Viðskipti innlent

Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum

Birgir Olgeirsson skrifar
Frá vinstri: Rögnvaldur Magnússon frá Golfskálanum, vinningshafinn Kolbrún Klara Gísladóttir og Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, forstjóri Varðar.
Frá vinstri: Rögnvaldur Magnússon frá Golfskálanum, vinningshafinn Kolbrún Klara Gísladóttir og Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, forstjóri Varðar. Aðsend

Yfir sjö þúsund kylfingar tóku þátt í Regluverðinum, leik Varðar og Golfsambands Íslands um golfreglur, í sumar, að því er fram kemur í tilkynningu frá Verði.

Þátttakendur söfnuðu stigum fyrir sig og golfklúbb sinn með því að svara spurningum um golfreglur. Um 3.400 kylfingar náðu tilskildum sex þúsund stigum og hlutu nafnbótina Regluvörður 2026.

Vinningshafinn Kolbrún Klara Gísladóttir og ferðafélagar hennar sem eru á leið til Villaitana á Spáni. Aðsend

Dregið var úr þeim hópi og hlaut Kolbrún Klara Gísladóttir aðalvinninginn, golfferð fyrir fjóra til Villaitana á Spáni.

Einnig var keppt milli golfklúbba um hlutfallslega flesta Regluverði. Golfklúbbur Ísafjarðar varð þar hlutskarpastur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×