„Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 31. ágúst 2026 19:59 Kolbeinn Tumi Daðason ritstjóri las síðasta kvöldfréttatímann. Vísir/Viktor Freyr Kolbeinn Tumi Daðason ritstjóri fréttastofunnar þakkaði áhorfendum kvöldfrétta Sýnar fyrir að hafa kveikt á sjónvarpinu dag hvern í fjörutíu ár. Hann kvaddi hins vegar ekki þar sem fréttaflutningurinn heldur áfram. „
Kvöldfréttir Sýnar, áður Stöðvar 2, hafa verið hluti af íslensku samfélagi í fjörutíu ár. Nú er komið að tímamótum,“ sagði Kolbeinn Tumi Daðason ritstjóri við lok síðustu útsendingar kvöldfréttar Sýnar. „Reksturinn hefur verið erfiður og runnin upp sú stund að kvöldfréttir kveðja. Margt hefur breyst síðan árið 1986, fólk fær fréttirnar sínar með ýmsum hætti en þrátt fyrir það hafa tugþúsundir Íslendinga horft á fréttirnar okkar, kvöld eftir kvöld. Fyrir það erum við á fréttastofunni afar þakklát.“ Tumi segir að miklar tilfinningar fylgi þessum tímamótum, bæði hjá áhorfendum en ekki síður hjá öllu fréttafólki sem hefur komið við sögu hjá Stöð 2 og Sýn og staðið vaktina í gegnum árin. Fréttaþularnir Kolbeinn Tumi og Telma Tómasson.Vísir/Viktor Freyr „En fréttaflutningurinn heldur áfram.“ Vísir sé mest lesni fréttavefur landsins, í stöðugri þróun og mikilli sókn. Áfram verða þar sagðar fréttir frá morgni til kvölds. Á heila tímanum er áfram hægt að stilla á Bylgjuna og hlusta á fréttir hverju sinni. „Þannig að við segjum ekki bless. Við segjum takk.“ „Takk fyrir þessi fjörutíu ár í sjónvarpinu. Takk fyrir að horfa. Og takk fyrir að leyfa okkur að standa vaktina fyrir ykkur.“
Kvöldfréttir Fjölmiðlar Sýn Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Fleiri fréttir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Sjá meira