Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Tómas Arnar Þorláksson skrifar 6. september 2026 16:02 Margrét Þórhildur II Danadrottning. Myndin er frá 16. apríl. EPA/IDA MARIE ODGAARD Margrét Þórhildur II Danadrottning hefur verið lögð inn á sjúkrahús. Hún hafði fundið fyrir vanlíðan samkvæmt upplýsingum frá konungsfjölskyldunni.
Danska ríkisútvarpið greinir frá þessu. Þar kemur fram að blóðtappi hafi fundist í mjöð. Samkvæmt konungshirðinni er líðan drottningarinnar með ágætum. Hún beri sig vel miðað við aðstæður. Drottningin missir því að útför Haralds Noregskonungs sem lést þann 28. ágúst. Útförin fer fram á miðvikudag. Margrét hefur þó nokkru sinnum verið lögð inn á sjúkrahús en síðast var hún einnig lögð inn þann 25. maí eftir að sneiðmyndataka leiddi í ljós mikla blóðsöfnun á mjaðmasvæðinu. Um var að ræða afleiðingu falls. Hún var útskrifuð fimm dögum síðar. Drottningin lagðist einnig inn á sjúkrahús þann fjórtánda maí eftir að hafa fengið fyrir hjartað. Þá gekkst hún undir hjartaþræðingu og var útskrifuð af Ríkissjúkrahúsinu í Kaupmannahöfn sex dögum síðar. Margrét Þórhildur tilkynnti, Dönum til mikillar undrunar, í áramótaávarpi sínu árið 2023 að hún hygðist stíga til hliðar sem drottning. Friðrik sonur hennar tók í kjölfarið við krúnunni þann fjórtánda janúar 2024 og varð Friðrik X. Margrét Þórhildur er 86 ára gömul en tekur enn virkan þátt í opinberu lífi og sinnir áhugamálum sínum af krafti. Ólíkt mörgum öðrum konungbornum þjóðhöfðingjum hefur hún oft leift persónuleika sínum að skína í gegn í embættisverkum sínum og hefur fyrir vikið notið fádæma vinsælda meðan dönsku þjóðarinnar.
Danmörk Kóngafólk Margrét Þórhildur II Danadrottning Mest lesið Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Erlent Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Eldur á Hellu Innlent Fleiri fréttir Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Sjá meira