Innlent

Eftir­förin endaði með hvelli

Eiður Þór Árnason skrifar
Ökumaðurinn gistir nú fangageymslu lögreglu. 
Ökumaðurinn gistir nú fangageymslu lögreglu. 

Myndskeið sýnir hvernig fjöldi lögreglumanna stöðvaði og yfirbugaði ökumann deilibíls Hopp í dag. Sá hlýddi ekki stöðvunarmerkjum lögreglu og er sagður hafa ekið utan í minnst fjórar bifreiðar á leið sinni frá Lágmúla að Víðidal í Reykjavík. Þar af voru tveir lögreglubílar.

Talsverður viðbúnaður var á svæðinu og heyrðust sírenur óma víða um borgina á meðan á eftirför stóð. Ökumaðurinn var að lokum handtekinn en hann er grunaður um að hafa verið í annarlegu ástandi. Eftirfarandi myndskeið af handtökunni er í töluverðri dreifingu á samfélagsmiðlum.

Klippa: Hópur lögreglu stöðvar ofsakstur ökumanns á Hoppbíl

Ökumaðurinn gistir fangageymslur „þar til hann verður viðræðuhæfur“, líkt og lögregla orðaði það í tilkynningu nú síðdegis. Mikil hætta hafi skapast í dag og mesta mildi að enginn skyldi slasast. Hann er talinn hafa náð mest 140 kílómetra hraða á akstri sínum um borgina.

Framkvæmdastjóri Hopp Reykjavík segir að mál ökumannsins sé á borði lögreglu og fyrirtækið kanni næstu skref. Almennt sé ökumönnum sem brjóti reglur hiklaust meinað að nýta sér þjónustuna oftar.

Fréttin hefur verið uppfærð.


Tengdar fréttir

„Svona er bara litróf mannlífsins“

Framkvæmdastjóri Hopp Reykjavík segir að mál ökumanns sem keyrði á ofsahraða um götur borgarinnar í dag og keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar á meðan eftirför stóð yfir sé hjá lögreglu og fyrirtækið kanni næstu skref. Almennt sé ökumönnum sem brjóti reglur hiklaust meinað að nýta sér þjónustuna oftar.

Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lög­reglu­bíla

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu veitti Hopp-deilibíl eftirför frá Lágmúla að Víðidal í dag. Ökumaður Hopp-bílsins er talinn hafa verið undir áhrifum en hann ók utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvö lögreglubíla á för sinni. Hann er sagður hafa ekið á allt að 140 kílómetra hraða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×