Bókun 35 útskýrð á mannamáli Tómas Arnar Þorláksson skrifar 13. september 2026 17:45 Bókun 35 var tekin fyrir í fyrsta þætti Hvað er að frétta? Vísir Í fyrsta þættinum af Hvað er að frétta? leitast þáttastjórnandi eftir því að útskýra hina títtnefndu bókun 35 á mannamáli. Sumir myndu segja að bókun 35 væri ekki umfjöllunarefni sem fær áhorfendur til að hlaupa að skjánum en í þættinum er málið reifað á skemmtilegan og hnitmiðaðan máta. Það er gert með það að stafni að gera seigt og stórt mál auðmeltanlegt fyrir sem flesta. Þáttinn má berja augum í spilaranum hér að neðan. Bókun 35 virðist ætla að verða eitt stærsta hitamálið á þinginu í vetur. Bókunin spratt eins og skrattinn úr sauðarleggnum eftir að Íslendingar höfnuðu aðildarviðræðum við ESB og hefur gripið hverja fyrirsögnina á eftir annarri. Ríkisstjórnin hefur gefið út að frumvarp um rétta innleiðingu bókunar 35 muni vera sett á oddinn. Stjórnarandstaðan segir það fráleitt að setja áherslu á bókunina beint í kjölfarið af því að þjóðin hafnaði áframhaldandi aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Á sama tíma hefur Eftirlitsstofnun EFTA gefið út að verið sé að undirbúa málsókn gegn Íslandi, þar sem þau telja að bókunin hafi ekki verið innleidd með réttum hætti. Síðast þegar bókunin var til umræðu á þinginu stóð umræðan yfir í hátt í hundrað klukkutíma. Á tímapunkti voru það aðeins Miðflokksmenn sem héldu umræðunni gangandi langt fram á nótt, trekk í trekk. En, hvernig komumst við hingað? Hvað gerist ef við innleiðum bókun 35? Og kannski mikilvægast af öllu, hvað í ósköpunum er bókun 35? Byrjum á byrjuninni. EES-samningurinn var samþykktur á Alþingi árið 1993 eftir miklar deilur, til að mynda voru ungmenni handtekin með leikfangabyssur á Alþingi sama dag og samningurinn varð að lögum. Í samningnum felst svokallað fjórfrelsi sem tryggir frjálst flæði vara, fólks, þjónustu og fjármagns yfir landamæri innan Schengen-svæðisins. Í samningnum felst þó ekki aðeins frelsi enda þarf Ísland einnig að taka upp ákveðnar reglur frá Evrópusambandinu og þar komum við að bókun 35. Í grunninn snýst bókun 35 um það að ef lög sem Alþingi setur stangast á við reglur EES eigi að miða við reglur EES nema annað komi fram í íslenskum lögum. Þess má geta að aldrei er miðað við EES-reglur nema þeir hafi þegar farið í gegnum þingið og þar með orðið að íslenskum lögum. Nú segir aðeins í lögum að skýra skuli lög og reglur til samræmis við EES samninginn. 3.gr. laga um Evrópska efnahagssvæðið: Skýra skal lög og reglur, að svo miklu leyti sem við á, til samræmis við EES-samninginn og þær reglur sem á honum byggja. Bókun 35 er ætlað að tryggja að sömu reglur gildi alls staðar á innri markaðnum. Neytendur á svæðinu nytu sömu réttinda og fyrirtæki hér á landi þyrftu að uppfylla sömu skilyrði og fyrirtæki á meginlandi Evrópu. Frjálst flæði og þar með sameiginlegar reglur. En það er ekki þannig að Ísland hafi enga aðkomu að því hvernig ESB-löggjöf verður að EES-reglu og að lokum að íslenskum lögum. Ef það er komist að þeirri niðurstöðu að ný löggjöf Evrópusambandsins eigi við EES-samninginn- innri markaðinn semsagt- fá sérfræðingar Íslands, Noregs og Lichtenstein tækifæri til að koma með tillögur að aðlögun vegna sérstöðu hvers ríkis. Sameiginlega EES nefndin, sem Ísland á fulltrúa í, tekur ákvörðun um hvort nýja reglan bætist við EES samninginn. Allir meðlimir þurfa að samþykja tillöguna einróma. Þegar það er komið þarf Alþingi síðan að samþykkja nýju regluna með lagabreytingu. Þetta ferli yrði það sama með eða án innleiðingu bókunar 35. Í þættinum er þetta ferli sett í einfaldari búning með kostulegum hætti. Ef þú ert með hugmynd að máli sem væri gott að fá skýringu á eða þú myndir vilja sjá tekið fyrir í þættinum geturðu sent okkur skilaboð hér: Sendu okkur fréttaskot hérna. Eða sent póst á tomasat@syn.is. Alþingi Hvað er að frétta? Bókun 35 Mest lesið Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Fleiri fréttir Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Sjá meira
3.gr. laga um Evrópska efnahagssvæðið: Skýra skal lög og reglur, að svo miklu leyti sem við á, til samræmis við EES-samninginn og þær reglur sem á honum byggja.
Ef þú ert með hugmynd að máli sem væri gott að fá skýringu á eða þú myndir vilja sjá tekið fyrir í þættinum geturðu sent okkur skilaboð hér: Sendu okkur fréttaskot hérna. Eða sent póst á tomasat@syn.is.
Alþingi Hvað er að frétta? Bókun 35 Mest lesið Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Fleiri fréttir Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Sjá meira