
Leigubílar

Ný gæðavottun stuðli ekki að mismunun
Formaður Bandalags íslenskra leigubifreiðastjóra segir nýja gæðavottun ekki stuðla að mismunun og vonast til að vottunin muni koma til með að auka traust farþega til leigubílstjóra.

Leigubílamarkaðurinn sé eins og „villta vestrið“
Innviðaráðherra segir leigubílamarkaðinn hafa verið eins og „villta vestrið“ hingað til en nú standi til að gera viðamiklar breytingar. Hann hefur lagt fram frumvarp í samráðsgátt um breytingar á starfsemi leigubílstjóra sem felur meðal annars í sér að innleiða stöðvarskyldu að nýju.

Leigubílar eiga að vera almenningssamgöngur en ekki neyðarúrræði
Ný ríkisstjórn boðaði í mínum augum mikið fagnaðarerindi fyrr í vikunni með áformum sínum um að ”fara í fyrsta lið í endurskoðun á lögum um leigubíla” og þá sérstaklega “að koma aftur á stöðvarskyldu”. Þar liggur fyrir sóknarfæri að bæta til muna samgöngur með nokkrum pennastrikum og svo gott sem engum tilkostnaði.

„Skutlari“ áreitti stúlku og varð fyrir alvarlegri líkamsárás
Svokallaður „skutlari“ hefur verið dæmdur í tíu mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að áreita stúlku kynferðislega í bifreið sinni. Aðstandandi stúlkunnar tók hann kyrkingartaki í kjölfarið og hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps. Sá var nýverið dæmdur í áralangt fangelsi fyrir aðkomu að Sólheimajökulsmálinu svokallaða.

Ekki nauðgun heldur kynferðisleg áreitni í leigubíl
Landsréttur hefur dæmt erlendan leigubílstjóra í tólf mánaða fangelsi fyrir kynferðislega áreitni gagnvart sautján ára stúlku í leigubíl hans haustið 2022. Hann hafði áður hlotið tveggja ára dóm fyrir brotið í héraði en þá taldi dómurinn að um nauðgun væri að ræða.

Lýsir stjórnlausum rasisma: „Hvort verður það líkamlegt ofbeldi eða svívirðingar?“
Leigubílstjóri, sem er innflytjandi frá Afganistan, varð fyrir fólskulegri árás í starfi í mánuðinum. Hann segist merkja skarpa breytingu í samfélaginu, nú sé rasisminn nær stjórnlaus og hann hræddur og kvíðinn fyrir hverja vakt.

Hreyfill gerir sátt við Samkeppniseftirlitið eftir kvörtun Hopp
Samkeppniseftirlitið og leigubílafyrirtækið Hreyfill svf. hafa gert með sér sátt vegna háttsemi Hreyfils sem fólst í því að banna leigubifreiðastjórum sem eru í þjónustu hjá Hreyfli að nýta sér þjónustu annarra leigubifreiðastöðva. Upphaf málsins má rekja til kvörtunar Hopp leigubílum ehf. til eftirlitsins vegna háttsemi Hreyfils. Í sáttinni felst meðal annars að Hreyfill muni ekki hindra að leigubifreiðastjórar sem keyra fyrir stöðina nýti sér einnig aðra þjónustuaðila sem sinna leigubílaakstri.

„Ég vildi óska að það væru fleiri konur í þessu starfi“
Þegar Guðríður Aðalbjörg Þorsteinsdóttir flutti til Horsens í Danmörku árið 2006 átti hún síst von á því að hún myndi enda sem leigubílstjóri- nánar tiltekið annar af tveimur kvenkyns leigubílstjórum sem starfa í bæjarfélaginu.

„Nú er öryggi almennings fórnað á altari atvinnufrelsis“
Formaður bifreiðarstjórafélagsins segir að leigubílstjórar svindli á erlendum ferðamönnum í auknu mæli eftir að ný leigubifreiðalög tóku gildi í apríl á síðasta ári. Þetta hafi slæm áhrif á ásýnd landsins í augum ferðamanna sem veigra sér við að koma til landsins.

