Karólínu og Glódísi Kolfinna var í sinni uppáhaldstreyju, enskri landsliðstreyju sem Glódís Perla Viggósdóttir útvegaði frá vinkonu sinni Georgiu Stanway, og Bergþóra í Inter-treyju sem Karólína Lea Vilhjálmsdóttir hafði áritað. Helena var að sjálfsögðu í KR-treyju en Olga valdi íslenska landsliðstreyju. „Ég elska íslenska kvennalandsliðið og svo var þetta ein af fáum treyjum sem ég passaði ennþá í,“ sagði Olga létt og uppskar hlátur. Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir var sömuleiðis í þættinum, íklædd treyju af Þuríði Örnu Óskarsdóttur frænku sinni sem greindist með krabbamein sem barn og lést fyrir þremur árum. „Við dáumst að ykkur“ Margrét Lára var í Turbine Potsdam-treyju, en þar spilaði hún árið 2012, og þessi langmarkahæsta landsliðskona Íslands frá upphafi var með skilaboð til hinna ungu sessunauta sinna: „Þið eigið fótboltastelpurnar sem ykkar fyrirmyndir en svo eruð þið svo miklar fyrirmyndir fyrir okkur öll, í ykkar baráttu. Við dáumst að ykkur og höldum rosalega mikið með ykkur. Berjumst með ykkur áfram og hlökkum til að fylgjast með ykkur halda áfram ykkar vegferð, og sjáum ykkur kannski á vellinum von bráðar.“ Nánar má lesa um Treyjudaginn með því að smella hér.
Besta deild kvenna Bestu mörkin Krabbamein Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Sjá meira