Furðu lostinn og reiður Nökkvi laus við bann Sindri Sverrisson skrifar 8. september 2026 09:31 Nökkvi Þeyr Þórisson var skiljanlega grimmur á svip þegar hann leit til dómarans eftir óverðskuldað rautt spjald. Getty/MTB Nökkvi Þeyr Þórisson trúði ekki sínum eigin augum þegar hann sá rauða spjaldið fara á loft og var rekinn af velli, í leik með liði sínu í hollensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Nú hefur rauða spjaldið verið dregið til baka.
Aganefnd hollenska knattspyrnusambandsins komst að þeirri niðurstöðu að ekki hefði verið um alvarlegt brot að ræða hjá Nökkva, sem rekinn var af velli á 22. mínútu í leik með Telstar gegn Cambuur á sunnudaginn. Skaðinn verður því ekki meiri en hann er nú þegar orðinn. Eins og sjá má á myndbandinu hér að neðan var Nökkvi furðu lostinn yfir að sjá rauða spjaldið enda virtist hann varla snerta mótherja sinn, Billy van Duijl, sem þó lá lengi eftir og kveinkaði sér. Terechte rode kaart voor Nökkvi Thórisson? 🟥🧐#telcam pic.twitter.com/3e6lQoTJaD— ESPN NL (@ESPNnl) September 6, 2026 Nökkvi var skiljanlega reiður og bað dómarann, Joey Kooij, um að skoða atvikið í varsjánni: „Þú sagðir að ég hefði snert hnéð á honum,“ kallaði Nökkvi til dómarans áður en hann neyddist til þess að ganga í burtu, þar sem Kooij virtist ekki hafa neinn áhuga á að skoða atvikið betur. Markvörðurinn skoraði tvö Leiknum lauk með 2-2 jafntefli en úrslitin vöktu athygli um allan heim því bæði mörk Telstar skoraði markvörður liðsins, Ronald Koeman yngri. Þessi 31 árs gamli markvörður er greinilega sparkviss eins og pabbi sinn og nafni því hann fékk að taka bæði víti Telstar í leiknum. Komean jafnaði metin í 2-2 á elleftu mínútu uppbótartíma við gríðarlegan fögnuð. 🇳🇱🤩 Ronald Koeman Jr (31) made history by becoming the FIRST ever goalkeeper to score twice in an Eredivisie match! 🧤🥇 His brace secured a point for Telstar who were down to 10 men. ✅ pic.twitter.com/vRQmn5F4a3— EuroFoot (@eurofootcom) September 7, 2026 Nú þegar Nökkvi er laus við bann er ljóst að hann getur spilað gegn Twente annað kvöld. Telstar er með fjögur stig eftir fjóra leiki og situr í 14. sæti af 18 liðum.
Hollenski boltinn Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Körfubolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Fleiri fréttir Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Sjá meira