Tæknin tekur yfir leigubílamarkaðinn
Fyrir aðeins ári síðan hófu Hopp leigubílar starfsemi á Íslandi og hafa á þessum stutta tíma orðið áberandi á leigubílamarkaðnum. Með nýjungum og tækniþróun hefur fyrirtækið breytt því hvernig bæði bílstjórar og farþegar nýta sér leigubílaþjónustu.

Rassía lögreglu heldur áfram
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu í samstarfi við Skattinn og Samgöngustofu hefur í dag haldið ótrauð áfram í átaki sínu við eftirlit hjá leigubílstjórum á höfuðborgarsvæðinu.

Eftirlitsaðilum bárust 50 ábendingar frá 1. apríl 2023 til ársloka
Tæplega 50 ábendingar um leigubifreiðaakstur bárust eftirlitsaðilum frá 1. apríl 2023, þegar ný lög um leigubifreiðaakstur tóku gildi, til ársloka.

Varar við auknu ofbeldi í leigubifreiðum
Daníel O. Einarsson, formaður Frama - félags leigubílstjóra, tekur eftirliti lögreglunnar gagnvart leigubílstjórum fagnandi. Hann segir mikinn fjölda nýliða í faginu hafa neikvæð áhrif á starfsemina og segir ofbeldismál þar sem leigubílstjórar eiga í hlut aukast.

Fimm leigubílstjórar stöðvaðir og boðaðir í skýrslutöku
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af fimm leigubílstjórum í nótt sem hafa verið boðaðir í frekari skýrslutöku. Frá þessu er greint í yfirliti yfir verkefni næturinnar.

Öryggisbúnaður ekki til staðar í tugum leigubíla
Öryggisbúnað skorti í leigubíla hjá tugum leigubílstjóra sem lögreglan hafði eftirlit með um helgina. Einhverjir þeirra leigubílstjóra sem lögreglan talaði við óku án leyfis og einn leigubílstjóri ók á ökutæki sem ekki var skráð sem leigubíll.

Tæplega fimmtíu leigubílstjórar eiga von á kæru
Alls eiga nú 48 leigubílstjórar yfir höfði sér kæru vegna grunsemda um brot. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu kannaði um helgina með leyfi 105 leigubíla og ökumanna þeirra. Niðurstaðan var sú að í nærri helmingi tilfella voru gerðar athugasemdir.

Barnið stökk út úr bílnum á ferð
Níu ára piltur sem stalst til þess að aka leigubíl um Bakkana í Breiðholti á sunnudag stökk út úr bílnum á ferð þegar lögregla kom auga á hann. Bíllinn endaði uppi á kantsteini og skemmdist lítillega.

Barn ók leigubíl í leyfisleysi
Myndskeið af ungu barni aka leigubíl um götur Breiðholts hefur verið í mikilli dreifingu á samfélagsmiðlum um helgina. Lögreglan segir málið unnið í samstarfi við foreldra og barnaverndaryfirvöld.

Nýjar vísbendingar í áratugagömlu íslensku morðmáli
Ný vitni hafa stigið fram í áratugagömlu óupplýstu morðmáli sem vakti mikinn óhug meðal þjóðarinnar. Sigursteinn Másson, sem nú hefur einnig fengið aðgang að öllum rannsóknargögnum lögreglunnar varpar nýju ljósi á málið í nýrri þáttaröð sem hefur göngu sína í kvöld.

Íslenska: lykill eða lás?
Hver ætli sé hin raunverulega ástæða þess að nokkrir þingmenn leggi til að að gerð verði krafa um íslenskukunnáttu hjá leigubílstjórum? Hvort ætli það sé a) umhyggja fyrir gæðum þjónustunnar eða b) tilraun til að hindra útlendinga frá því að öðlast réttindin? Já, hvort ætli?

