Sport

Keppti langt fram á nótt og tapaði fimm­tánda leiknum í röð

Valur Páll Eiríksson skrifar
Venus tapaði enn einum leiknum í nótt.
Venus tapaði enn einum leiknum í nótt. EPA/Thais Llorca

Venus Williams féll úr leik í fyrstu umferð á Opna bandaríska mótinu í tennis eftir að hafa leikið langt fram á nótt.

Hin 46 ára gamla Williams tapaði fyrir Sofiu Kenin 6-2 7-6 (8-6) í New York í nótt í leik sem hófst eftir miðnætti á staðartíma og stóð yfir til klukkan tvö.

Aldrei hefur leikur byrjað svo seint í sögu mótsins en hann hófst í kjölfar þess að Mariano Navone sló Novak Djokovic úr leik í fimm setta leik.

Um var að ræða fimmtánda tap Williams í einliðaleik í röð en leikurinn hófst klukkan 00:13 í nótt.

„Þetta er ekki tilvalið,“ sagði Williams.

„Ég hefði klárlega kosið eitthvað annað. Ég held að þetta hafi ekki verið frábært fyrir hvoruga okkar, svo ég held að við höfum bæði reynt okkar besta,“ segir Williams og bætir við:

„Ég veit um enga aðra íþrótt þar sem maður þarf að byrja svona seint. Ég held klárlega hægt að gera betur þar.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×