Hamilton getur bætt met Schumacher þegar Ferrari heiðrar hann Andri Broddason skrifar 4. september 2026 10:32 Lewis Hamilton getur verið sigursælasti ökumaður Monza-kappakstursbrautarinnar frá upphafi. Anni Graf - Formula 1/Getty Images Um helgina fer fram ítalski kappaksturinn í Formúlu 1 og mun hann vera þýðingarmikill fyrir Lewis Hamilton, ökumann Ferrari. Með sigri bætir hann met Michaels Schumacher sem sigursælasti ökumaður brautarinnar.
Ítalski kappaksturinn er þýðingarmikill fyrir Ferrari þar sem brautin er þeirra heimavöllur. Ferrari bíllinn verður með séruppfærslu á vél bílsins sem á að henta löngum beinum köflum brautarinnar. Um helgina mun Ferrari-bíllinn skarta nýju útliti til heiðurs Ferrari-goðsagnarinnar Michael Schumacher þar sem 20 ár eru síðan hann vann sinn fyrsta sigur með liðinu. Ferrari-bíllinn og föt ökumanna Ferrari munu skarta sjö stjörnum í tilefni sjö heimsmeistaratitla sem Schumacher vann á sínum ferli. Það mun ekki vera neitt nýtt fyrir Lewis Hamilton þar sem hann er einnig með sjö heimsmeistaratitla. Það eru þó ekki einu líkindi Schumacher og Lewis Hamilton en þeir hafa báðir unnið fimm kappakstra á Monza-brautinni þar sem ítalski kappaksturinn fer fram. Með sigri getur því Lewis Hamilton orðið sigursælasti ökumaður á Monza frá upphafi. Ítalinn Kimi Antonelli, sem er í fyrsta sæti heimsmeistaramótsins, er að skipta um vél og mun byrja kappaksturinn aftastur. Það gefur Ferrari-liðinu aukið tækifæri til þess að vinna kærkominn heimakappakstur. Fátt er samanburðarhæft við að Ferrari-ökumaður vinni ítalska kappaksturinn. Lewis Hamilton varð vitni að því þegar Charles Leclerc vann ítalska kappaksturinn árið 2019 sem ökumaður Ferrari. Fagnaðarlætin á brautinni voru eitthvað sem hann hafði aldrei séð áður. „Að vinna hér myndi verða óaðfinnanlegt. Einnig hef ég hugsað út í það að ef ég vinn verð ég líklegast eini svarti ökumaður sögunnar til þess að vinna ítalska kappaksturinn með Ferrari.“
Akstursíþróttir Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Dagskráin í dag: Liverpool ætlar að landa fyrsta sigrinum Sport Gætu tekið þátt í meti en fráfall konungsins hefur mikil áhrif Fótbolti Fleiri fréttir Hamilton getur bætt met Schumacher þegar Ferrari heiðrar hann Antonelli refsað og byrjar heimakappaksturinn aftastur Lando Norris stofnar sitt eigið lið Hadjar frá í aðra keppni Norris langar ekki að vinna með öðrum liðum og framlengir við McLaren Ferrari heiðrar Schumacher á heimavelli Hamilton iðrast orða sinna: „Axla ábyrgð og mun gera betur“ Er annar hestur kominn í hlaupið um heimsmeistaratitilinn? Hamilton pirraður á Ferrari: „Erfitt að horfa á þetta“ Norris náði öðrum sigri Harkalegur árekstur hjá Verstappen á heimaslóðum Norris náði ráspólnum aftur Russell vann sprettinn í þriðja sinn Slasaði sig í boxi og verður ekki með um helgina „Ég var nær því að hætta heldur en að skipta um lið“ Verstappen skrifaði undir nýjan samning Mun ekki keyra fyrir Red Bull um helgina Framlengir þrátt fyrir að liðið sé í verri stöðu Rússar og Belarússar fá að keppa aftur Nýliðarnir skipta um liðsstjóra Ætlar að blanda sér í baráttuna við Ferrari og Mercedes Fór á skeljarnar í sumarfríinu Ökumaður Formúlu 1 vann sér keppnisrétt á heimsmeistaramóti á miðju tímabili Sjá meira