Tekjurnar nálægt hálfum milljarði á fyrsta heila starfsári ARMA Advisory
Tekjur ARMA Advisory námu tæplega hálfum milljarði króna á fyrsta heila starfsári ráðgjafafyrirtækisins samhliða aðkomu að mörgum af stærri fyrirtækjaviðskiptum og fjármögnunum á liðnu ári. Hagnaður félagsins, sem Marinó Örn Tryggvason og Atli Rafn Björnsson leiða, var nærri 300 milljónir króna.
Tengdar fréttir
Samruni sem var „skrifaður í skýin“ þegar Arion hafði betur í slagnum um Kviku
Arion banki hafði betur í slagnum um að hefja samrunaviðræður við Kviku eftir að hafa hækkað verulega tilboð sitt frá fyrsta kasti, sem endurspeglar væntingar um þau miklu tækifæri og samlegð sem hægt sé að ná fram í sameinuðu félagi, en stjórnendur bankans telja sig geta náð viðskiptunum í gegn án mjög íþyngjandi skilyrða frá Samkeppniseftirlitinu. Á meðal helstu fjármálaráðgjafa Arion í viðræðunum er fyrrverandi forstjóri Kviku banka og þá er nú þegar er búið að ákveða hver verður bankastjóri sameinaðs félags.
Framtakssjóðurinn IS Haf festir kaup á meirihluta í sænsku tæknifyrirtæki
Sérhæfður fjárfestingarsjóður í haftengdri starfsemi hefur náð samkomulagi um að kaupa meirihluta í sænska félaginu NP Innovation, tæknifyrirtæki með vatnsgæðalausnir fyrir landeldi og velti yfir tveimur milljörðum í fyrra, en þetta er önnur erlenda fjárfesting sjóðsins á innan við ári. Með innkomu IS Haf-sjóðsins sem kjölfestufjárfestir í NP Innovation er ætlunin að hraða enn frekari vexti félagsins á komandi árum.
Kaupin góð viðbót við fjártækniarm Símans og leiðir til hærra verðmats
Kaup Símans á öllu hlutafé Greiðslumiðlunar Íslands, sem á Motus og Pei, ættu að vera „góð viðbót við fjártækniarm“ félagsins, að mati greinanda, en hlutabréfaverðið hefur hækkað nokkuð á markaði í dag.
„Getum aldrei fengið“ evrópska vexti með íslenskt regluverk
„Við getum aldrei fengið evrópska vexti ef við erum ekki með evrópskt regluverk,“ að sögn fyrrverandi bankastjóra Kviku, og bendir á að „ofuráhersla á varfærni“ leiði ekki endilega til skilvirkni heldur getur fremur orðið til þess að fjármálakerfið verði lakara við að sinna meginhlutverki sínu að miðla fjármagni með hagkvæmustum hætti. Hann segir jafnframt „skynsamlegt og nauðsynlegt“ að grípa til aðgerða til að auka þátttöku á innlendum fjármálamarkaði sem einkennist núna af einsleitni og veikri verðmyndun.