Eitt allra krúttlegasta mót ársins Freyja Þórisdóttir skrifar 6. september 2026 15:33 Sumir voru taugatrekktari en aðrir á startlínunni á hjólamóti Hjólaskólans. Bessi Friðþjófsson Hjólamót Hjólaskólans, hjólreiðafélagsins Tinds og Krónunnar fór fram í Öskjuhlíð á dögunum. Mótið, sem sumir myndu líklega segja að væri krúttlegasta hjólamót landsins, var þá haldið í níunda sinn og mættu um fjögur hundruð börn, þau yngstu tveggja ára en þau elstu tólf, til leiks.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í tilkynningu um mótið en þar kom fram að yngstu börnin hófu mótið á sparkhjólum og svo koll af kolli eftir aldri og flokki. Elstu börnin hjóluðu um tveggja kílómetra leið. Að auki mættu BMX BRÓS á svæðið og sýndu hjólalistir sínar. Öll börn voru leyst út með veglegum verðlaunum þótt aðalatriðið hafi fyrst og fremst verið að mæta og hafa gaman. Myndaveislu frá mótinu má sjá hér að neðan en ljósmyndarinn Bessi Friðþjófsson var á staðnum og fangaði stemninguna á filmu. Það var að sjálfsögðu enginn þátttakandi án hjálms en eins og við vitum öll þá gera slysin ekki boð á undan sér. Krakkarnir, sem margir hverjir voru á sínu fyrsta hjólamóti, fóru létt með brautina og voru margir hverjir enn fullir af orku eftir á.Bessi Friðþjófsson Hjólabrautin var að hluta til inni í skógi í Öskjuhlíðinni sem gerði hana mögulega aðeins meira krefjandi.Bessi Friðþjófsson Yngstu keppendurnir voru ekki alveg eins áberandi einbeittir og þeir sem eldri eru en frammistaðan var frábær þrátt fyrir það.Bessi Friðþjófsson Það fór enginn tómhentur heim enda öll sigurvegarar.Bessi Friðþjófsson Það var ekki reiknað með því að þátttakendur væru að taka fram úr á þessum kafla brautarinnar heldur hjóluðu þau í virkilega faglega uppstilltri einfaldri röð.Bess Það var hörð barátta á lokametrunum en þessir þátttakendur komu nánast samstundis í mark.Bessi Friðþjófsson BMX brós eru líklega ekki langt undan ef hjólamót er haldið hérlendis.Bessi Friðþjófsson Einbeitingin skein úr andlitum þeirra sem tóku þátt en sumir fengu ráð frá foreldrum á lokaaugnablikunum fyrir rás.Bessi Friðþjófsson
Hjólreiðar Börn og uppeldi Íþróttir barna Reykjavík Mest lesið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tímamót hjá Árna Má Menning Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Fleiri fréttir Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Sjá meira