Uber gerir fimmtu stærstu sáttina í sögu Ástralíu
Forsvarsmenn Uber í Ástralíu hafa samþykkt að greiða leigubílstjórum 272 milljónir dollara í bætur eftir „agressíva“ innkomu sína á leigubílamarkaðinn.

„Augljóst“ að það sé ekki íslenskuáhugi sem liggi að baki frumvarpi Birgis
Prófessor emeritus í íslenskri málfræði segir frumvarp, sem gerir íslensku að skilyrði fyrir leigubílaleyfi, vera til þess fallið að mismuna fólki og að það sé ómálefnanlegt. Hann segir augljóst að þarna sé íslenskan notuð sem yfirvarp til að bægja innflytjendum frá starfinu.

Sakar þingmenn um að nota íslenskuna sem vopn gegn útlendingum
Uppgjafaprófessor í íslensku segist hafa beðið í angist eftir því að íslenskan yrði notuð opinberlega og á óskammfeilinn hátt sem vopn í þeirri útlendingaandúð sem hér sé miskunnarlaust alið á þessa dagana. Það hafi nú raungerst með ummælum tveggja þingmanna Sjálfstæðisflokks um að gera ætti íslenskukunnáttu að skilyrði fyrir leyfi til leigubílaaksturs.

Stöðvum áform um misnotkun íslenskunnar!
Aðalfyrirsögnin á forsíðu Morgunblaðsins í dag er „Íslenska verði skilyrði leigubílaleyfis“. Í fréttinni segir: „Áform eru uppi á Alþingi um framlagningu frumvarps til breytinga á lögum um leigubifreiðaakstur þar sem próf í íslensku verði gert að skilyrði fyrir því að menn geti aflað sér réttinda til aksturs leigubíla.

Taxi!
Ég bið lesendur velvirðingar á að sletta í fyrirsögn en sú var tíð að hægt var að ná sér í leigubíl í Reykjavík með því að veifa og kalla frá gangstéttarbrún. Þú gast treyst því að laus bíll stöðvaði, stigið um borð og fengið örugga ferð heim að dyrum hvert sem ferðinni var heitið og greitt uppsett verð samkvæmt mæli.

Þrjú kynferðisbrotamál tengd leigubílstjórum áhyggjuefni
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur nú til rannsóknar kynferðisbrot leigubílstjóra sem sakaður er um að hafa brotið á konu í lok nóvember í leigubíl. Tvö önnur mál hafa komið upp nýlega sem tengjast kynferðisbrotum leigubílstjóra. Búið er að dæma í einu þeirra.

Bílstjórinn tekinn úr umferð hjá Pant
Bílstjóri Hreyfils sem skildi fatlaðan dreng eftir við Víkingsheimilið á fimmtudag í stað þess að aka honum heim ekur ekki lengur fyrir Pant, akstursþjónustu fatlaðs fólks. Það staðfestir Haraldur Axel Gunnarsson framkvæmdastjóri Hreyfils.

Vill flýta endurskoðun laga um leigubílaakstur
Birgir Þórarinsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, vill flýta endurskoðun laga um leigubifreiðaakstur. Í lögunum er heimild til endurskoðunar á næsta ári en hann telur best að henni sé flýtt. Vilji leigubílstjóra sem hann hafi talað við sé að þessu sé flýtt en að auk þess sé það áríðandi í ljósi nýlegra frétta af kynferðisbroti leigubílstjóra.

Leigubílstjóri City Taxi grunaður og tekinn úr umferð
Leigubílstjórinn sem grunaður er um nauðgun í byrjun febrúar, var skráður hjá leigubílastöðinni City Taxi. Að sögn framkvæmdastjóra fyrirtækisins er viðkomandi ekki lengur að keyra farþega.

Stéttarfélög leigubílstjóra harma umrætt kynferðisbrot
Stjórnarmenn Bandalags íslenskra leigubifreiðastjóra og Bifreiðastjórafélagsins Frama harma að ung kona hafi nýlega orðið fyrir ofbeldi af hendi tveggja manna, þar af meints leigubifreiðastjóra. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félögunum tveimur