Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 31. ágúst 2026 12:03 Logi Einarsson segir stjórnvöld fylgjast með stöðunni. Vísir/Vilhelm Logi Einarsson menningar- og nýsköpunarráðherra segir áfall að heyra að kvöldfréttir Sýnar verði lagðar niður en síðasti sjónvarpsfréttatíminn fer í loftið í kvöld, eftir tæplega fjörutíu ára sögu.
Greint var frá því í morgun að Sýn hafi ákveðið að hætta framleiðslu og útsendingu sjónvarpsfrétta frá og með morgundeginum, 1. september. Síðasti sjónvarpsfréttatíminn verður því sendur út í kvöld á Sýn og hafa breytingarnar í för með sér uppsagnir, að því er segir í tilkynningu til Kauphallar. Fyrsti sjónvarpsfréttatími Sýnar, þá Stöðvar 2 fór í loftið þann 9. október árið 1986, fyrir tæpum fjörutíu árum. Logi Einarsson, menningar og nýsköpunarráðherra segir fregnirnar dapurlegar. „Nei, þetta er auðvitað fyrst og fremst mjög dapurlegar fréttir. Á sama tíma og við þurfum aldrei meira á fjölmiðlum, sterkum ritstýrðum fjölmiðlum að halda vegna þess hvernig þróun hefur verið með upplýsingaóreiðu, með misvísandi skilaboðum, þannig þetta er sorglegt.“ Ljóst sé að áfram verði haldið úti öflugri fréttamiðlun í gegnum Vísi og Bylgjuna. Logi segir þetta hluta af stærri þróun en í nóvember síðastliðnum var greint frá því að kvöldfréttir Sýnar yrðu ekki lengur sendar út um helgar. Hvernig hafa stjórnvöld brugðist við í millitíðinni? „Fyrst þurfum við að halda því til haga að þetta er margra ára þróun, það hefði miklu fyrr þurft að bregðast við henni. Stjórnvöld hafa engin tæki önnur til að bregðast við heldur en með almennum hætti. Við erum með fjármagnaða aðgerðaáætlun sem lýtur að viðbótarstuðningi vegna almannaþjónustu fjölmiðla. Við erum að fara að veita hluta af auglýsingatekjum RÚV til annarra fjölmiðla.“ Ekki sé hægt að bregðast við einstökum fréttum með beinum hætti heldur almennum aðgerðum. Logi segist stjórnvöld munu fylgjast með stöðunni. „Við munum auðvitað gera meira en það, við munum auðvitað ræða við þessa aðila alla og halda áfram að eiga gott samtal við fjölmiðla, auðvitað erum við opin fyrir hugmyndum sem geta komið upp og það er okkar hlutverk að vera í samtali, já já við munum vera á tánum á næstunni.“ Þetta sem blasir við okkur núna í kjölfarið á þessu, að við erum að fara að búa í landi þar sem að er bara einn sjónvarpsfréttatími í boði ríkisins. Hvað finnst þér um það? „Nei, eins og ég sagði í upphafi, mér finnst þetta dapurlegt. Ég auðvitað ólst upp og var fullorðinn við slíkar aðstæður og ég fagnaði því og hef séð ágóðann af því að fjölmiðlamarkaðurinn opnaðist upp og þessir nýju miðlar eru til og ég held að það sé mjög nauðsynlegt í lýðræðissamfélagi að það sé hérna þessi samkeppni á þessum markaði, þannig að þannig er það.“
Sýn Fjölmiðlar Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Tengdar fréttir Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Sýn hefur ákveðið að hætta framleiðslu og útsendingu sjónvarpsfrétta frá og með 1. september 2026. Síðasti sjónvarpsfréttatíminn verður sendur út í kvöld á Sýn. Breytingarnar hafa í för með sér uppsagnir. 31. ágúst 2026 09:01 Mest lesið Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Sjá meira
Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Sýn hefur ákveðið að hætta framleiðslu og útsendingu sjónvarpsfrétta frá og með 1. september 2026. Síðasti sjónvarpsfréttatíminn verður sendur út í kvöld á Sýn. Breytingarnar hafa í för með sér uppsagnir. 31. ágúst 2026 09:01