200 milljarðar – og við getum gert betur Pétur Óskarsson skrifar 10. september 2026 11:00 Ferðaþjónustan skilar stolt 200 milljarða skattframlagi íslenskrar ferðaþjónustu til ríkis og sveitarfélaga um allt land. Á hverjum degi skilar ferðaþjónustan greiðslum beint til innviða og náttúruverndar, meðal annars í formi bílastæðagjalda og farþegagjalda í þjóðgarða, gistináttaskatts og innviðagjalds á skemmtiferðaskip svo dæmi séu tekin. Þá er greinin orðin einn af burðarásum þeirra samfélagskerfa sem við viljum öll standa vörð um. Við viljum að svo verði áfram. Og við viljum gera enn betur. Við viljum leggja meira af mörkum Ferðaþjónustan hefur lagt tillögur á borðið fyrir stjórnvöld um hvernig auka megi tekjur íslensks samfélags af greininni á jákvæðan og sjálfbæran hátt. Stærsta útflutningsgrein þjóðarinnar býðst þannig til að leggja meira af mörkum og hefur bent á raunhæfar leiðir til þess. Í stuttu máli snúast þær um að stækka kökuna: Nýta betur þær miklu fjárfestingar sem þegar hafa verið byggðar upp, fjölga verðmætum gistinóttum og dreifa ferðamönnum betur um landið og yfir árið. Hvar er aðgerðaáætlunin? Fyrir skömmu var búin til aðgerðaáætlun fyrir ferðaþjónustu á Íslandi. Hún var unnin í náinni samvinnu stjórnvalda, stoðkerfis ferðaþjónustunnar og hennar sjálfrar. Við viljum hrinda henni í framkvæmd. Hún snýst um aukna verðmætasköpun, meiri framleiðni og auknar skatttekjur til framtíðar. Þetta er í raun framhald af því sem ferðaþjónustan hefur kallað eftir árum saman: Öflugri markaðssetningu, betri rannsóknum og gögnum og markvissri uppbyggingu innviða byggðum á þeim. Tilgangurinn er ekki að styrkja einstök fyrirtæki, heldur til að styrkja Ísland sem áfangastað og auka verðmætasköpun þjóðarbúsins til frambúðar. Mikil vonbrigði með leið stjórnvalda Það eru þess vegna mikil vonbrigði að stjórnvöld ætli ekki að grípa þennan bolta. Í stað þess að vinna með okkur að því að stækka kökuna ætla stjórnvöld enn og aftur að ráðast í sértækar skattahækkanir á ferðaþjónustuna. Það gengur þvert gegn yfirlýstri atvinnustefnu þeirra sjálfra og hættan er sú að afleiðingin verði minni fjárfesting, minni hagvöxtur og að lokum minni skatttekjur af ferðaþjónustu en annars hefði orðið. Veljum langtímahugsun frekar en þvingunaraðgerðir Þetta skiptir sérstaklega miklu máli núna þegar hægir á atvinnulífinu. Eitt fjárlagaár er alltof stuttur sjóndeildarhringur fyrir ábyrga hagstjórn. Hallalaus fjárlög geta verið mikilvægt langtímamarkmið, en eins árs þvingunaraðgerðir mega ekki veikja þá tekjustofna sem eiga að standa undir ríkissjóði næstu árin og áratugina. Það er óskynsamlegt að skipta sífellt minni köku Það er hægt að bæta afkomu ríkissjóðs með tvennum hætti: með því að taka stærri sneið af kökunni eða með því að stækka kökuna. Við í ferðaþjónustunni höfum ítrekað bent á að síðari leiðin er betri fyrir okkur öll. Stjórnvöld þurfa nú að útskýra hvers vegna þau vilja ekki koma með okkur í þann leiðangur. Hvers vegna þau kjósa sértækar skattahækkanir sem draga úr samkeppnishæfni stærstu útflutningsgreinar þjóðarinnar í stað þess að skapa skilyrði fyrir meiri verðmætasköpun. Og hvers vegna þau velja skammtímaávinning fram yfir möguleikann á heilbrigðum og sjálfbærum tekjuvexti fyrir íslenskt samfélag. Höfundur er formaður Samtaka ferðaþjónustunnar Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Pétur Óskarsson Ferðaþjónusta Fjárlagafrumvarp 2027 Mest lesið Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun