Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Birgir Olgeirsson skrifar 2. september 2026 13:10 Heiðar Guðjónsson, til vinstri, segir skaðabótamálið lið í skipulagðri rógsherferð gegn sér. Einar Hugi Bjarnason, lögmaður Gavia Invest, vísar því alfarið á bug. Vilhelm/Aðsend Lögmaður Gavia Invest vísar því alfarið á bug að skaðabótamál félagsins gegn Heiðari Guðjónssyni og Úrsus sé liður í skipulagðri rógsherferð. Hann segir málið fara hefðbundna leið í réttarkerfinu og ætlar ekki að flytja það í fjölmiðlum.
Heiðar segir við mbl.is að skipulögð rógsherferð sé rekin gegn sér vegna málsins. „Það er bara af og frá og ekkert til í því. Þetta er bara hefðbundið dómsmál sem fer sinn farveg og hefur sinn gang í réttarkerfinu og ég ætla ekki að flytja málið í fjölmiðlum,“ segir Einar Hugi Bjarnason, lögmaður Gavia Invest. Gavia hefur höfðað skaðabótamál gegn Heiðari og félagi hans Úrsus vegna kaupa á 12,72 prósenta hlut Úrsus í Sýn sumarið 2022. Kaupverðið var nærri 2,2 milljarðar króna. Tekjur af tengingum fyrir mæla Controlant Einar segir svokallaðar IoT-tekjur vera þungamiðju málshöfðunarinnar. Önnur atriði málsins séu tæknilegs eðlis og ekki ástæða til að telja þau upp í fjölmiðlum. IoT-tekjur eru greiðslur sem Sýn fær fyrir að tengja tæki við farsímakerfið. Í þessu tilviki komu tekjurnar frá samstarfi við Controlant. Controlant notar mæla til að fylgjast með hitastigi og staðsetningu lyfjasendinga. Í mælunum eru SIM-kort frá Sýn sem flytja gögnin um farsímakerfið. Eftir því sem fleiri mælar voru teknir í notkun jukust tekjur Sýnar af tengingunum. Umsvif Controlant jukust mikið í kórónuveirufaraldrinum þegar mælar fyrirtækisins voru meðal annars notaðir við flutning bóluefna. Umsvifin minnkuðu síðan þegar faraldrinum sleppti. „Þessar IoT-tekjur voru mjög stór stoð í rekstrinum,“ segir Einar. Tekjufall áður en kaupin voru gerð Umbjóðandi hans telur að þegar hlutabréfaviðskiptin fóru fram hafi Heiðar vitað að verulegur samdráttur hefði orðið í tekjunum. Um innherjaupplýsingar hafi verið að ræða sem hann hafi ekki veitt kaupandanum. Einar er spurður hvort Gavia hefði mátt gera ráð fyrir að tekjurnar myndu dragast saman þegar umsvif Controlant minnkuðu eftir faraldurinn. „Mínum umbjóðendum var málið ekki ljóst fyrr en uppgjör Sýnar árið 2025 lá fyrir, að upplýsingum hefði verið haldið eftir við kaupin og tilkynning Sýnar til FME tali sínu máli um það.“ Hann segir þá hafa orðið opinbert að verulegt fall hefði orðið í IoT-tekjunum áður en kaupin voru gerð. Birting þeirra upplýsinga hafi verið kveikjan að málshöfðuninni. Heiðar bendir á hæfismat Fjármálaeftirlitsins Sýn upplýsti í morgun að félagið hefði í febrúar sent Fjármálaeftirliti Seðlabankans gögn um meðferð rekstrarupplýsinga árið 2022. Við skoðun eldri gagna hefði vaknað spurning um hvort uppfærð innri spá um IoT-tekjur hefði borist réttum aðilum innan félagsins. Heiðar Guðjónsson er stjórnarformaður Íslandsbanka. Hann bendir á að Fjármálaeftirlitið meti hæfi stjórnarmanna kerfislega mikilvægra fjármálafyrirtækja gaumgæfilega og telur ólíklegt að ólokið mál er varði hann sé til meðferðar hjá eftirlitinu.Vilhelm Heiðar segir í samtali við Morgunblaðið að ekkert liggi fyrir um að meint brot hans hafi verið tilkynnt eftirlitinu. Hann bendir á að Fjármálaeftirlitið hafi metið hæfi hans gaumgæfilega vegna stjórnarformennsku hans í Íslandsbanka. Að mati Heiðars sé ólíklegt að ólokið mál er varði hann sé til meðferðar hjá eftirlitinu samhliða því að honum hafi verið treyst fyrir stjórnarformennsku í kerfislega mikilvægu fjármálafyrirtæki. Vísir er í eigu Sýnar.
Sýn Mest lesið Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Viðskipti innlent Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Viðskipti innlent Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Viðskipti innlent Man varla fundinn í gær: Starfsfólk heldur jafnvel að það sé að fá Alzheimer Atvinnulíf Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Viðskipti innlent Jafnrétti í stjórnum skilyrði fyrir Framúrskarandi fyrirtæki Framúrskarandi fyrirtæki Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Viðskipti innlent Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Viðskipti innlent Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Viðskipti innlent Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Atvinnulíf Fleiri fréttir Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Sjá meira