Sport

Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúana­lykt

Sindri Sverrisson skrifar
Aryna Sabalenka vann öruggan sigur í þriðju umferð þrátt fyrir marijúanalyktina.
Aryna Sabalenka vann öruggan sigur í þriðju umferð þrátt fyrir marijúanalyktina. Getty/Robert Prange

Það gengur ýmislegt á innan vallar sem utan á Opna bandaríska mótinu í tennis. Í gær bað Aryna Sabalenka, fremsta tenniskona heims, um hjálp út af mikilli marijúanalykt á vellinum.

Neysla kannabisefna er lögleg í New York en hún er engu að síður bönnuð á mótssvæðinu, í Billie Jean King tennismiðstöðinni.

Það virðist þó ekki hafa stöðvað einhverja af áhorfendunum á Opna bandaríska mótinu eins og Sabalenka lét dómara vita af í leik sínum við Kamillu Rakhimova í gær.

Sabalenka var 2-0 yfir í fyrsta setti þegar hún fór til dómarans og heyrðist segja: „Það er einhver að reykja gras, svo gætirðu vinsamlegast… því þetta er svo sterk [lykt].“

Dómarinn kom skilaboðum um þetta áfram svo að öryggisverðir gætu brugðist við.

Snúið að ná fram sínu besta í svona lykt

Sabalenka endaði á að vinna öruggan sigur, 6-3 og 6-4, og virtist ekki láta lyktina trufla sig of mikið.

„Ég hugsaði með mér: „Heyrðu, þið getið gert hvað sem er, reykt hvað sem er, slakað á eins mikið og þið getið, en ekki gera það í kringum tennisvöll.“

„Það er svolítið snúið að kljást við þessa lykt og ná fram sínu besta. Það var smá vindur; ég veit ekki hvort lyktin kom frá áhorfendum eða utan frá,“ sagði Sabalenka.

Keppendur hafa einnig kvartað yfir því hvernig áhrifavaldar, sem boðnir hafa verið sérstaklega á mótið, hafa látið á áhorfendasvæðinu. Þeir hafa gerst sekir um hávaða og aðra truflun á meðan á leik stendur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×